Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bubbi hjólar í stórútgerðirnar

„Þessi ofsa ríka yfir­stétt sér ofsjónum yfir þessu hræði­lega órétt­læti og finnst allir kvarta og kveina.“

Bubbi hjólar í stórútgerðirnar
Bubbi Morthens Bubbi er síður en svo sáttur.

Bubbi Morthens lætur stór­út­gerð­irnar hafa það óþvegið í færslu sem hann birti á Facebook í gær.

Tón­list­ar­goð­sögnin Bubbi Morthens er þekktur fyrir að láta í sér heyra annað veifið þegar honum blöskrar eitt­hvað í sam­fé­lag­inu og það var einmitt það sem var að ger­ast.

Bubbi, eins og fjöl­margir lands­menn, er afar ósáttur við aug­lýs­inga­her­ferð stór­út­gerð­anna sem birst hafa í sjón­varp­inu und­an­farið. Segir Bubbi útgerð­irnar reyna að „villa um fyrir lands­mönnum“ með her­ferð­inni.

„Þau segja Rík­i­s­tjórnin hlustar ekki á okkur
Hvenær hlust­uðu þau á fólkið í land­inu.

Stór­út­gerðin hefur lagt af stað í her­ferð til þess að reyna villa um fyrir lands­mönnum og leyna þeirri stað­reynd að loks hefur sitj­andi rík­is­stjórn tekið þá ákvörðun að gera hóf­stillta kröfu um auð­lind­ar­gjald fyrir kvót­ann. Hann er þjóð­ar­eign sem ákveð­inn hópur útvaldra fjöl­skyldna og fyr­ir­tækja hefur í hendi sér og lítur ískalt á að sé sín eign og hann megi fara með kvót­ann að vild. Þessi ofsa ríka yfir­stétt sér ofsjónum yfir þessu hræði­lega órétt­læti og finnst allir kvarta og kveina.“

Segir Bubbi ríki­dæmi sægreif­anna vera „stjarn­fræði­legt“ og að þeir séu komnir með ítök langt út fyrir fisk­vinnslu eða skipa­rekstur.

„Auður þessa fólks er stjarn­fræði­legur. Þau hafa notað part af auði sínum til þess að kaupa fyr­ir­tæki með öllu óskyld sjáv­ar­út­vegi og eru komin með ítök langt út fyrir fisk­vinnslu eða rekstur á skipum sínum. Kvótinn er eitt en að væla yfir því að þetta sé skattur á þorp lands­ins er í besta falli bull. Stór­út­gerðin hefur ryksugað upp kvót­ann í þorpi eftir þorp og skilið eftir sviðna jörð og nú eyðir kvóta­gengið millj­ónum í sjón­varps­aug­lýs­ingar til þess að reyna að telja okkur trú um að það sé verið að setja skatt á lands­byggð­ina. Kvóta­lán­þegar hafa lagt lands­byggð­ina undir hramm­inn sinn lengi lengi en í stað­inn fyrir að stíga fram og segja: við borgum með glöðu geði, takk fyrir okkur, þá tryll­ast þau bak­við tjöldin og fara í stríð. Þessi fyr­ir­tæki, þetta fólk er með slíkan auð í hirslum sínum að engu er til að jafna, en að borga til baka til sam­fé­lags­ins - nei! Við viljum og ætlum okkur ekki að borga þó svo við getum það létti­lega!“

Að lokum kemur Bubbi að því sem hann kallar „stað­reynd máls­ins“, græðgina.

„Og þá komum við að stað­reynd máls­ins: ef við strípum þetta niður í kjarn­ann, hvað er þá að hjá þessu gengi? Jú, hrein og klár græðgi. Ekkert annað.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi