Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Risastór gagnaleki frá Héraðssaksóknara: Anton varð uppljóstrari lögreglu árið 2006

Risastór gagnaleki frá Héraðssaksóknara: Anton varð uppljóstrari lögreglu árið 2006

„Sím­hlustun þann 9. apríl 2015. Meðal máls­gagna er afrit af sím­tali sem náð­ist við hlustun þar sem Hilmar Leifsson og Sævar Þór eru að setja út á að Anton fái að starfa óáreittur fyrir lög­reglu og nefna m.a. [Steindór] í því sam­bandi. Í sím­tal­inu segir Sævar Þór að hann hafi heyrt að Anton sé með tvær löggur í vas­anum „Steindór og Hafþór eða eitt­hvað“. Ekkert sem bendir til ann­ars en að hér hafi menn­irnir verið að ræða orðróm á göt­unni um að kærði væri í óeðli­legu sam­bandi við Anton Kristinn.“

Þessi orð má finna í skjölum Hér­aðs­sak­sókn­ara sem lekið var á Bland.is. Um er að ræða gríð­ar­legan gagna­leka. Nú er búið að eyða skjöl­unum þar sem til þeirra hefur náðst. Mannlíf hefur þau þó undir höndum. Skjölin þykja það við­kvæm að yfir­völd meta hvort grípa þurfi til ein­hverra aðgerða til að stöðva upp­ljóstr­an­irnar. Gögnin eru hluti af rann­sókn á hendur Stein­dóri Inga Erlings­syni, lög­reglu­full­trúa við fíkni­efna­deild Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en hann lá undir grun um spill­ingu.

Steindór hefur nú verið hreins­aður af þeim ásök­unum. Sá sem átti að hafa spillt honum er Anton Kristinn Þór­ar­ins­son afhafna­maður sem vísað er í hér að ofan. Anton er iðu­lega kall­aður Toni og hefur lengi verið umtal­aður vegna tengsla við fíkni­efna­markað á Íslandi.

Anton hefur lítið ratað í fjöl­miðla und­an­farin ár, fyrir utan fréttir af golf­mótum. Hann var síð­ast í fréttum fyrir afbrot árið 2008 þegar hann var dæmdur í tveggja ára fang­elsi fyrir smygl á um 700 grömmum af sterku kóka­íni.

Þar sem rann­sókn beind­ist að sam­skiptum Stein­dórs og Antons má í skjöl­unum finna ótal lýs­ingar af ára­löngum sam­skiptum Antons við lög­regl­una. Þar kemur fram að Anton hafi verið upp­ljóstr­ari lög­regl­unnar frá árinu 2006 og það sam­band hafi byrjað af hans frum­kvæði. Anton á hafa ítrekað reynt að nýta sér þetta sam­band, líkt og á Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum árið 2008. Þá var Anton hand­tek­inn og óskaði hann þá eftir því að hringt yrði í Steindór lög­reglu­mann. Hér­aðs­sak­sókn­ari telur þó að lög­reglan hafi ekki hlíft Antoni óeðli­lega, líkt og kemur fram í eft­ir­far­andi lýs­ingu af öðru atviki tveimur árum síðar:

„Málið varðar hús­leit á heim­ili Antons Kristins þar sem nokk­urt magn fíkni­efna fannst. Fjórir lög­reglu­menn lýstu því að ýmis­legt í tengslum þessa hús­leit hafi ýtt undir grun­semdir þeira í garð kærða. Virðist það m.a. vera vegna þess að Kjartan Ægir Krist­ins­son seg­ist hafa orðið vitni að orða­sennu á milli [Stein­dórs] og Karls Steinars Vals­sonar í kjöl­farið auk þess sem þeim hafi þótt skrítið að Anton Kristinn væri það bíræf­inn að vera með ræktun heima hjá sér. Þótti ein­hverjum það til marks um að hann nyti hugs­an­lega verndar. Daginn sem leitin fór fram er hins vegar bókað í Höndl­ar­anum að Anton Kristinn hafði sam­band við [Steindór] og sagð­ist hafa heyrt að lög­reglan væri heima hjá honum og stað­festi [Steindór] að hann hefði líka heyrt það. Sagði hann Anton hafa verið mjög ósáttan við að hafa ekki verið lát­inn vita af þessu fyr­ir­fram en kærði sagt honum að það gætu þeir ekki gert.“

Mannlíf mun halda áfram að fjalla um skjölin sem varpa ljósi á innri átök lög­regl­unnar sem staðið hafa um ára­bil. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

„Þetta er ekki bara eitthvert mál, þetta er grafalvarlegt mál,“ sagði Stefán Vagn
Heimur

Flaug yfir fjöll og götur á heima­smíð­uðu svif­bretti

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ