Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Tengdasonur fyrrverandi forsætisráðherra heldur lyginni áfram“

Snærós Sindra­dóttir skrifar varn­ar­ræðu fyrir móður sína og sendir Bjarna Bene­dikts­syni tón­inn.

„Tengdasonur fyrrverandi forsætisráðherra heldur lyginni áfram“
Snærós Sindra­dóttir. Segir það þvælu að móðir hennar hagn­ist á fleiri inn­flytj­endum.

Fjöl­miðla­kon­anan Snærós Sindra­dóttir - dóttir Helgu Völu Helga­dóttur lög­fræð­ings og fyrr­ver­andi þing­konu - er orðin veru­lega leið á því að heyra af því hér og þar að móðir hennar hafi fjár­hags­legan hag af því að hingað til Íslands komi hæl­is­leit­endur.

Hún skrifar pistil á Facebook-síðu sína þar sem meðal ann­ars segir að „ein þrá­látasta lygin sem vellur upp út ras­istum lands­ins er sú að mamma mín hafi beinan fjár­hags­legan hag af því að til Íslands komi hæl­is­leit­endur. Það líður ekki sá dagur að ég lesi ekki komment um þetta kjaftæði, og nýverið þurfti ég að leið­rétta bullið þegar það kom upp í fjöl­skyldu­spjalli vin­konu minnar.“

Hún seg­ist hafa þagað þunnu hljóði í langan tíma, en nú sé nóg komið:

„Starfa míns og hennar vegna þagði ég í sex ár þegar þess­ari drullu var haldið fram en nú þegar tengda­sonur fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra heldur lyg­inni áfram ætla ég að leið­rétta hana í eitt skipti fyrir öll.“

Og hér er leið­rétt­ingin:

„Fyrir meira en ára­tug síðan tók mamma mín að sér lög­manns­störf fyrir fólk sem hingað sótti vernd eftir styrj­öld í Sýrlandi. Þannig var kerfið þá og tugir lög­manna sinntu því sama. Það var sann­ar­lega ekki mok­gróði í þeim verk­efnum en það er hlut­verk lög­manna að taka að sér störf fyrir fólk sem á rétt á aðstoð skv. íslenskum lögum. Árið 2014 gerði rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs og Bjarna Bene­dikts­sonar hins vegar breyt­ingar á hæl­is­kerf­inu sem fólu í sér að öll þjón­usta lög­manna var færð til Rauða kross Íslands. Þar með var þessum verk­efnum móður minnar lokið. Fyrir þau sem kunna ekki að reikna þýðir það að í 11 ár hefur þetta ekki verið vinnan hennar.“

Snærós færir í tal að „árið 2017 var mamma mín svo kjörin á þing og lagði inn lög­manns­rétt­indi sín á meðan. Annað en sumir. Þar sat hún í sex ár, öfl­ug­ust og kraft­mest allra þing­manna, þar til hún ákvað að snúa aftur til lög­manns­starfa og finna nær­ing­una í því að hjálpa fólki augliti til auglitis frekar en í gegnum svifa­seint kerfi þar sem gera þarf mála­miðl­anir við fólk sem hefur enga mannúð í hjarta sér. Þingmenn þjóð­ar­innar sem aldrei hafa hitt neinn sem ekki er af þeirra eigin sauða­húsi. Mamma mín er dug­leg­asta kona sem ég þekki. Hún er gríð­ar­lega hörð af sér en þeirri ásjónu fylgir því miður að fólki finnst það ekki þurfa að standa upp fyrir henni. Þannig hefur sam­starfs­fólk í póli­tík aldrei lyft litla fingri til að leið­rétta bullið og þvætt­ing­inn sem á henni hefur dunið frá snið­meng­inu sem hatar útlend­inga og heldur að bólu­setn­ingar séu massa­stjórn­un­ar­tæki stjórn­valda. Nú eru hins vegar tvö ár síðan hún sagði skilið við störf sín í þágu þjóð­ar­innar og varð ein­stak­lingur á ný.“

Snærós er að end­ingu með skila­boð til fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands, Bjarna Bene­dikts­sonar varð­andi tengda­son hans, Brynjar Bark­ar­son, sem hélt ræðu gegn útlend­inga­stefnu yfir­valda á laug­ar­dag­inn var:

„Enn lætur þetta fólk þó, sem hefur ekki upp­fært þekk­ingu sína á íslensku reglu­verki í meira en ára­tug, eins og á henni megi berja líkt og um kjör­inn full­trúa sé að ræða og enn taka vinir hennar sem vita betur ekki upp hansk­ann fyrir hana. Það gerum við fjöl­skyldan þá bara og verður ekki lengur setið hjá í þeim efnum. Við Bjarna Bene­dikts­son vil ég segja: Settu tappa í tengda­son­inn. Hann er að sverta ímynd fjöl­skyldu þinnar og verða ykkur til stór­felldrar skammar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu