Georg Gylfason, fyrrverandi blaðamaður Fréttablaðsins og Heimildarinnar, hefur ákveðið að setja íbúð sína á Skerjabraut á Seltjarnesi á sölu. Georg býr þar með Sissu Helgadóttur sálfræðingi.
Um er að ræða fallega og vel staðsetta eign í nýlegu lyftuhúsi á vinsælum stað á höfuðborgarsvæðinu. Fjölbreytt verslun og þjónusta er í göngufjarlægð ásamt sundlaug Seltjarnarness, líkamsrækt og íþróttasvæði Gróttu. Þá er auðvitað stutt í Vesturbæinn og þá dýrð sem þar er að finna. Íbúðin er tveggja herbergja endaíbúð á jarðhæð með skjólgóðri verönd og er 60,8 m² að stærð.
Parið vill fá 59.900.000 krónur fyrir íbúðina.





























Athugasemdir