Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Siggi hakkari birtir meintar leyniupptökur af samtali sínu við Grím Grímsson

Í sam­tali við Frosta Logason færir síbrota­mað­ur­inn Siggi hakk­ari fram nýjar ásak­anir og birtir upp­töku.

Siggi hakkari birtir meintar leyniupptökur af samtali sínu við Grím Grímsson
Siggi hakk­ari Síbrota­mað­ur­inn er nýjasti gestur Frosta Loga­sonar. Mynd: YouTube-skjáskot

Síbrota­mað­ur­inn Sigurður Þórð­ar­son eða Siggi hakk­ari eins og hann er kall­aður heldur því fram í nýju við­tali Á spjalli með Frosta Logasyni í Brot­kast­inu, að starfs­fólk sér­staks sak­sókn­ara hafi beðið hann um að safna gögnum og afrita upp­lýs­ingar úr tölvu­kerfum ýmissa fyr­ir­tækja á árunum eftir hrun, án þess að slíkar aðgerðir hefðu verið heim­il­aðar með dóms­úr­skurði, að því er fram kemur í frétt Nútímans. Hann segir að megnið af þeim gögnum sem fjallað var um í Kveiks­þætti um njósnir Jóns Óttars Ólafs­sonar og með­eig­anda hans í félag­inu PPP sf, hafi komið frá honum. Jón Óttar stað­hæfði nýlega í við­tali við Frosta í Brot­kasti að sjálfur hér­aðs­sak­sókn­ar­inn og sér­staki sak­sókn­ar­inn Ólafur Þór Hauksson, hefði lekið gögn­unum í Kveik, án þess að færa nokkrar sönnur á mál sitt.

Siggi hefur ítrekað verið stað­inn að ósann­indum og verið dæmdur fyrir marg­vís­legar blekk­ingar. Fram hefur komið í fréttum að hann var greindur með sið­blindu af geð­lækni árið 2014, vegna saka­mála­rann­sóknar. Hann hefur sett sig í sam­band við fjöl­miðla und­an­farið og hefur sent með­limum í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis bréf, öllum nema þing­mann­inum Grími Gríms­syni.

„Ég tel það afar brýnt að nefndin fái að heyra mína hlið máls­ins, þar sem meg­in­hluti þeirra gagna sem síðan voru seld frá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara átti upp­haf sitt hjá mér,“ segir hann í bréf­inu.

Þá boðar hann frá­sögn af „núver­andi og fyrr­ver­andi starfs­mönnum Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, auk núver­andi starfs­manna Rík­is­sak­sókn­ara, Hér­aðs­sak­sókn­ara, sem og starfs­manna þáver­andi emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara.“

Siggi segir frá því að þegar hann síðar var kærður og hand­tek­inn, grun­aður um að hafa stolið gögnum frá fjár­fest­ing­ar­fé­lag­inu Milestone, hafi hann átt fund með Grími Gríms­syni, sem starf­aði hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og sér­stökum sak­sókn­ara, þar sem rætt hafi verið hvernig skipu­leggja mætti yfir­heyrslur þannig að sam­starf þeirra kæm­ist ekki upp, sam­kvæmt frá­sögn Sigga. Þá heldur hann því fram í við­tal­inu við Frosta Logason að emb­ætt­is­menn hjá sér­stökum sak­sókn­ara hafi veitt honum óform­legt lof­orð um að kæran vegna meint þjófn­að­ar­ins yrði aldrei látin ná fram að ganga.

Í við­tal­inu er upp­taka spiluð þar Siggi ræðir við, að því er full­yrt í þætt­inum, Grím Grímsson, þáver­andi lög­reglu­mann. „Þá var þessi opin­beri rann­sókn­ar­að­ili, sér­stakur sak­sókn­ari að fá sautján ára strák út í bæ til þess að í raun og veru brjót­ast inn í einka­fyr­ir­tæki og afrita gögn?“ spyr Frosti í mynd­skeiði sem sýnt er á YouTube. Siggi játar glað­hlakka­lega. Brot er síðan spilað úr upp­töku Sigga.

Siggi hakk­ari hefur í gegnum tíð­ina verið ítrekað dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot og auðg­un­ar­brot. Meðal ann­ars hefur hann verið dæmdur fyrir kyn­ferð­is­brot á níu piltum og fyrir umfangs­mikil fjár­svik. Hann var dæmdur árið 2014 í tveggja ára fang­elsi fyrir, fund­inn sekur um að hafa svikið vörur og pen­ing frá fjölda fyr­ir­tækja og ein­stak­linga, meðal ann­ars frá Hagkaup, Nýherja, Atl­antsolíu, Smára­lind og Brimborg. Hann var dæmdur til að end­ur­greiða um 15 millj­ónir króna. Stærstan hluta þurfti hann að end­ur­greiða WikiLeaks, eða um 7 millj­ónir króna. Sigurður lauk afplánun í júní 2016. Sömu­leiðis varð Siggi lyk­il­vitni í máli banda­rísku alrík­is­lög­regl­unnar, FBI, gegn Julian Assange, stofn­anda Wikileaks. Hann ját­aði síðar að frá­sagnir hans væru ekki allar á rökum reistar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppljóstraramálið

InnlentUppljóstraramálið

Löggan segir Anton hafa boðið sig fram sem upp­ljóstr­ara því honum þótti það spenn­andi

Anton Kristinn Þór­ar­in­son athafna­maður, sem í leka­gögnum Hér­aðs­sak­sókn­ara er kall­aður „langstærsti fíkni­efna­bar­ón­inn á Íslandi“, er sagður hafa boðið sig fram sem upp­ljóstr­ara hjá fíkni­efna­deild lög­regl­unnar því honum hafi bæði þótt það spenn­andi og með því hafi hann viljað beina athygl­inni frá sjálfum sér. Sjálfur heldur hann því fram að löggan hafi hótað honum. Anton virð­ist hafa gegnt upp­ljóstr­ar­hlut­verki hjá lög­regl­unni...
InnlentUppljóstraramálið

Anton veif­aði í njósn­a­mynda­vél­ina – Átta lög­reglu­menn til­kynntu upp­ljóstr­ar­ann

Anton Kristinn Þór­ar­ins­son athafna­maður hefur gegnt upp­ljóstr­ar­hlut­verki hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2006 og sam­kvæmt fram­burði lög­reglu­manna var hann ekki þving­aður til þess. Dæmin sanna að hann hafði sjálfur upp­lýs­ingar um lög­reglu­að­gerðir. Eitt slíkt er þegar hann veif­aði í njós­mynda­vél lög­reglu og fjar­lægði hana síðar meir. Þessi er meðal þess sem finna má í skjölum Hér­aðs­sak­sókn­ara sem lekið var...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi