Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Hann er búinn að þjálfa krakka með því að spila linnulaust útum allan bæ“

Reyk­vík­ingur árs­ins 2025 er Ingi Garðar Erlends­son stjórn­andi Skóla­hljóm­sveitar Vest­ur­bæjar og Miðbæjar

„Hann er búinn að þjálfa krakka með því að spila linnulaust útum allan bæ“
Heiða Björg borg­ar­stjóri og Ingi Garðar Undirbúa veiði Mynd: Reykjavíkurborg

Það var Heiða Björg Hilm­is­dóttir borg­ar­stjóri sem til­kynnti um valið á bökkum Elliðaár í morgun, en þetta er í 15. sinn sem Reyk­vík­ingur árs­ins er val­inn.

Reyk­vík­ingur árs­ins var útnefndur í fyrsta sinn árið 2011.

Til­gang­ur­inn var að leita að ein­stak­lingi sem hefur, með hátt­semi sinni eða atferli, verið til fyr­ir­myndar á ein­hvern hátt og þakka fyrir þeirra fram­lag.

Ingi Garðar hefur stýrt Skóla­hljóm­sveit Vest­ur­bæjar og Miðbæjar frá árinu 2019.

Ingi Garðar er básúnu­leik­ari og tón­list­ar­kenn­ari með BA próf og MA próf í tón­smíðum og diplóma í hljóð­fræði. Hann er tón­skáld og hefur meðal ann­ars unnið útsetn­ingar fyrir hljóm­sveitir.

Óskað var eftir til­nefn­ingum um Reyk­vík­ing árs­ins í byrjun maí, og um miðjan júní var farið yfir til­nefn­ing­arnar og tekin ákvörðun um að veita Inga Garðari tit­il­inn.

Í til­nefn­ingum kom meðal ann­ars fram að hann haldi úti stór­kost­legu starfi og sé sann­kölluð fyr­ir­mynd fyrir börnin og þau sem að starfi hljóm­sveit­ar­innar koma. Enn­fremur segir að Ingi Garðar hafi ávallt mætt nem­endum sínum með skiln­ingi og hann skapi umhverfi þar sem börnin eru metin að verð­leikum og geti blómstrað sem tón­list­ar­fólk.

Undir stjórn Inga Garðars hafa nem­endur fengið margs­konar tæki­færi til þess að koma fram og spila. Þau spil­uðu á sviði í Borg­ar­leik­hús­inu í leik­rit­inu Fía Sól gefst aldri upp og einnig í dans­verk­inu Hringir Orfeaus­arog annað slúður eftir Ernu Ómars­dóttur, sömdu tón­verk og fluttu við opnun tón­list­ar­há­tíð­ar­innar Myrkir Mús­ík­dagar og komu fram með hljóm­sveit­inni Sigur Rós í Laug­ar­dals­höll svo eitt­hvað sé nefnt.

Í lok maí mán­aðar voru svo tón­leikar haldnir í Háskóla­bíói þar sem Skóla­hljóm­sveit Vestur- og Miðbæjar undir stjórn Inga Garðars, Benni Hemm Hemm og Kórinn leiddu saman hesta sína í til­efni af því að 20 ár voru liðin frá útgáfu fyrstu plötu Benna.

Sú plata, sem bar ein­fald­lega nafnið Benni Hemm Hemm inni­hélt 12 lög og kom út árið 2005.

Platan var flutt í heild sinni fyrir fullu húsi á tón­leik­unum í Háskóla­bíói.

Tón­list­ar­mað­ur­inn Benni Hemm Hemm segir að það sem Ingi Garðar Erlends­son sé að gera með Skóla­hljóm­sveit Vest­ur­bæjar og Miðbæjar sé stór­virki og eigi eftir að verða goð­sagna­kennt dæmi þegar fram líða stundir.

„Hann gaf sér mánuð til að æfa upp alla fyrstu Benna Hemm Hemm plöt­una, sem er full­kom­lega óraun­hæft plan fyrir skóla­hljóm­sveit. Hann er búinn að þjálfa þessa krakka upp með því að spila linnu­laust útum allan bæ - með hljóm­sveitum, á leik­sviði, á elli­heim­ilum, á leik­skólum, á vor­há­tíðum og svona er hægt að telja enda­laust. Afrakst­ur­inn er sá að þessi hljóm­sveit getur fengið lög í erf­iðum tón­teg­undum, með sífelldum takt­teg­unda­skiptum og ég veit ekki hvað - og spilað bara beint á fyrstu æfingu. Og þau geta ekki bara spilað sig í gegnum lögin, heldur ná þau í örfáum atrennum að finna rétta fílíng­inn og spila ótrú­lega vel. Þetta er flott tón­list­ar­fólk með frá­bæran stjórn­anda“, segir Benni Hemm Hemm.

Reyk­vík­ingur árs­ins var að vonum ánægður með tit­il­inn.

„Útnefn­ingin kom mér mjög á óvart, og það er virki­lega ánægju­legt að fá við­ur­kenn­ingu fyrir starfið sitt og þetta mun örugg­lega hvetja mig áfram. En þetta er líka gef­andi starf og ég vil þakka frá­bæru krökk­unum í skóla­hljóm­sveit­inni, þau eiga stóran hlut í þess­ari við­ur­kenn­ingu ásamt sam­starfs­fólk­inu mínu auð­vitað, öllum hljóð­færa­kenn­ur­unum og þá sér­stak­lega Svan­hildi Lóu Berg­sveins­dóttur sem er með mér í hljóm­sveit­ar­starf­inu og mín hægri hönd.“ segir Ingi Garðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu