Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Kominn fimmtán ára á Litla-Hraun

Stefán Blackburn á slá­andi glæpa- og ofbeld­is­feril að baki, sem virt­ist hafa verið lokið.

Kominn fimmtán ára á Litla-Hraun
Stefán Blackburn Stefán hefur ákærður fyrir að myrða Hjörleif Guð­munds­son Mynd: Víkingur

Einn þeirra þriggja sem nýverið hlaut dóm fyrir að hafa banað manni eftir að hafa rænt honum og kúgað út úr honum fé, er Stefán Blackburn, þekktur síbrota­maður.

Byrjunin

Stefán, sem verður 34 ára í ár, var aðeins 15 ára þegar hann fékk fyrsta dóm­inn á löngum glæpa­ferli sínum. Á fimm ára tíma­bili þegar Stefán var nýorð­inn fimmtán ára, komst hann hvað eftir annað í kast við lögin, meðal ann­ars vegna lík­ams­árása, rána, hót­ana og fíkni­efna­neyslu.

Þriðju­dag­inn 31. okt­o­ber 2006 veitt­ist Stefán með félögum sínum að veg­far­anda á Kleif­ar­vegi í Laug­ar­dalnum, hót­aði honum líf­láti og krafð­ist af honum pen­inga. Stálu þeir Nokia-far­síma af mann­inum. DV sagði frá því að Stefán hefði sagst hafa hótað mann­inum líf­láti, ef hann gæfi þeim ekki pen­ing. Sagði hann ástæð­una fyrir rán­inu hafa verið þá að þeir félag­arnir væru búnir með fíkni­efni sín og af þeim sökum ákveðið að ræna næsta mann sem yrði á þeirra vegi.

Sama dag spark­aði Stefán í bakið á blað­bera í Hjalla­landi en þol­and­inn hlaut roða á vanga og rispur á hálsi. Hótuðu félagar Stefáns mann­inum líf­láti og skip­uðu að afhenda þeim veski sitt. Er hann kvaðst ekki vera með veski með sér, kröfð­ust þeir síma hans og stálu honum.

Rúmum mán­uði síðar, mið­viku­dag­inn 29. nóv­em­ber 2006, reyndi Stefán, í félagi við tvo aðra menn, að ræna heilum hrað­banka úr afgreiðslu Lands­bank­ans við Klett­háls. Reyndu þeir að koma hrað­bank­anum á pall­bíl en hann var að verð­mæti 1,5 milljón króna en alls voru í honum 3.941.000 krónur í reiðufé. Stefán sagði hóp­inn hafa verið á leið á Litla-Hraun að sækja félaga sinn er þeir keyrðu fram­hjá hrað­bank­anum og tekið ákvörðun um að ræna honum. Samkvæmt DV sagði hann alla í bílnum hafa verið rugl­aða en að hann sjálfur hefði aðeins spít­t­aður. Félög­unum mistókst að koma hrað­bank­anum í bíl­inn og urðu því að láta sig hverfa.

Föstu­dag­inn 22. des­em­ber 2006 braust hann í félagi með öðrum inn í grunn­skóla á Selfossi en þaðan stálu þeir mynda­vél, tölvu­bún­aði og fleiri munum sem metnir voru á 407 þús­und krónur.

Árið 2007 byrj­aði ekki vel hjá Stefáni en sunnu­dag­inn 14. jan­úar. Þá stal hann bíl og ók honum rétt­inda­laus frá Reykja­nes­braut við Mjódd að heim­ili sínu á Lang­holts­vegi, hvar hann skildi bíl­inn eftir.

Tveimur vikum síðar, sunnu­dag­inn 28. jan­úar stal Stefán Sony-Ericson-far­síma úr sölu­turni á Akureyri. Tók hann sím­ann af borði í turn­inum og gekk með hann út.

Mið­viku­dag­inn 25. mars hót­aði hann að skera mann á háls. Hafði hann farið með vinum sínum í 10-11 við Setberg í Hafn­ar­firði og krafið starfs­mann versl­un­ar­innar um pen­inga og hót­uðu þeir honum að þeir myndu skera hann á háls. Neyddu þeir starfs­menn til þess að opna tvo pen­inga­kassa og tóku úr þeim 41. þús­und krónur, auk fimm vind­linga­pakka og þrjár DVD-myndir.

Stefán ungur í rétt­ar­sal

Barn í fangelsi

Stefán var að lokum hand­tek­inn og settur í gæslu­varð­hald í Hegn­ing­ar­hús­inu á Skóla­vörðu­stíg. Var hann síðan sendur á ung­linga­heim­ilið að Stuðlum til áfram­hald­andi gæslu en var síðan sendur aftur á Skóla­vörðu­stíg. Stefán fór síðan þaðan á Háholt en vegna end­ur­tek­innar ofbeld­is­hegð­unnar fór hann að lokum á Litla-Hraun, aðeins 15 ára gam­all.

Í febr­úar 2008 hlaut Stefán Blackburn þungan dóm fyrir brot sem hann framdi 16 ára gam­all. Stefán sló leigu­bíl­stjóra í tvígang í höf­uðið með hamri. Hlaut bíl­stjór­inn vefjaskaða og var árásin metin bæði fólsku­leg og gríð­ar­lega hættu­leg. Hlaut Stefán fjög­urra ára fang­elsi fyrir árás­ina og mun fleiri brot sem hið svo­kall­aða Árnes­gengi framdi, þar með taldar tvær lík­ams­árásir auk auðg­un­ar­brots, rána og ránstil­raunar. Mánuði áður hafði hann hlotið 20 mán­aða dóm.

Þann 16. mars 2010 var Stefán síðan dæmdur í 30 daga fang­els­is­refs­ingar vegna þjófn­aðar og í nóv­em­ber 2011 gekkst hann undir við­ur­laga­á­kvörðun vegna umferða­laga­brota.

Í apríl 2012 dæmdi Hér­aðs­dómur Suð­ur­lands hinn tví­tuga Stefán, í 10 mán­aða skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir tvö rán. Í rán­unum ógn­aði Stefán mönnum með hafn­ar­bolta­kylfu en í nið­ur­stöðu dóms­ins sagði að brotin hafi verið alvar­leg og til þess gerð að vekja ótta þol­and­anna.

Þann 21 júní 2013 dæmdi Hér­aðs­dómur Reykja­víkur Stefán í 14 mán­aða fang­elsi fyrir fjár­svik, vopna­laga­brot og umferð­ar­laga­brot. Ók Stefán sex sinnum undir áhrifum ávana- og fíkni­efna. Stefán var einnig vopn­aður hnífi fyrir utan skemmti­stað í miðbæ Reykja­víkur, borg­aði ekki fyrir far með leigu­bíl og stað bif­reið.

Stokkseyrarmálið

Í febr­úar 2014 var Stefán Blackburn dæmdur í sex ára fang­elsi ásamt öðrum síbrota­manni en þrír aðrir hlutu styttri dóm. Um er að ræða hið alræmda Stokks­eyr­ar­mál þar sem fimm­menn­ing­arnir voru kærðir fyrir mann­rán á tveimur mönnum. Málið þótti hið hrotta­leg­asta en menn­irnir sættu bar­smíðum og pynt­ingum. Var annar mann­anna meðal ann­ars stung­inn með skrúfjárni, dúka­hníf og óhreinum sprautu­nálum. Þá var hann einnig skor­inn víða um lík­amann og klippt í eyra hans.

Hinn mað­ur­inn var bar­inn ítrekað með kylfu, hann skor­inn og kveikt var í kyn­færum hans og bringu. Hlaut Stefán Blackburn, líkt og áður segir sex ára dóm fyrir glæp­inn.

Frelsi

Árið 2017 var Stefán laus úr fang­elsi en þurfti að ganga með ökla­band. Síðar það ár var hann aftur kom­inn inn á Litla-Hraun vegna gruns um lík­ams­árás .

Í upp­hafi árs­ins 2018 var Stefán aftur frjáls ferða sinna og virð­ist hafa náð að halda sér á beinu braut­inni síðan, en hann kom sér upp fjöl­skyldu og vann meðal ann­ars sem sjó­maður.

Í mars var hann aftur á móti hand­tek­inn vegna gruns um mann­dráp en maður á sjö­tugs­aldri fannst milli heims og helju á göngu­stíg á Gufu­nes­inu eftir að hafa verið rænt á Þor­láks­höfn, þar sem hann bjó. Maðurinn lést stuttu eftir kom­una á spít­ala.

Stefán var ákærður fyrir mann­dráp í mál­inu en hann neitar sök. Matthías Björn Erlings­son, sem var einnig ákærður fyrir mann­drápið, segir að Stefán og Lúkas Geir Ingv­ars­son hafi platað sig til þátt­töku. Hann hafi ekki vitað hvað hafi verið í gangi fyrr of seint.

Matthías hlaut 14 ára dóm en Lúkas og Stefán fengu 17 ára dóm.

Matthías, Stefán og Lúkas ákváðu allir að áfrýja dómi sínum og var málið tekið fyrir í Lands­rétti.

Fyrir rétti lýsti Stefán eft­ir­sjá varð­andi málið og sagð­ist hafa verið vak­andi 20 sól­ar­hringa fyrir kvöldið umrædda. „Börnin mín eiga ekki pabba núna,“ sagði Stefán meðal ann­ars í rétt­ar­salnum.

Í Lands­rétti var dómur Stefán mild­aður í 16 ár en þann 16. júní 2026 var greint frá því að Stefán hafi ákveðið að áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar.

Stefán Blackburn og Lúkas Geir í Lands­rétti

Uppfært 16. júní 2026

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi