Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Æsilegur eltingarleikur lögreglu endaði með handtöku

Vopnaður maður áreitti dyra­verði og gesti skemmti­staðar.

Æsilegur eltingarleikur lögreglu endaði með handtöku
Lög­reglan að störfum Mikill erill var á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í nótt. Mynd: Lára Garðarsdóttir

Ólíkt og í gær, var mik­ill erill hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu frá 17:00 í gær til 05:00 í morgun en alls gista átta í fanga­geymslu lög­regl­unnar en 99 mál voru bókuð í kerfum hennar. Hér má sjá brot.

Lög­reglu­menn voru að störfum fyrir utan skemmti­stað í miðbæ Reykja­víkur þegar maður nokkur fór að atast í dyra­vörðum og gestum stað­ar­ins. Fékk mað­ur­inn tæki­færi til að fara af vett­vangi og hætta stæl­unum. Þegar hann varð ekki við því eftir ítrekuð fyr­ir­mæli lög­reglu, var hann hand­tek­inn. Á lög­reglu­stöð­inni var aftur gerð til­raun til þess að tala um fyrir mann­inum en án árang­urs. Gisti hann því fanga­klefa yfir nótt­ina.

Til­kynn­ing barst lög­regl­unni á Hverf­is­götu vegna aðila sem skemmt hafi hurð í til­raun sinni til að kom­ast inn í hús­næði. Þegar lög­reglan mætti á vett­vang og ræddi við mann­inn kom í ljós að mað­ur­inn var með vopn með­ferðis. Er málið í rann­sókn.

Ein­stak­lingur var hand­tek­inn eftir að hafa áreitt starfs­menn fyr­ir­tækis. Hafði við­kom­andi fengið fyr­ir­mæli um að fara af vett­vangi en stuttu síðar barst lög­reglu önnur til­kynn­ing um að ein­stak­ling­ur­inn væri aftur far­inn að áreita starfs­menn­ina. Var hann þá hand­tek­inn og fluttur á lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu til við­ræðna. Þar tókst að ná til aðil­ans sem lof­aði að hætta þess­ari hegðun sinni og var hann lát­inn laus úr haldi lög­reglu.

Nokkrar til­kynn­ingar bár­ust vegna þjófn­aðar í versl­unum en ekki reynd­ist nauð­syn­legt að hand­taka neinn vegna þess en öll málin voru leyst með vett­vangs­skýrslu.

Lög­reglan stöðv­aði öku­mann vegna gruns um sölu og dreif­ingu fíkni­efna. Var hann hand­tek­inn og við leit fund­ust fíkni­efni í sölu­ein­ingum ásamt tals­verðum fjár­munum. Var hann vistaður í fanga­klefa í þágu rann­sóknar máls­ins.

Þá hafði lög­reglan afskipti af aðila í miðbæ Reykja­víkur sem til­kynnt hafði verið um á skemmti­stað. Í til­kynn­ing­unni var talað um að hann væri vopn­aður. Aðilinn reyndi að flýja lög­reglu en var hlaup­inn uppi af lag­anna vörðum og hand­tek­inn. Reyndist hann sann­ar­lega vopn­aður og var vistaður vegna ástands.

Ökumaður bif­reiðar gerði óheið­ar­lega til­raun til þess að kom­ast undan lög­reglu þegar hún ætl­aði að hafa afskipti af honum. Ekki tókst honum ætl­un­ar­verk sitt en þegar hann reyndi að hlaupa frá bif­reið­inni var hann hlaup­inn uppi og hand­samaður. Reyndist hann með fíkni­efni og pen­inga með­ferð­ist og er grun­aður um sölu- og dreif­ingu fíkni­efna. Var hann einnig vopn­aður hnífi og verður kærður vegna þess.

Annar öku­maður bif­reiðar reyndi einnig að kom­ast undan lög­reglu en hann ók á ofsa­hraða og braut fjölda umferða­laga áður en lög­reglan náði honum. Reyndist öku­níð­ing­ur­inn vera án öku­rétt­inda og undir áhrifum fíkni­efna en hann var einnig með fíkni­efni með­ferðis.

Lög­reglan sem ann­ast Hafn­ar­fjörð, Garðabæ og Álftanes, var kölluð til eftir að ekið var á gang­andi veg­far­anda. Samkvæmt dag­bók lög­reglu voru meiðslin talin minni­háttar en sjúkra­flutn­inga­menn skoð­uðu þann slas­aða.

Sama lög­reglan stöðv­aði nokkra öku­menn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkni­efna eða áfengis.

Lög­reglan sem starfa í Graf­ar­vogi, Mos­fellsbæ og í Árbænum stöðv­aði tvo öku­menn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkni­efna. Annar þeirra reynd­ist einnig sviptur öku­rétt­indum og hinn hafði fíkni­efni með­ferðis. Voru þeir báðir lausir eftir hefð­bundið ferli.

Þá hand­tók sama lög­regla aðila eftir að hann hafði brotið rúðu. Hafði hann verið að áreita íbúa húss í hverf­inu og var í mjög ann­ar­legu ástandi. Var hann vistaður í fanga­klefa vegna máls­ins.

Að lokum segir frá öku­manni sem virt­ist afar ölv­aður og sam­kvæmt til­kynn­anda var hann búinn að aka utan í ýmis­legt á leið sinni áleiðis um hverfið. Lög­reglan mætti á stað­inn og þegar öku­mann­inum voru gefin stöðv­un­ar­merki reyndi hann að kom­ast undan lög­reglu. Þegar það tókst ekki á bif­reið­inni, reyndi hann að stinga lög­regl­una af á tveimur jafn­fljótum. Reyndist kauði ekki jafn fljótur og lög­reglan sem hljóp hann uppi og hand­tók.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag