Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hallgrímur minnist móður sinnar

„Um leið og móð­ur­hjartað kóln­aði slapp hiti þess út í and­rúmið.“

Hallgrímur minnist móður sinnar
Hall­grímur Helgason Rit­höf­und­ur­inn og list­málar­inn kveður móður sína með fal­legum hætti. Mynd: hallgrimurhelgason.com

Hall­grímur Helgason minnt­ist móður sinnar í fal­legri Facebook-færslu í gær en jarð­ar­för hennar fór fram í Áskirkju í gær.

Í upp­hafi minn­ing­ar­grein­ar­innar, er Hall­grímur ljóð­rænn eins og hann á til:

„Öll þráum við að fanga líf móður okkar. En ekki skiljum við æsku hennar því þá vorum við ekki til og ekki heldur mið­líf hennar, því eng­inn skilur upp­haf sitt. Á miðjum aldri byrjum við samt að reyna, þótt lítið gangi. Í elli hennar opn­ast loks ævisprungur; kvikan blasir við. Úr þeim glömpum reynum við að ráða þá gátu sem móð­irin ætíð er.“

Í minn­ing­ar­grein­inni sem rit­höf­und­ur­inn rit­aði og birt­ist í Morg­un­blað­inu í gær, rifjar hann upp ævi móður sinnar með per­sónu­legum og ein­lægum hætti. Þar lýsir hann æsku hennar norðan heiða á kreppu­tímum, áföllum sem mót­uðu hana, lífs­við­horfi hennar og því djúpa umhyggju­hlut­verki sem hún gegndi sem móðir.

Margrét fædd­ist á Akureyri og ólst upp í borg­ara­stétt þar á kreppu­tímum. Hún varð snemma að takast á við missi og veik­indi innan fjöl­skyldu sinnar, en sú reynsla varð til þess að hún til­eink­aði sér djúpa sam­kennd og sterka rétt­læt­is­kennd. Hún fór í Fóstru­skóla Sum­ar­gjafar og síðar í nám við Laug­ar­vatn áður en hún hélt til Dan­merkur þar sem hún kynnt­ist fram­tíð­ar­eig­in­manni sínum, verk­fræði­nema úr fátæk­ari stétt.

Hall­grímur rit­aði:

„Mamma fædd­ist í byrjun kreppu norður á Akureyri, dóttir rit­síma­stjór­ans þar og hús­freyju hans. Hvergi voru stétta­and­stæður jafn miklar og mamma lenti borg­ara­megin. Átti þó ekki alsæla bernsku. Berkl­arnir sendu ömmu á Krist­nes­hæli en börn hennar suður í vist hjá ætt­ingjum. Þegar fjöl­skyldan sam­ein­að­ist á ný mátti hún ekki faðma þau svo skortur varð á hlýju.“

Margrét kynnt­ist eig­in­manni sínum í Kaup­manna­höfn en Hall­grímur lýsir þeim á skemmti­legan hátt:

„Eig­in­mað­ur­inn var óvæntur; vinstri­s­inn­aður verk­fræði­nemi úr fátækt­ar­basli fyrir austan. Þau sett­ust að á horni Njáls­götu og Snorra­brautar og bjuggu alla tíð í Aust­ur­bænum, ekki í Vesturbæ eins og föð­ur­ættin mælti fyrir. Bæði voru á skjön við sinn bak­grunn, hann með sína háskóla­gráðu og hún með sína hug­sjón. Við börnin nutum þess auð­vitað ótæpi­lega að alast upp hjá sér­fræð­ingi í fag­inu. Skjól og stuðn­ingur heima, leikir í öllum boðum, skíði á vetrum, úti­legur á sumrum. Þegar hún skynj­aði teikni­lyst hjá ungum dreng var hann sendur á öll þau mynd­list­ar­nám­skeið sem í boði voru.“

Þau sett­ust að í Reykja­vík þar sem Margrét vann ötul­lega að barna­upp­eldi og kennslu. Börn hennar nutu sterks stuðn­ings, upp­byggi­legs umhverfis og víð­sýni í upp­eldi sem þótti fram­úr­skar­andi á sínum tíma. Margrét naut mik­illar virð­ingar meðal nem­enda sinna, og voru börn jafnan minnt á það í gegnum tíð­ina: „Bið að heilsa mömmu þinni – alveg frá­bær kenn­ari!“

„Mamma var félags­lyndur stuð­bolti sem eign­að­ist marga aðdá­endur fyrir ára­tuga kennslu sína og félags­störf. Í hverjum mán­uði allt okkar líf vorum við systk­inin minnt á mik­il­vægi mömmu fyrir fyrrum nem­endum hennar. “Bið að heilsa henni mömmu þinni! Alveg frá­bær kenn­ari!”,“ skrif­aði Hall­grímur.

Margrét var umvafin góðum vinum og fjöl­skyldu alla tíð, og átti í dýr­mætum tengslum við gamla vini úr æsku og námi. Í lok greinar lýsir sonur hennar hve móðir hans hafi gefið af sér með því að líta á öll börn sem hluta af eigin fjöl­skyldu:

„Mamma byrj­aði sem auka­stærð en end­aði í yfir­stærð. Fann ást­ina og ham­ingj­una og fylgdi ein­faldri reglu: Öll börn sem kynn­ast í okkar ættir eru mín, orðið „amma“ er safn­heiti, ekki sér­heiti. Fyrir það fáum við aldrei full­þakkað,“ skrifar Hall­grímur.

Lokaorð Hall­gríms eru ein­stak­lega fal­leg:

„Mamma kvaddi á Hrafn­istu aðfar­arnótt 13. maí. Hún hafði ekki fyrr skilið við en hita­bylgja reið yfir landið, dögum saman var hit­inn yfir tutt­ugu stig í öllum lands­hlutum. Um leið og móð­ur­hjartað kóln­aði slapp hiti þess út í and­rúmið.

Við kveðjum ein­staka konu af stolti, ást og lífs­ins þökk.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá