Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hver er Lúkas Geir?

Mannlíf varpar ljósi á son, bróður og dæmdan morð­ingja

Hver er Lúkas Geir?
Lúkas Geir á leið í rétt­ar­sal Var dæmdur fyrir morð í Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands. Mynd: Víkingur

Þann 26. sept­em­ber 2025 var Lúkas Geir Ingv­ars­son dæmdur í 17 ára fang­elsi af Hér­aðs­dómi Suð­ur­lands fyrir morðið á Hjör­leifi Hauki Guð­munds­syni en morðið hefur verið nefnt Gufu­nes­málið í fjöl­miðlum.

Lúkas hefur verið reglu­lega í svið­ljós­inu und­an­farin ár fyrir glæpi og hegðun sína en ekki allir vita hver hann er eða hvaðan hann kemur.

Lúkas Geir er fæddur 28. júlí árið 2003 og er elstur þriggja systk­ina en faðir þeirra rak þekkt fyr­ir­tæki í Reykja­vík. Lúkas ólst upp að mestu leyti í miðbæ Reykja­víkur og Laug­ar­dalnum.

Fyrrum grunn­skóla­fé­lagar Lúkasar sem Mannlíf ræddi við bera honum sög­una vel að mestu leyti. Hann hafi verið nokkuð venju­legt barn sem hafði áhuga á tón­list og að vera með vinum sínum. Mikið hafi farið fyrir honum og hann hafi verið með „trúða­stimpil“ á sér í gegnum skóla­göng­una. Hann hafi ekki verið ofbeld­is­fullur og yfir­leitt ljúfur við annað fólk.

Lúkas lék í tveimur mynd­böndum sem tón­list­ar­mað­ur­inn Mosi gerði

Skóla­fé­lag­arnir segja þó að hann hafi breyst við lok grunn­skóla en þá hafi hann mögu­lega byrjað að fikta við eit­ur­lyfja­notkun. Ekki neinn við­mæl­andi Mannlífs sagð­ist þó hafa séð hann nota fíkni­efni og eru ein­göngu að draga álykt­anir út frá hegðun hans.

Þeir segja einnig að undir lok grunn­skóla og byrjun fram­halds­skóla hafi Lúkas byrjað að umgang­ast annað fólk og hafi að ein­hverju leyti misst sam­band við fólk sem var með honum í grunn­skóla.

Stunginn á Bankastræti Club

Lúkas komst fyrst í frétt­irnar seint árið 2022 þegar hann var að skemmta sér á Banka­stræti Club. Þá varð Lúkas, ásamt tveimur vinum sínum, fyrir árás þar sem rúm­lega 20 ein­stak­lingar réð­ust inn og lömdu og stungu þá með hnífum.

„Svo bara kemur hópur af grímu­klæddum mönnum bara rushar á okkur. Við héldum að þetta væru svona fimmtán þangað til lög­reglan bara sagði við okkur: Svo kemur í ljós að þeir voru 27. Ég held þeir séu bara jealous því við erum með mikla athygli á okkur,“ sagði Lúkas við útvarps­mann­inn Gústa B. í við­tali.

„Í flestum til­vikum þá veistu ekki að þú sért stung­inn fyrr en þú sérð það sjálfur. Ég get sagt þér það að þessir drengir eru búnir að vera með stríð við okkur í svo­lítið góðan tíma. Því þeir vilja vera menn­irnir. Þeir þurfa að vera 27 saman til að ná okkur þremur. Þetta eru bara skít­hælar. Við vorum bara á latino-kvöldi,“ sagði hann einnig við Gústa um stung­una.

„Við erum bara þrír slakir að fá okkur drykk. Erum að fara á kló­settið eða fara út og þá koma þeir allir,“ sagði Lúkas Geir þegar árásin var tekin fyrir í hér­aðs­dómi. „Ég stend upp og sé að ég er allur blóð­ugur, það er bútur hang­andi úr bak­inu á mér“

25 ein­stak­lingar hlutu dóm fyrir málið í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur25 hlutu dóm þar inni.

Dæmdur fyrir líkamsárás meðan hann var í gæsluvarðhaldi

Á meðan Lúkas beið rétt­ar­halda í Gufu­nes­mál­inu var hann dæmdur í fang­elsi fyrir sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás með Tristani Breka Olsen en sú árás átti sér stað árið 2021.

Voru þeir ákærðir fyrir sér­stak­lega hættu­lega lík­ams­árás, með því að hafa í félagi, veist að manni, með því að sparka í bringu manns­ins og með því að sparka í efri búk hans, en mað­ur­inn féll í jörð­ina í kjöl­far þess­ara sparka, og í fram­hald­inu stapp­aði Tristan Breki ofan á höfði fórn­ar­lambs­ins er hann lá varn­ar­laus á jörð­inni og þá gerðu báðir ákærðu til­raun til að sparka í hann þar sem hann lá liggj­andi á jörð­inni, allt með þeim afleið­ingum að hann hlaut hrufl á enni og hægra hand­ar­baki, höf­uð­kúpu­brot, and­lits­beina­brot ásamt mari í vinstri gagn­auga­heila­bleðli með mildri blæð­ingu og opið sár í hár­sverði.

Við yfir­heyrslu hjá lög­reglu neit­aði Lúkas sök og sagði fórn­ar­lambið hafa komið hlaup­andi og dottið í göt­una. Þegar Lúkasi var sýnd upp­taka af árásinni hélt hann því fram að hann hafi verið að afstýra yfir­vof­andi árás fórn­ar­lambs­ins.

Í dómum segir að árásin hafi verið fólsku­leg og grafal­var­leg og mildi að ekki fór verr.

Lúkas var á end­anum dæmdur í sex mán­aða fang­elsi sem var skil­orðs­bundið til tveggja ára.

Bréfaskriftir Lúkasar

Það var þó ekki það eina sem gerð­ist á meðan Lúkas sat í gæslu­varð­haldi en á meðan því stóð yfir skrif­aði Lúkas bréf til með­á­kærða í Gufu­nes­mál­inu, Matth­í­asar Björns Erlings­sonar, þar sem Lúkas bað hann um að taka á alla sök í mál­inu. Bréfið komst þó aldrei til Matth­í­asar en sam­fangi fann bréfið, sem hafði verið skilið eftir fyrir Matthías, og kom því til yfir­valda.

Aftan á bréfið var DON LUFRANO ritað en Lúkas hefur verið kall­aður Luffro í gegnum árin.

Mættu óboðnir á skrifstofur fjölmiðla

Lúkas hefur verið gagn­rýn­inn á umfjöllun fjöl­miðla um sig og þá sem standa honum nærri en í nóv­em­ber 2023 mætti hann ásamt félögum sínum á skrif­stofur íslenskra fjöl­miðla.

Vildu þeir ræða við blaða­menn um hinn svo­kall­aða „Latino-hóp“ sem Lúkas, ásamt öðrum, var sagður vera í. Töldu þeir fram­setn­ingu á þessu vera ósann­gjarna og að þeir væru ekki hluti af neinum sér­stökum hópi og not­uð­ust ekki við neitt nafn til auð­kenn­ingar.

Samkvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs voru þeir kurt­eisir og afslapp­aðir við þá blaða­menn sem þeir ræddu við.

Hvað tekur við?

Þre­menn­ing­arnir sem sak­felldir voru fyrir morðið í Gufu­nes­mál­inu áfrýj­uðu allir dómi sínum til Lands­réttar.

Margrét Valdi­mars­dóttir afbrota­fræð­ingur seg­ist búast við því að þeir muni afplána tvo þriðju til að eiga kost á því að sækja um reynslu­lausn. Mögulega verði þeir fjögur til fimm ár inno á Litla-Hrauni.

„Það eru ekk­ert endi­lega tveir þriðju inni á Litla-Hrauni, það er bara í afplánun. Hve lengi þeir eru þar, finnst mér mynstrið vera jafn­vel þannig að sá tími sé að stytt­ast, að þeir séu að fara fyrr í opið fang­elsi,“ sagði hún við Morg­un­blaðið.

Í Lands­rétti lýsti Lúkas iðrun vegna máls­ins. „Ég myndi ekki fyr­ir­gefa mér ef ég væri í þeirra sporum, mér þykir þetta mjög leitt,“ sagði Lúkas og vís­aði þar til fjöl­skyldu Hjör­leifs.

Þann 13. maí var dómur Lúkasar mild­aður í Lands­rétti í 16 ár en greint var frá því 16. júní að Lúkas hafi tekið þá ákvörðun um áfrýja til Hæsta­réttar.

Uppfært 16. júní 2026

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Innlent

Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ