Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Þetta er ræðan sem gerði allt vitlaust

Þjóð­ern­is­sinnar fögn­uðu, en ClubDub klofn­aði.

Þetta er ræðan sem gerði allt vitlaust
Ræða Brynjars Annar með­limur Club Dub hélt ræðu á Aust­ur­velli um helg­ina til að mót­mæla útlend­ingum á Íslandi. Mynd: Youtube / Skjáskot

Hljóm­sveitin Club Dub hefur klofnað í tvennt og skorað hefur verið á Bjarna Bene­dikts­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, að grípa inn í bar­áttu tengda­sonar hans, eftir að hann hélt ræðu á Aust­ur­velli um helg­ina.

Brynjar Bark­ar­son er þá einn eftir í ClubDub, sem þekkt er fyrir lög eins og bad bitch í RVK, föss­ari, og Fresh Alla Daga, eftir að hinn með­lim­ur­inn, Aron Kristinn Jónasson, gaf út ein­falda til­kynn­ingu á Instagram í gær: „Ég er hættur í ClubDub. Ást og friður.“

Í ræðu sinni á Aust­ur­velli fagn­aði mann­fjöld­inn, sem taldi rúm­lega þús­und manns, þegar Brynjar skaut á fjöl­miðla, gló­balista og múslima, íklæddur umtal­aðri treyju frá Manchester United, auk þess sem hann harm­aði hlut hvíts fólks í umræð­unni. „Þetta er engin fóbía, þetta er raun­veru­legur ótti við raun­veru­legri ógn,“ segir hann meðal ann­ars. „Góð­mennska okkar og umburð­ar­lyndi hafa verið mis­notuð nógu lengi!“ bætti hann við, svo mann­fjöld­inn fagn­aði. Þá tal­aði hann um „upp­sprettu illsk­unnar“.

„Meira ruglið“

Illugi Jök­uls­son, rit­höf­undur og fjöl­miðla­maður, hefur ritað upp ræð­una, sem sjá má hér fyrir neðan.

„Þetta er meira ruglið!“ skrifar fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason undir lýs­ing­una, rétt eins og Pálmi Gestssson leik­ari, sem segir: „Þvílíkt endemis rugl!“

„Þetta er svona google-translate-íslenska,“ segir Guð­mundur Andri Thorsson, rit­höf­undur og fyrr­ver­andi þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar.

Beint í kjöl­far mót­mæla þjóð­ern­is­sinna birti Morg­un­blaðið frétt á mánu­dag um könnun þess efnis að 61% lands­manna teldi „of marga um­sækj­end­ur um alþjóð­lega vernd fái hæli hér á landi“. Er það mikil aukn­ing frá árunum áður, þegar fleiri töldu of fáa fá hæli heldur en of marga.

„Landsmenn sjá vandann“

Í nafn­lausum skoð­ana­dálki Morg­un­blaðs­ins var síðan í dag tekin afstaða með mál­stað þjóð­ern­is­sinn­anna, í grein rit­stjórnar, sem stýrt er af Davíð Oddssyni, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, með fyr­ir­sögn­inni Lands­menn sjá vand­ann. „Við blas­ir að mik­ill meiri­hluti lands­manna er ekki ras­ist­ar, aðeins fólk sem vill verja þau gildi og það góða þjóðfé­lag sem hér hef­ur verið byggt upp. Þeir flokk­ar sem fjærst þjóð­inni stóðu í þess­um mála­flokki duttu af þingi í síð­ustu kosn­ing­um. Ný rík­is­stjórn er hæg­fara í þess­um efn­um og geng­ur ekki í takti við al­menn­ing. Hún þarf að taka á sig rögg áður en meira tjón verður,“ sagði Morg­un­blaðið í stak­steinum í morgun.

Eft­ir­far­andi er lýs­ing Illuga Jök­uls­sonar á ræð­unni, sem hann birti á Facebook-síðu sinni:

„Vinir mínir. Föð­ur­lands­vinir. Ykkar hug­rekki er ekki týnt á mér í dag og ég þakka ykkur öllum djúp­lega fyrir að mæta og sýna sam­stöðu í nafni alls sem er okkur kært og heil­agt.“

Gerir stutt hlé. Fólk klappar.

„Brynjar Bark­ar­son heiti ég en mörg ykkar kann­ast við mig sem tón­list­ar­mann, bæði eftir far­sælan per­sónu­legan feril og sem annar hluti Club Dub. Ég stend hér í dag ekki vegna hat­urs, heldur vegna ástar. Ástar á landi mínu. Menningu minni. Fólkinu mínu. Og fram­tíð barn­anna okkar.“

Klapp.

„Ísland, eins og við þekkjum það, stendur á tíma­mótum. Það sem að við höfum byggt upp í gegnum ald­irnar, tunga okkar, arf­leifð okkar, öryggi okkar, stendur nú frammi fyrir raun­veru­legri ógn. Þau kalla þetta fjöl­menn­ingu. En hvað verður um okkar menn­ingu í þess­ari fjöl­menn­ingu?“

Heil­mikil fagn­að­ar­læti.

„Hver stendur vörð um hana þegar vald­hafar opna landa­mærin án þess að spyrja þjóð­ina?“

Rödd úr hópnum: „Enginn!“

„Þetta snýst ekki um að úti­loka. Þetta snýst um að vernda. Vernda það sem for­feður okkar börð­ust fyrir.“

Heil­mikil fagn­að­ar­læti.

„Það sem við vildum og viljum treysta að verði hér áfram fyrir börn okkar og barna­börn.“

Klappað. Rödd úr hópnum: „Algjör­lega!“

„Íslam ...“

Hópurinn grípur fram í og úar hraust­lega. Rödd úr hópnum: „Á ekki heima hér!“

„Við getum kallað það trú­ar­bragð en við getum líka kallað það hug­mynda­fræði.“

Klapp. Rödd úr hópnum: „Ómenn­ingu!“

„Þessi hug­mynda­fræði stang­ast beint á við okkar hug­myndir ...“

Rödd úr hópnum: „Já!“ Önnur rödd: „Algjör­lega!“

„... og er ógn við lýð­ræði vest­rænna ríkja.“

Mikil fagn­að­ar­læti. Raddir: „Hei, hei, hei, hei!“

„Án þess að fara of djúpt í upp­sprettu illsk­unnar, sem ætlar sér að stýra okkar fal­lega sam­fé­lagi, sem og öllum öðrum, þá eru það gló­balistar, sem toga í alla spotta, svo að hingað streymir í ríkum mæli fólk með aðra sýn, önnur gildi og önnur mark­mið.“

Fagn­að­ar­læti. „Heyr, heyr!“

„Ekki til að styrkja okkur, heldur til að sundra okkur og einn dag­inn stjórna okkur gjör­sam­lega.“

Öflugt klapp og hróp.

„Sögu­þráður þeirra, það er að segja narra­tífan, svo ég sletti, sem þessir komm­ún­istar fram­setja í gegnum hefð­bundna fjöl­miðla, eins og til dæmis RÚV sem allir hér hafa löngu séð í gegnum ...“

Orð ræðu­manns drukkna í háværu úi í garð RÚV. Rödd í hópnum: „Loka RÚV! Loka RÚV!“ og fleiri taka undir. Önnur rödd: „Enga fokk­ing fjöl­miðla!“

„Narra­tífan þeirra, hún er þessi: Hvítt fólk eru bara vondir ras­istar. Kristið fólk er bara óum­burð­ar­lynt með íslamfó­bíu. Þau vilja breyta sög­unni og láta okkur gleyma henni. Ég minni á að við vorum eitt sinn nýlenda. Ég minni á vist­ar­bandið, 600 ára tíma­bil í sögu okkar af því að vera þvinguð til vinnu. Orðið „slave“, það kemur frá orð­inu „Slav“ vegna þess að svo margir Slavar voru fang­aðir, neyddir í þræl­dóm og seldir til Evrópu, og já, Mið­aust­ur­landa. Ég minni á Tyrkjaránið, þrjár gíf­ur­lega skæðar árásir á Ísland af höndum múslima.“

Rödd í hópnum úar á Tyrkjaránið.

„Ég er ekki fastur í for­tíð­inni. Ég geri mér grein fyrir að múslimar í dag áttu ekki aðild í máli. Ég er bara að minna okkur á að við skuldum engum neitt.“

Mikil fagn­að­ar­læti.

„Við eigum ekki að vera með neitt sam­visku­bit að hafa kom­ist á þennan góða stað. Þvert á móti. Við höfum ekki bara lifað af, heldur blómstrað við harðar aðstæður og ættum að vera með ekk­ert nema stolt á okkar dugn­aði og elju.“

Fagn­að­ar­læti.

„Stjórn­mál eru vin­sælda­keppni. Stjórn­mála­fólk ríður ekki af skarið með svo við­kvæm mál­efni nema þau viti að þau hafi með­byr þjóð­ar­innar með sér. Mér leið­ist skelfi­lega hvernig stjórn­mála­fólk okkar dansar í kringum það að ávarpa vand­ann beint.“

Fagn­að­ar­læti.

„Af ótta við að móðga góða fólkið.“

Úað á góða fólkið.

„Það kepp­ist um að minna fólk á að allt ofbeldi sé yfir­höfuð slæmt og finn­ist í öllum hópum. Eins og við vitum það ekki. Og við höfum ekki nóg með okkur sjálf. Okkur sem erum svo miklu skárri í þeim málum hvað ofbeld­is­glæpi varðar.“

Fagn­að­ar­læti, „heyr, heyr“ o.s.frv.

„Málið er að því stjórn­mála­fólki sem hefur ekki verið heila­þvegið eða stýrt af gló­balistum skortir hrein­lega allt bein í nefi og er stýrt áfram af til­finn­ingum en ekki rök­hugsun.“

Heil­mikil fagn­að­ar­læti.

„Þau eru upp­tekin af eigin vel­gegni frekar en vel­megun þjóðar.“

Heil­mikil fagn­að­ar­læti.

„Þau nefna stöðugt að hingað sé að streyma erlend glæpa­gengi . Já. Svo mikið er löngu víst. En það er ekki helsti vand­inn. Og nú ætla ég að ávarpa hann beint. Helsti vand­inn er að hér eru margir menn frá þriðja heims ríkjum með engin tengsli við eitt­hvað glæpa­gengi, annað en auma vina­hóp­inn sinn, sem haga sér allir eins og sjó­ræn­ingjar hér á götum Íslands.“

Fólk úar á þá sem haga sér eins og sjó­ræn­ingjar hér á götum Íslands.

„Þeir koma hingað með lága tíðni. Það sem ég á við með því er að þeir þekkja helst til­finn­ingar eins og reiði, grimmd og öfund­sýki. Engin tak­mörk virð­ast vera fyrir þeirra til­ætl­un­ar­semi.“

Klapp. „Nei, nei,“ heyr­ist í hópnum.

„Enn og aftur, þá er ég ekki að segja að allir múlimar virð­ast hata okkur, neita að aðlag­ast að okkur tungu, siðum, gildum, menn­ingu og hug­myndum, vilja heldur þröngva sínum eigin brengl­uðu kúg­un­ar­hug­myndum á okkur, en þeir eru mjög margir, og ég stend á því, kvitt, Brynjar Bark­ar­son, enda er það löngu, löngu orðið aug­ljóst.“

Fagn­að­ar­læti.

„Hvítt fólk eru bara vondir ras­istar. Kristið fólk er bara óumbyrð­ar­lynt með íslamfó­bíu. Hvorugt þetta er satt. Við erum umburð­ar­lynd eins og við erum góð. Þetta er engin fóbía. Þetta er raun­veru­legur ótti, sem við höfum fyrir mjög raun­veru­legri ógn.“

Fagn­að­ar­læti. „Já!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi