Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bassi Maraj ákærður fyrir að bíta og berja leigubílstjóra

Tón­list­ar­mað­ur­inn og raun­veru­leika­stjarnan fær ákæru fyrir að vefja snúru úr greiðslu­posa um háls leigu­bíl­stjóra og bíta hann í hnakk­ann.

Bassi Maraj ákærður fyrir að bíta og berja leigubílstjóra
Bassi sló í gegn árið 2020 í sjón­varpi Hann hefur verið vin­sæll tón­list­ar­maður und­an­farin ár. Mynd: Facebook

Bassi Maraj, tón­list­ar­maður og raun­veru­leika­stjarna, hefur verið ákærður fyrir heift­ar­lega lík­ams­árás gegn leigu­bíls­stjóra.

Í ákærunni kemur fram að Bassi hafi veist að leigu­bíl­stjóra í Bryggju­hverf­inu í Árbænum þann 11. febr­úar 2023 með ofbeldi. Hann hafi bitið í hnakka hans og vinstri öxl, kýlt hann með krepptum hnefa í ennið, tekið hann kverka­taki og vafið snúru úr greiðslu­posa um háls leigu­bíl­stjór­ans með þeim afleið­ingum að bíl­stjór­inn hlaut tognun á hálsi, blæð­ingu undir slím­húð hægra auga, bit­för og mar á hægri öxl og upp­hand­legg auk yfir­borðsá­verka á háls og vinstri úln­lið.

Þá á hann einnig að hafa hótað að drepa leigu­bíl­stjór­ann, með því að segja: „Komdu með sím­ann minn eða ég fokk­ing drep þig.“

Hann er sömu­leiðis ákærður fyrir að hafa haft á sér 0,08 grömm af amfetamíni sem lög­regla fann við örygg­is­leit á honum á lög­reglu­stöð­inni við Hverf­is­götu.

Bassi er ákærður fyrir að hafa brotið grein hegn­ing­ar­laga sem hljóða svo: „Hver, sem ger­ist sekur um lík­ams­árás, enda sé hún ekki svo mikil sem í 218. gr. segir, skal sæta sektum eða fang­elsi allt að 6 mán­uðum, en fang­elsi allt að 1 ári, ef hátt­semin er sér­stak­lega víta­verð,“ en í grein 218 er fjallað um alvar­legri lík­ams­árásir.

Þess er kraf­ist að hann verði dæmdur til refs­ingar og til greiðslu alls sak­ar­kostn­aðar. Þá vill leigu­bíl­stjór­inn að Bassi verði dæmdur til að greiða sér 1.572.000 krónur í skaða­bætur auk vaxta.

Málið verður tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Bassi hefur verið mikið í sviðs­ljós­inu síðan hann sló í gegn í raun­veru­leika­sjón­varps­þætt­inum Æði ásamt Binna Glee og Patreki Jamie árið 2020 og hafa verið gerðar fjórar ser­íur af þátta­röð­inni vin­sælu. Síðan þá hefur hann gefið út efni sem rapp­ari með lögum á borð við Áslaug Arna, Bassi Maraj og Kúreki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu