Að minnsta kosti átta manns létust í dag þegar kviknaði í loftbelg með 21 farþega í suðurhluta Brasilíu, samkvæmt ríkisstjóra Santa Catarina fylkis, þar sem slysið átti sér stað.
„Átta látnir og 13 sem lifðu af,“ sagði ríkisstjórinn Jorginho Mello á Twitter.
Myndbönd sem vegfarendur tóku og sýnd voru í brasilískum sjónvarpsstöðvum sýna augnablikið þegar belgnum kviknaði í loftinu yfir strandbænum Praia Grande. Veðurskilyrði voru góð eins og sést í myndböndum af slysinu.
Karfan sem bar farþeganna féll tugum metra til jarðar í ljósum logum. Yfirvöld hafa þegar hafið rannsókn á málinu til að komast að orsök slyssins.
Praia Grande, við Atlantshafsströndina, er vinsæll áfangastaður fyrir loftsbelgflug í Brasilíu. Þetta var annað banaslysið með loftbelg í landinu á aðeins nokkrum dögum. Minna en vika er síðan kona lést í flugi í suðausturhluta Sao Paulo fylkis.































Athugasemdir