Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Austfirðingur í eldlínunni: Tæplega tvö ár við gosbrúnina

Kraki Ásmunds­son stóð vakt­ina við að reisa varn­ar­garða við Grinda­vík við erf­iðar aðstæður

Austfirðingur í eldlínunni: Tæplega tvö ár við gosbrúnina
Kraki Ásmunds­son Kraki stóð vakt­ina við erf­iðar aðstæður Mynd: Aðsend

Kraki Ásmunds­son frá Heykolls­stöðum í Hró­ars­tungu er einn af þeim fáu sér­hæfðu vinnu­véla­stjórn­endum sem hafa und­an­farin ár unnið að því að hlaða upp varn­ar­garða við Grinda­vík vegna eld­gosa sem þar hófust í lok árs 2023. Hann var þar við störf allt þar til ára­mótin síð­ustu.

Kraki Ást­munds­sonKraki fyrir framan gröf­una

Kraki var með þá reynslu og rétt­indi sem þurfti til að stjórna þeim stóru jarð­ýtum sem verk­efnið krafð­ist og brást skjótt við þegar eftir honum var leitað. Það leiddi til þess að hann vann nán­ast linnu­laust í um tvö ár, fjarri fjöl­skyld­unni á Aust­ur­landi.

„Það var spenn­andi að taka þátt í þessu til að byrja með en maður fór að hugsa sitt þegar 70 tonna jarð­ýtan sem ég var á hrist­ist öll og skalf eins og skopp­ara­kringla,“ segir Kraki í við­tali við Aust­ur­frétt. „Ég var til­tölu­lega nýbyrj­aður í vinnu fyrir þetta fyr­ir­tæki þegar kallið kom og á auga­bragði var ég far­inn að ýta jarð­vegi í garða í brenn­andi hita við hlið goss­traums. Hárin á hausnum risu sann­ar­lega á köflum fyrstu dag­ana en eftir um það bil viku­tíma þá fór þetta allt að venj­ast eins og annað.“

Aðstæður voru oft krefj­andi að sögn Kraka. „Við vorum stundum að vinna svo nálægt gló­andi hraun­straumnum að hita­stigið inni í ýtunni náði alveg 40 stigum. Sjálfur er ég afskap­lega lítið fyrir mik­inn hita svo það var óþægi­legt.“

Þó að hann hafi van­ist hætt­unni með tím­anum, segir Kraki að fyrstu dag­arnir hafi verið óneit­an­lega skelfi­legir. „Hræðsla var sann­ar­lega fyrir hendi fyrstu dag­ana þó svo það hafi van­ist þegar á leið. Sjálf vinnan var skemmti­leg að mestu og stundum dálít­ill hasar í gangi ef hraun­straumur breytti um stefnu eða eitt­hvað slíkt. Þetta er eft­ir­minni­leg lífs­reynsla, að vera með í þessu.“

Um síð­ustu ára­mót hætti hann störfum við varn­ar­garð­ana og sneri aftur heim til fjöl­skyld­unnar. Hann tók þá til starfa sem bíl­stjóri hjá Kubbi, sem sér nú um sorp­hirðu í Múla­þingi. Á heim­ili þeirra á Heykolls­stöðum rekur fjöl­skyldan einnig lít­inn búskap.

Hægt er að lesa lengri útgáfu af við­tal­inu í Aust­ur­glugg­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil