Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Þess vegna er þetta dauðasvæði“

Jóhann Páll segir rík­is­stjórn­ina hafa uppi áform um frek­ari skref til að jafna dreif­kostnað til kaup­enda raf­orku um land allt.

„Þess vegna er þetta dauðasvæði“
Jóhann Páll Jóhanns­son ráð­herra Leggur til hækkun jöfn­un­ar­gjalds og dreif­býl­is­fram­lags. Mynd: Mannlíf

Umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, Jóhann Páll Jóhanns­son, segir rík­is­stjórn­ina hafa áform um frek­ari skref til að jafna dreif­kostnað til kaup­enda raf­orku um allt landið.

Full­trúar Múla­þings hafa lýst því sem tví­skinn­ungi að íbúar sem búa nálægt virkj­unum greiði álag sem þeir sem eru fjær þurfa ekki að gera.

Kemur fram á vef­miðl­inum Aust­ur­frétt að Jóhann Páll hafi þegar lagt til hækkun jöfn­un­ar­gjalds sem og dreif­býl­is­fram­lags er hann segir að muni lækka mán­að­ar­legan kostnað kaup­enda í dreif­býli um 20 pró­sent frá og með 1. júlí næst­kom­andi.

Bæði á vor­fundi Rarik í apríl og á fundi orku­sveit­ar­fé­laga á mánu­dag boð­aði Jóhann Páll ennþá stærri skref til jöfn­unar á raf­orku­kostn­aði í haust.

Á þessum fundi var einnig Jónína Brynj­ólfs­dóttir, sem er for­seti sveit­ar­stjórnar Múla­þings, einnig með erindi þar sem hún lýsti yfir ánægju sinni með breyt­ing­arnar. Jónína benti á tví­skinn­ung þess að for­eldrar hennar í Reykja­vík greiddu ekk­ert gjald af flutn­ingi raf­orku er fram­leidd væri á Þjórs­ár­svæð­inu á meðan íbúar nærri virkj­unum þyrftu að gera það.

Kemur fram að Berglind Harpa Svav­ars­dóttir, sem er for­maður byggða­ráðs Múla­þings, ræddi þetta einnig á fundi er Landsnet hélt á Egils­stöðum í byrjun maí. Þar sagði Berglind að ekki gengi að upp­bygg­ing dreifi­kerfis raf­orku byggði algjör­lega á því að orka væri flutt frá Aust­ur­landi til ann­arra not­enda; seld þar á lægra verði. Berglind kall­aði eftir því að stjórn­völd jöfn­uðu dreifi­kostnað milli þétt­býlis og dreif­býlis, að hennar mati kæmi ekk­ert annað til greina.

Þær stöllur Jónína og Berglind ræddu hvernig skil­grein­ingar dreifi­veitna á dreif­býli falli ekki saman við skil­grein­ingar sveit­ar­fé­laga. Sagði Jónína slíkt hafa afleið­ingar - til dæmis fyrir Múlaþing - sem hefur skipu­lagt atvinnu­svæði við Val­gerð­ar­staði norður af Fellabæ. Það er dreif­býli sam­kvæmt skil­grein­ingu Rarik og því bæt­ist við álag á raf­ork­una:

„Þetta er okkar stærsta iðn­að­ar­svæði og þangað beinum við áhuga­sömum fyr­ir­tækjum. En af því að Rarik vill meina að þarna eigi að vera dreif­býl­is­gjald telja fyr­ir­tækin ekki borga sig að fara í upp­bygg­ingu. Þess vegna er þetta dauða­svæði,“ sagði Jónína. Hún bætti við að álagið hindr­aði líka atvinnu­upp­bygg­ingu til sveita. „Það ætti að verð­launa lands­svæðin fyrir fram­leiðslu með for­gangi að orku fyrir sín sam­fé­lög, bæði til atvinnu­lífs og vaxtar sam­fé­lags­ins,“ sagði Berglind Harpa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil