Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Lýsir 70 milljarða hagnaði sínum og varar við veiðigjöldum

For­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar er ósáttur við til­raunir til að hækka veiði­gjöld, eins og hann var árið 2012.

Lýsir 70 milljarða hagnaði sínum og varar við veiðigjöldum
Gunnþór Ingvason For­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar stóð í stafni bar­áttu gegn hærri veiði­gjöldum 2012 og aftur nú rúm­lega 80 millj­örðum króna síðar. Mynd: Síldarvinnslan

„Frá árinu 2014 hefur Síld­ar­vinnslan hagn­ast um 70 millj­arða króna,“ segir Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar, í bréfi sínu til hlut­hafa, þar sem hann segir frum­varp rík­is­stjórn­ar­innar um hækkun veiði­gjalda „van­hugs­aðar og illa útfærðar til­lögur um skatta­hækk­anir sem ekki þola skoðun“.

Í bréfi sínu til hlut­hafa sem birt er á Facebook - og er aug­lýst fyrir Íslend­ingum - gerir Gunnþór til­raun til að svara þeim rök­semdum ráð­herra rík­is­stjórn­ar­innar að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki og eig­endur þeirra hafi öðl­ast yfir­ráð yfir stórum hluta íslensks við­skipta- og atvinnu­lífs með hagn­aði af nýt­ingu auð­lind­ar­innar. Frumvarp atvinnu­vega­ráð­herra um breyttan útreikn­ing veiði­gjalda er talið munu tvö­falda veiði­gjöldin sem útgerðir greiða úr 10 millj­örðum króna á ári í 20 millj­arða, ef miðað er við síð­asta ár.

Gunnþór segir að Síld­ar­vinnslan hafi aðeins einu sinni fjár­fest í ótengdum rekstri. Þá hafi félagið verið beðið um að fjár­festa í Sjóvá. Samtals keypti Síld­ar­vinnslan fyrir einn og hálfan millj­arð í trygg­ing­ar­fé­lag­inu, en afhendi síðan eig­endum félags­ins eign­ar­hlut­inn þegar Síld­ar­vinnslan var skráð í Kaup­höll­ina 2021. „Í milli­tíð­inni höfðu kaupin feng­ist til baka í formi arð­greiðslna,“ segir Gunnþór. Þannig fengu eig­end­urnir hlut­inn í Sjóvá upp í hend­urnar án greiðslu.

Gunnþór lýsir því að Síld­ar­vinnslan hafi fjár­fest fyrir 80 millj­arða króna, eða 32 millj­arða króna í afla­heim­ildum og sjáv­ar­út­vegs­fé­lögum, fyrir 14,4 millj­arða í fisk­eld­is­fé­lag­inu Arctic Fish á Vest­fjörðum, 19 millj­arða í skipum og 14,6 millj­arða í fast­eignum og tækja­bún­aði.

Þá hefur Síld­ar­vinnslan lagt 200 millj­ónir króna „í verk­efni í heima­byggð“. Þau eru kaup á Hótel Hildi­brand í Nes­kaup­stað, fast­eigna­fé­lag­inu Miðási og svo kaup á jörð­inni Fann­ar­dal til kolefn­is­jöfn­unar með trjá­rækt.

„Ein­hverra hluta vegna kjósa ráða­menn að fara fram með van­hugs­aðar og illa útfærðar til­lögur um skatta­hækk­anir“
Gunnþór Ingvason, for­stjóri Síld­ar­vinnsl­unnar

„Það er háð mikil orra­hríð gegn sjáv­ar­út­vegi nú um stundir. Ein­hverra hluta vegna kjósa ráða­menn að fara fram með van­hugs­aðar og illa útfærðar til­lögur um skatta­hækk­anir sem ekki þola skoðun, í stað rök­stuðn­ings og gagna. Farið er fram með rangar stað­hæf­ingar um afkomu sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja og fjár­fest­ingar þeirra gerðar tor­tryggi­legar. Má til dæmis nefna full­yrð­ingu atvinnu­vega­ráð­herra nýverið um 100 millj­arða fjár­fest­ingar sjáv­ar­út­vegs í óskyldum atvinnu­rekstri,“ segir Gunnþór. Yfirferð hans náði hins vegar ekki til sjáv­ar­út­vegs­ins í heild sinni heldur ein­göngu Síld­ar­vinnsl­unnar.

Gunnþór Ingvason var einn þeirra sem stóð í stafni gegn til­raunum til að hækka veiði­gjöld árið 2012, hjá rík­is­stjórn Vinstri grænna og Sam­fylk­ingar. Á borg­ara­fundi í Nes­kaup­stað með Stein­grími J. Sig­fús­syni, þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, lýsti hann því að frysti­tog­ari yrði tek­inn úr útgerð og 24 myndu missa vinn­una. „Allir munu tapa. Starfs­menn munu tapa, eig­endur munu tapa, fyr­ir­tæki sem vinna með okkur munu tapa, þjóðin mun tapa,“ sagði hann. Þá birti hann myndir af börnum sínum á skjá á fund­inum. „Gerum þetta þannig að hún færi börn­unum okkar líka fram­tíð,“ sagði hann.

Það árið, 2012, hagn­að­ist Síld­ar­vinnslan um 56 millj­ónir Banda­ríkja­dala, eða um 7 millj­arða króna. Félagið gerir upp í Banda­ríkja­dal, eins og algengt er með útgerðir. Árið eftir var hagn­að­ur­inn á sjötta millj­arð króna. Sam­an­lagður hagn­aður frá þeim tíma er því um 83 millj­arðar króna að nafn­virði. Stærsti eig­andi Síld­ar­vinnsl­unnar er útgerð­ar­fé­lagið Samherji, sem á tæp­lega þriðj­ungs­hlut.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Peningar

Peningar

Íslands­banki stefnir Hús­vík­ingi vegna láns sem tekið var í appi

Sagður skulda milljónir
  • Peningar

    Þriggja millj­arða hagn­aður hjá móð­ur­fé­lagi Össurar

  • Peningar

    Páll Stein­gríms stofnar fyr­ir­tæki

  • Peningar

    Lög­manns­stofa gjald­þrota með rúm­lega 120 millj­ónir króna í kröfur

  • Peningar

    Stór hlut­hafi Ölgerð­ar­innar tekur Kveik mjög alvar­lega

  • Peningar

    Stór­meist­ar­inn Vignir Vatnar stofnar Stór­meist­ara