Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Anton veifaði í njósnamyndavélina – Átta lögreglumenn tilkynntu uppljóstrarann

Anton veifaði í njósnamyndavélina – Átta lögreglumenn tilkynntu uppljóstrarann

Anton Kristinn Þór­ar­ins­son athafna­maður hefur gegnt upp­ljóstr­ar­hlut­verki hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá árinu 2006 og sam­kvæmt fram­burði lög­reglu­manna var hann ekki þving­aður til þess. Dæmin sanna að hann hafði sjálfur upp­lýs­ingar um lög­reglu­að­gerðir. Eitt slíkt er þegar hann veif­aði í njós­mynda­vél lög­reglu og fjar­lægði hana síðar meir.

Þessi er meðal þess sem finna má í skjölum Hér­aðs­sak­sókn­ara sem lekið var á Bland.is. Um er að ræða gríð­ar­legan gagna­leka. Nú er búið að eyða skjöl­unum þar sem til þeirra hefur náðst. Mannlíf hefur þau þó undir höndum. Skjölin þykja það við­kvæm að yfir­völd meta hvort grípa þurfi til ein­hverra aðgerða til að stöðva upp­ljóstr­an­irnar. Gögnin eru hluti af rann­sókn á hendur Stein­dóri Inga Erlings­syni, lög­reglu­full­trúa við fíkni­efna­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en hann lá undir grun um spill­ingu. Hann var síðar sýkn­aður.

Anton hóf upp­lýs­inga­sam­bandið við lög­regl­una 2006 og var ekki þving­aður til þess að sögn lög­reglu­manna.

Sá sem átti að hafa spillt honum er Anton sem vísað er í hér að ofan. Hann er iðu­lega kall­aður Toni og hefur lengi verið umtal­aður vegna tengsla við fíkni­efna­markað á Íslandi. Skjölin gefa til kynna að Toni hafi verið upp­ljóstr­ari lög­regl­unnar frá árinu 2006.

Það voru átta lög­reglu­menn sem til­kynntu grun­semdir sínar til yfir­stjórnar lög­regl­unnar um að Toni hafi notið sér­stakrar frið­helgi af hálfu lög­regl­unnar við brota­starf­semi sína og það um all­nokk­urt skeið. Í skjölum Hér­aðs­sak­sókn­ara segir svo frá: „Sögu­sagnir hafa heyrst að [Steindór] hafi þegið pen­inga­greiðslu eða -greiðslur frá Antoni gegn því að fá upp­lýs­ingar um fyr­ir­hug­aðar aðgerðir lög­reglu gegn brota­starf­semi hans sem og með því að stöðva fram­gang lög­reglu­að­gerða þegar spjótin bein­ast gegn honum. Þar að auki hafi borg­ari, sem nú er lát­inn, sagt lög­reglu­mönnum að hann hafi orðið vitni að því þegar kærði veitti við­töku 350.000 greiðslu frá Antoni. Fullyrt er af hálfu lög­reglu­manna að rann­sóknir stórra fíkni­efna­mála hafi verið afvega­leiddar að und­ir­lagi [Stein­dórs]. Sá háttur hafði verið hafður á að upp­lýs­ingum var dælt til rann­sókn­ara mála sem voru á skjön við aðrar upp­lýs­ingar. Þá sögðu lög­regu­menn að fram­gangur nokk­urra mála hafi ekki verið með eðli­legum hætti. Þannig hafi aðgerðir lög­regl­unnar í fíkni­efna­málum verið blásnar af þegar böndin fóru að ber­ast að Antoni.“

Í upp­ljóstr­ar­ar­skýrsl­unum er meðal ann­ars fjallað um rann­sókn fíkni­efna­deild­ar­innar á meintri kanna­bis­ræktun að Við­ar­höfða 1 í Reykja­vík. Lögreglu hafði borist upp­lýs­ingar um að verið væri að setja upp mjög stóra ræktun þar og hluti aðgerð­ar­innar var að setja upp falda mynda­vél í nágrenn­inu sem sýndi aðal­inn­gang húss­ins. „Á ein­hverjum tíma­punkti hafi lög­regla áttað sig á að búið var að taka bún­að­inn niður og greini­lega flytja út um bak­dyr. Þá hafi mátt sjá Anton Kristinn ganga fram­hjá mynda­vél­inni og veifa og hann þannig greini­lega vitað af henni,“ segir í skýrslu Hér­aðs­sak­sókn­ara.

Anton vildi fá skrif­lega yfir­lýs­ingu um að hann yrði ekki sjálfur sak­sóttur fyrir upp­ljóstr­anir.

Inn­an­hús­rann­sókn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á meintri spill­ingu innan fíkni­efna­deild­ar­innar lauk 15. des­em­ber 2015 þegar rann­sókn­ar­gögnin voru sent rík­is­sak­sókn­ara. Þann sama dag setti lög­mað­ur­inn Húnbogi J. And­ers­sen, fyrr­ver­andi lög­reglu­maður, sig í sam­band við lög­regl­una og full­yrti að umbjóð­andi hans byggi yfir upp­lýs­ingum um brot lög­reglu­manna í starfi og að hann hefði greitt lög­reglu­mönnum fyrir upp­lýs­ingar. Sá umbjóð­andi var Toni sjálfur en hann var ekki reiðu­bú­inn til að segja frá nema með skrif­legu lof­orði um að verða ekki sak­sóttur eða kærður fyrir refsi­verð brot sín. Húnbogi full­yrti við sak­sókn­ara að Steindór hefði þegið millj­ónir frá Antoni fyrir upp­lýs­ingar en á end­anum hafi upp­lýs­ingar lekið í báðar áttir.

Mannlíf mun halda áfram að fjalla um skjölin sem varpa ljósi á innri átök lög­regl­unnar sem staðið hafa um ára­bil. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppljóstraramálið

InnlentUppljóstraramálið

Löggan segir Anton hafa boðið sig fram sem upp­ljóstr­ara því honum þótti það spenn­andi

Anton Kristinn Þór­ar­in­son athafna­maður, sem í leka­gögnum Hér­aðs­sak­sókn­ara er kall­aður „langstærsti fíkni­efna­bar­ón­inn á Íslandi“, er sagður hafa boðið sig fram sem upp­ljóstr­ara hjá fíkni­efna­deild lög­regl­unnar því honum hafi bæði þótt það spenn­andi og með því hafi hann viljað beina athygl­inni frá sjálfum sér. Sjálfur heldur hann því fram að löggan hafi hótað honum. Anton virð­ist hafa gegnt upp­ljóstr­ar­hlut­verki hjá lög­regl­unni...

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina