Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auglýsing vekur hneykslun: „Græða helling af peningum“

„Korter í sið­leysi,“ segir kvik­mynda­gerð­ar­maður.

Auglýsing vekur hneykslun: „Græða helling af peningum“
Úr aug­lýs­ing­unni „Hér er mögu­leiki á að græða hell­ing af pen­ingum,“ segir norskur auð­maður í aug­lýs­ing­unni, en Ragnar Bragason kvik­mynda­fram­leið­andi telur það flokk­ast undir „freu­dian slip“. Mynd: Facebook / SFS

„Skelfi­leg aug­lýs­ing,“ segir kvik­mynda­gerð­ar­mað­ur­inn Ragnar Bragason kvik­mynda­gerð­ar­maður um nýj­ustu klippu Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), sem er talin minna á norsku þátta­röð­ina Exit.

Aug­lýs­ing SFS er and­svar við frum­varpi rík­is­stjórn­ar­innar um að reikna veiði­gjöld af mark­aðsvirði afla en ekki sölu­verð­mæti í eigin við­skiptum útgerða við eigin fisk­vinnslu.

Aug­lýs­ing­unni er ætlað að benda á góðan árangur íslensks sjáv­ar­út­vegs í full­vinnslu á sjáv­ar­af­urðum. Þar hæð­ast tveir norskir útgerð­ar­menn að hug­mynd­inni um að Íslend­ingar horfi til „norsku leið­ar­innar“ í útgerð, þar sem fisk­veiðar og fisk­vinnsla eru í aðskildu eign­ar­haldi.

Minni á firringu bankahruns

„Klént og illa afgreitt hand­rit en hefur samt kostað hálfan hand­legg í fram­leiðslu,“ segir Ragnar Bragason um aug­lýs­ing­una. „Kald­hæðn­is­leg­ast er að það er “freu­dian slip” í leiktexta, eða: “Hér er mögu­leiki á að græða hell­ing af pen­ingum” sem gæti verið slogan fyrir verstu afleið­ingar kvóta­kerf­is­ins, þ.e hrun margra smárra sjáv­ar­þorpa á lands­byggð­inni vegna græðgi er fram­kvæmd var undir merkjum „hag­ræð­ingar“.“

„SFS er að eyða tugum ef ekki hund­ruðum millj­óna í aug­lýs­inga­her­ferð(ir) og áróður fyrir mál­stað sem ENGIN nema frændi þeirra hefur samúð með. Áróður sem er byggður á rang­hug­myndum, rang­færslum og er korter í sið­leysi. Þetta minnir á það allra versta sem var í gangi í bruðli og veru­leika­fyrr­ingu á tíma­bil­inu fyrir banka­hrun.“

Ragnar ólst upp á Súðavík til 11 ára ald­urs og þekkir því að búa í brot­hættri sjáv­ar­byggð. „Þar stendur heilt frysti­hús nán­ast ónotað,“ segir Ragnar um þorpið sitt.

Norska leiðin

Með aug­lýs­ing­unni vill SFS leiða umræð­una að kerf­inu í Noregi, þar sem fisk­veiðar og fisk­vinnsla eru lög­bundið aðskilin. Á Íslandi hafa útgerðir hins vegar gjarnan rekið sína eigin vinnslu. Með því hafa þær náð að lág­marka greiðslu á veiði­gjöldum. Aðferðin er sú að útgerðin veiðir fisk­inn og selur á und­ir­verði til eigin fisk­vinnslu. Önnur áhrif eru að með því fá sjó­menn­irnir greidd lægri laun, þar sem þeir fá hlut í afla­verð­mæt­inu sem útgerðin selur frá sér.

Útgerð­ar­fé­lögin vilja hins vegar meina að með því að halda allri virð­is­keðj­unni hjá sér geti þau full­nýtt fisk­inn. Einnig að afla verði ekki landað á Íslandi, vegna þess hversu há laun eru hér á landi, ef honum er ekki landað hjá tengdum aðila eða fisk­vinnslu í eigu útgerð­ar­innar.

Lýsi hf. sagði til dæmis nýlega í umsögn sinni um frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar að fram­leiðslan gæti þurft að kaupa þorskalifur frá útlöndum, ef útgerðir þyrftu að greiða hærra veiði­gjald, þar sem þær myndu ekki landa afl­anum hér­lendis.

Boða að fiski verði landað erlendis

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, hefur gengið svo langt að segja að íslenskur sjáv­ar­út­vegur muni líta allt öðru­vísi út eftir eitt ár ef áform rík­is­stjórn­ar­innar verða að veru­leika, en þau þýða að veiði­gjöld hefðu farið úr 10 millj­örðum í 20 millj­arða. „Það er stefnt mjög ákveðið að því að færa vinnsl­unni úr landi, það er ljóst. Það er mjög stutt yfir hafið,“ sagði hann þegar frum­varpið var kynnt.

„Engin breyt­ing verður á útreikn­ingi veiði­gjalds og mun útgerðin áfram halda 67% af hagn­aði veið­anna en greiðir 33% af hagn­að­inum fyrir afnot af auð­lind­inni,“ sagði í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um frum­varpið, en með því er breyt­ingin sú að mark­aðs­verð verður grunnur fyrir útreikn­ing veiði­gjalds­ins en ekki sölu­verðið í eigin við­skiptum útgerðar eða tengdra aðila.

„Alger­lega óskilj­an­leg aug­lýs­ing“
Egill Helgason fjöl­miðla­maður

Fleiri hafa gagn­rýnt aug­lýs­ing­una, meðal ann­ars stjórn­ar­þing­mað­ur­inn Jón Gnarr og fjöl­miðla­mað­ur­inn Egill Helgason. „Alger­lega óskilj­an­leg aug­lýs­ing,“ segir sá síð­ar­nefndi, en fram­kvæmda­stjóri SFS, Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, svarar honum: „Er það ekki ein­kenni­legt að þú og fleiri fjasið yfir formi en ekki efni? Hvernig væri að ræða efni máls­ins, norsku leið­ina sem ráð­herra vill fara? Minni verð­mæta­sköpun, minni nýsköpun, hrá­efni flutt til Póllands óunnið, ósjálf­bærar fisk­vinnslur í Noregi o.s.frv.? Af nægu er að taka - jafn­vel ríf­lega 60 blað­síður af hug­leið­ingum frá SFS og þrjár álits­gerðir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara