Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Eggert hrækti á lögreglumann og bauðst til að skyrpa á annan

„Fuck you maður,“ sagði Eggert við lög­reglu­menn­ina við hand­töku

Eggert hrækti á lögreglumann og bauðst til að skyrpa á annan
Eggert Arnar var að skemmta sér á Cafe Petite Þótti hafa sýnt lög­reglu­mönnum ógn­andi hegðun var hand­tek­inn í kjöl­farið Mynd: Veitingageirinn

Eggert Arnar Magn­ús­son hefur verið dæmdur í þriggja mán­aða fang­elsi en dóm­ur­inn er skil­orðs­bund­inn til tveggja ára. Eggert var dæmdur fyrir að hrækja á lög­reglu­mann og var málið tekið fyrir í Hér­aðs­dómi Reykja­ness.

Í dómnum kemur fram að lög­reglu­menn hafi þurft að hafa afskipti af Eggerti þegar hann var að skemmta sér á Cafe Petite í Reykja­nesbæ sum­arið 2023. Þeir hafi verið beðnir að vísa Eggerti út af staðnum en sam­kvæmt lög­regl­unni lét hann öllum illum látum en fór að lokum. Hins vegar hafi hann snúið aftur á vett­vang þegar lög­reglan var að yfir­gefa svæðið

Lög­reglan end­ur­tók skipun sína um að Eggert ætti að yfir­gefa svæðið en hann var ekki til í það og sýndi ógn­andi hegðun að sögn lög­reglu­manna. Hann var í kjöl­farið hand­tek­inn og hrækti á lög­reglu­mann þegar hann var að festa sæt­isól hans.

Eggert neit­aði sök fyrir dómi þrátt fyrir að upp­taka úr búk­mynda­vél væri spiluð fyrir hann þar sem Eggert heyr­ist segja „Ég hrækti á þig“ og hráku­hljóð. Eggert telur að mögu­lega hafi hráku­hljóðið komið frá fólki utan bíls­ins. Hann sagð­ist einnig ekki vera fær í íslensku sökum þess að hafa búið í Svíþjóð meiri­hluta ævi sinnar og hann hafi verið að bulla eitt­hvað. Mögulega hafi hann ætlað að segja „ég get hrækt á þig“.

Í dómnum er sagt að á upp­tök­unni megi sjá ákærða snúa lík­ama sínum til hægri að lög­reglu­manni A sem beygir sig að honum. Megi þá heyra ótví­rætt hráka­hljóð frá ákærða og lög­reglu­mann segja „æ“. Í kjöl­farið heyr­ist lög­reglu­maður B segja ákærða að hrækja ekki á þá og sést hráka­gríma sett á ákærða. Heyrist þá ákærði segja „aðeins meira til vinstri af því að ég hrækti á þig, sko“. Skömmu síðar megi heyra lög­reglu­mann B segja í tal­stöð að „hann“ sé kom­inn inn í bíl með hráka­grímu, „hann hafi hrækt á [A]. Síðar megi heyra lög­reglu­mann segja við ákærða að hann hafi hrækt á lög­reglu­mann og ákærða svara „eiiii gerði það, fuck you maður, ég hræki á þig líka ef þú vilt það“.

Eins og áður segir var Eggert fund­inn sekur og dæmdur í þriggja mán­aða fang­elsi og þarf að greiða sak­ar­kostnað upp á 569.440 krónur

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil