Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

„Alvarleg ógn við tilvist Lýsi“

Eigendur Lýsis segja að vegna hærri veiði­gjalda verði ekki hægt að fá þorskalifur, roð og fleira.

„Alvarleg ógn við tilvist Lýsi“
Lýsi Gæti hætt að vera til - ef marka má umsögn Lýsis hf. við frum­varp um breyt­ingu veiði­gjalds. Mynd: Lýsi

Lýsi hf, sem hagn­að­ist um rúman millj­arð 2023 fyrir skatta og hálfan millj­arð árið áður, dregur upp dökka mynd af ástand­inu ef frum­varp um breytt veiði­gjöld verður sam­þykkt á Alþingi. Þar með bæt­ist félagið í hóp Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi og Þor­steins Más Bald­vins­sonar, ásamt fleiri útgerð­ar­mönnum, sem hafa boðað efna­hags­legt tjón verði þeir látnir greiða meira fyrir afnot af auð­lind­inni.

Fulltrúi Lýsis full­yrðir að frum­varp um breyttan útreikn­ing veiði­gjalds geti gert ómögu­legt að ná í hrá­efni, meðal ann­ars fyrir vinnslu lýsis. Þar með talið er lifur úr þorski, ufsa og ýsu, asfk­urðir, fisk­hausar, hryggir, roð, svil og slóg.

Með breyttum útreikn­ingnum á veiði­gjaldi fyr­ir­huga atvinnu­vega- og fjár­mála­ráð­neytið að veiði­gjald verði reiknað út frá mark­aðsvirði sjáv­ar­afla, frekar en verði sem mynd­ast í eigin við­skiptum útgerða milli fisk­veiði- og fisk­vinnslu­hluta þeirra. Með þessu er áætlað að 10 millj­arðar króna hefðu verið greiddir í veiði­gjöld í fyrra umfram fyrri reikni­reglu. Við svo búið segj­ast sumir útgerð­ar­menn flytja fisk­inn óunnin úr landi. „Það er stefnt mjög ákveðið að því að færa vinnsl­una úr landi, það er ljóst. Það er mjög stutt yfir hafið,“ sagði Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, í sam­tali við Fiski­fréttir.

Ráð­herrarHanna Katrín Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra og Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra segja að útgerðin haldi 67% af hagn­aði veiða en greiði 33% í afnota­gjald af auð­lind­inni.

Þorskalifur flutt inn frá útlöndum?

Eigendur Lýsis segja í umsögn sinni um frum­varpið að ekki verði til hrá­efni í lýs­is­vinnslu eftir að útgerðir því sem næst hætti vinnslu afla hér­lendis.

„Verði til­laga frum­varps um auknar álögur stjórn­valda á sjáv­ar­út­veg­inn að raun­veru­leika, má búast við veru­legum sam­drætti í fram­boði þess­ara auka­af­urða sem Lýsi hf. byggir sína til­veru á. Fyrirséð er að útgerð muni hafa meiri arð­semi af því að flytja afl­ann óunnin úr landi vegna veru­lega lak­ari sam­keppn­is­að­stöðu við vinnslu á fiski hér á landi. Líklegt er að stór hluti bol­fisks verði unn­inn á sjó eða fluttur úr landi sem hrá­efni til vinnslu í nið­ur­greiddum sjáv­ar­vinnslum í Evr­ópu­löndum og víðar. Ólíklegt má telj­ast að Lýsi hf. tak­ist að ná auka­af­urðum af þessum fiski aftur til Íslands til vinnslu með til­heyr­andi kostn­aði,“ segir í umsögn Lýsis hf.

Þannig gera eig­endur Lýsis ráð fyrir því að flytja þurfi inn þorskalifur og fleira, vegna þess að útgerðir muni ekki vinna afla á Íslandi lengur.

„Lýsi hf. hefur mark­aðs­sett vörur sínar sem íslenskar í flestum til­fellum, þær eru fram­leiddar hér á landi með end­ur­nýt­an­legri orku og að hrá­efnin séu frá vott­uðum fisk­veiðum. Þessi sér­kenni okkar leiða því til þess að það má telj­ast því sem næst óger­legt fyrir okkar fyr­ir­tæki að sækja flest hrá­efni til okkar fjöl­þættu vinnslu erlendis frá. Áætlanir stjórn­valda eru því alvar­leg ógn við til­vist Lýsi hf. eftir 87 ára þró­un­ar­vinnu og upp­bygg­ingu á vinnslu og mörk­uðum fyrir auka­af­urðir úr íslenskum sjáv­ar­út­vegi.“

300 milljóna króna arður

Lýsi greiddi 237 millj­ónir króna í tekju­skatt 2023 af hagn­aði sem nam rúmu millj­arði, eða 1.055 millj­ónum króna. Félagið greiddi 300 millj­ónir króna í arð í fyrra.

Lýsi er eig­andi í 28 öðrum félögum, þar á meðal útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins, Ísey Skyrbar, auk nýsköp­un­ar­fyr­ir­tækja í nýt­ingu sjáv­ar­af­urða. Félagið skuld­aði 4,4 millj­arða króna um ára­mótin 2023 og 2024, þar af að lang­mestu leyti í öðrum gjald­miðlum en krónu, á móti 7,7 millj­arða króna fasta­fjár­munum.

Helstu eig­endur Lýsis eru Katrín Pét­urs­dóttir, með 54% hlut, Gunn­laugur Sævar Gunn­laugs­son með 24% hlut og Erla Katrín Jóns­dóttir með 13% hlut.

Frumvarp um breyt­ingu veiði­gjalds var lagt fram af Hönnu Katrínu Frið­riks­son atvinnu­vega­ráð­herra í sam­vinnu við fjár­mála­ráðu­neyti Daða Más Krist­ó­fers­sonar. Ein af for­sendum frum­varps­ins er að ríf­lega 10 millj­arða króna veiði­gjald, sem nú er, dugi ekki fyrir 11 millj­arða króna kostn­aði af þjón­ustu rík­is­ins við sjáv­ar­út­veg. Þá er hins vegar ekki tekið til­lit til marg­feld­is­á­hrifa og ann­arrar skatt­heimtu, eins og tekju­skatt starfs­fólks og fyr­ir­tækja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara