Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Palestínski drengurinn sem missti níu systkini sín kominn til Ítalíu

„Ég man allt. Hvert ein­asta smá­at­riði, hverja mín­útu, hvert öskur.“

Palestínski drengurinn sem missti níu systkini sín kominn til Ítalíu
Adam al-Najjar Adam litli slas­að­ist illa í loft­árás Ísraela. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Ellefu ára palest­ínskur drengur, sem slas­að­ist alvar­lega í ísra­el­skri loft­árás sem drap föður hans og níu systk­ini, er kom­inn til Ítalíu í lækn­is­með­ferð.

Adam al-Najjar kom ásamt móður sinni til Linate-flug­vallar í Mílanó á mið­viku­dag, þar sem utan­rík­is­ráð­herra Ítalíu, Antonio Tajani, tók á móti honum og gaf honum fót­bolta. Að því loknu var hann fluttur á Niguarda-sjúkra­húsið í borg­inni til að hefja með­ferð við áverkum sínum.

Adam er sá eini af tíu börnum í fjöl­skyld­unni sem lifði af loft­árás Ísraela á heim­ili þeirra í borg­inni Khan Younis í suð­ur­hluta Gaza þann 23. maí. Systkini hans voru á aldr­inum sjö mán­aða til tólf ára.

Börnin og fað­ir­innNæstum því öll fjöl­skyldan var myrt í einni loft­árás.

Faðir Adams, lækn­ir­inn Hamdi al-Najjar, lést einnig af sárum sínum nokkrum dögum eftir árás­ina. Móðir hans, barna­lækn­ir­inn Alaa al-Najjar, var að störfum á Nasser-sjúkra­hús­inu þegar árásin átti sér stað, einu af fáum sjúkra­húsum sem enn eru starf­andi í suð­ur­hluta Gaza.

Adam hlaut alvar­leg bruna­sár á lík­am­anum í árásinni, að sögn AFP-frétta­stof­unnar. Móðir hans, sem fylgdi honum til Mílanó ásamt frænku Adams og frændsystk­inum, sagði að líðan sonar hennar væri stöðug, en að hann væri með fjöl­marga áverka, meðal ann­ars marg­brot­inn hand­legg.

„Hann er með sár á höfð­inu sem eru að gróa, en vinstri hand­legg­ur­inn er illa far­inn, beinin eru brotin og taugar skadd­aðar,“ sagði hin 36 ára móðir í sam­tali við ítalska dag­blaðið La Repubblica.

Hún sagði að hún ein­beitti sér að bata sonar síns til að forð­ast hugs­anir um þær hörm­ungar sem fjöl­skyldan hafi gengið í gegnum.

„Ég man allt. Hvert ein­asta smá­at­riði, hverja mín­útu, hvert öskur,“ sagði hún við blaðið. „En þegar ég rifja það upp, er sárs­auk­inn of mik­ill. Þess vegna reyni ég að halda hug­anum algjör­lega við Adam.“

Sjúkra­flutn­ingur Adams til Ítalíu kom í kjöl­far ákalls frænda hans í fjöl­miðlum, sem varð til þess að Tajani utan­rík­is­ráð­herra til­kynnti að Ítalía væri reiðu­búin til að aðstoða.

Sextán önnur palest­ínsk börn, ásamt meira en 50 ætt­ingjum þeirra, voru einnig flutt til Ítalíu á mið­viku­dag með her­flug­vélum sem lögðu af stað frá flug­vell­inum í Eilat í Ísrael, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá ítalska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu, sem frétta­stofan Reuters greindi frá. Börnin verða með­höndluð á sjúkra­húsum í borgum á borð við Róm, Flórens og Bologna.

Ítalska rík­is­stjórnin segir að hún hafi hingað til tekið á móti 150 slös­uðum Palest­ínu­mönnum til lækn­inga.

Þó að Ítalía hafi stutt Ísrael opin­ber­lega frá því að árás­irnar á Gaza hófust í októ­ber 2023, hafa stjórn­völd í land­inu síð­ustu mán­uði gagn­rýnt umfang árásanna og lýst yfir áhyggjum af sívax­andi mann­falli.

Samkvæmt Barna­hjálp Sam­ein­uðu þjóð­anna (UNICEF) hafa meira en 50.000 börn annað hvort verið drepin eða slasast í árásum Ísraela.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife