Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Löggan segir Anton hafa boðið sig fram sem uppljóstrara því honum þótti það spennandi

Anton Kristinn Þórarinson athafna­maður, sem í leka­gögnum Héraðs­saksóknara er kallaður „lang­stærsti fíkniefna­baróninn á Íslandi“, er sagður hafa boðið sig fram sem uppljóstrara hjá fíkni­efnadeild lögreglunnar því honum hafi bæði þótt það spennandi og með því hafi hann viljað beina athyglinni frá sjálfum sér. Sjálfur heldur hann því fram að löggan hafi hótað honum.

Anton virðist hafa gegnt uppljóstrarhlutverki hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu frá árinu 2006. Dæmin sanna að hann hafði sjálfur upplýsingar um lögreglu­aðgerðir. Eitt slíkt er þegar hann veifaði í njósmyndavél lögreglu og fjarlægði hana síðar meir.

Þetta er meðal þess sem finna má í skjölum Héraðs­saksóknara sem lekið var á Bland.is. Um er að ræða gríðar­legan gagnaleka. Nú er búið að eyða skjölunum en Mannlíf hefur þau þó undir höndum. Skjölin þykja það viðkvæm að yfirvöld meta hvort grípa þurfi til einhverra aðgerða til að stöðva uppljóstranirnar. Gögnin eru hluti af rannsókn á hendur Steindóri Inga Erlings­syni, lögreglu­fulltrúa við fíkni­efnadeild Lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu, en hann lá undir grun um spillingu. Hann var síðar sýknaður.

Af gögnunum má ráða að enginn vafi sé á því að Anton var uppljóstrari hjá fíkni­efnadeild lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu. Það stað­festir hann sjálfur og það gerir fjölda lögreglu­manna einnig. Hvernig til þess kom ber þeim hins vegar ekki saman um.

Anton vill meina að Steindór Ingi Erlingsson, lögreglu­fulltrúi við fíkni­efna­deildina, hafi hótað sér á strippbúllunni Goldfinger árið 2005 og vegna sífelldra hótana óg símhlerana í kjölfarið hafi hann ákveðið að byrja upplýsinga­gjöf sína til löggunnar. Steindór heldur því aftur á móti fram að það hafi verið Anton sem hafi hringt og boðið fram þjónustu sína er hann sat á Litla-Hrauni.

Á þessum tíma var Steindór yfirmaður í upplýsinga­deild fíkni­efna­deildarinnar og hafði þar bæði vald til að ákveða hvaða mál væri tekin til rann­sóknar og hvaða mál yrði látin niður falla. Af leka­skýrslunum að dæma voru átta kollegar Steindórs áhyggju­fullir yfir því að Anton væri á sérsamningi og útlit fyrir að hann byggi yfir upplýsingum um lögreglu­aðgerðir.

Upphaf þessar grunsemda má rekja til ársins 2012 þegar ungur maður, Hilmar Pétursson Hilmarsson, leitaði til lögreglunnar og vildi veita upplýsingar um brota­starfsemi Antons. Nokkrum mánuðum eftir að hafa leitað til lögreglunnar lést hann sviplega.

Innan­húsrannsókn lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu á meintri spillingu innan fíkni­efna­deildarinnar lauk 15. desember 2015 þegar rann­sóknar­gögnin voru sent ríkis­saksóknara. Þann sama dag setti lögmaðurinn Húnbogi J. Anderssen, fyrr­verandi lögreglu­maður, sig í samband við lögregluna og fullyrti að umbjóðandi hans byggi yfir upplýsingum um brot lögreglu­manna í starfi og að hann hefði greitt lögreglu­mönnum fyrir upplýsingar. Sá umbjóðandi var Toni sjálfur en hann var ekki reiðu­búinn til að segja frá nema með skriflegu loforði um að verða ekki saksóttur eða kærður fyrir refsiverð brot sín. Húnbogi fullyrti við saksóknara að Steindór hefði þegið milljónir frá Antoni fyrir upplýsingar en á endanum hafi upplýsingar lekið í báðar áttir.

Mannlíf mun halda áfram að fjalla um skjölin sem varpa ljósi á innri átök lögreglunnar sem staðið hafa um árabil. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Uppljóstraramálið

InnlentUppljóstraramálið

Anton veifaði í njósna­myndavélina – Átta lögreglu­menn tilkynntu uppljóstr­arann

Anton Kristinn Þórarinsson athafna­maður hefur gegnt uppljóstr­ar­hlut­verki hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu frá árinu 2006 og samkvæmt framburði lögreglu­manna var hann ekki þvingaður til þess. Dæmin sanna að hann hafði sjálfur upplýsingar um lögreglu­aðgerðir. Eitt slíkt er þegar hann veifaði í njósmyndavél lögreglu og fjarlægði hana síðar meir. Þessi er meðal þess sem finna má í skjölum Héraðs­saksóknara sem lekið var...
Nærmynd
Sport

Hver er Kolbeinn Sigþórsson?

Innlent

Ísak telur að ráðist hafi verið á sig vegna kynhneigðar

Heimur

Náttfata­veisla unglings­stúlkna endaði í harmleik

Heimur

„Þekktasta klámstjarna Ítalíu“ vill verða borgar­stjóri Rómar

Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag