Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Árni og Guðrún opnuðu sambandið í fyrra

„Fyrstu skrefin voru mjög erfið”

Árni og Guðrún opnuðu sambandið í fyrra
Árni Björn Krist­jáns­son Árni ræðir opin­skátt við Sölva í nýju við­tali Mynd: YouTube-skjáskot

Árni Björn Krist­jáns­son, fast­eigna­sali og vaxt­ar­rækt­ar­maður, segir þá lífs­reynslu að eiga lang­veikt barn vera eitt­hvað sem ekki sé hægt að skilja nema upp­lifa það. Árni, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur vakið athygli fyrir að feta ótroðnar slóðir á sam­fé­lags­miðlum, þar sem hann hefur birt mynd­bönd af sér nöktum, grát­andi, dans­andi og talað á ein­lægum nótum um and­lega erf­ið­leika:

„Sumt af þessu virð­ist stuða fólk, en aðrir eru mjög ánægðir og senda manni stuðn­ing og góð við­brögð. Mér hefur alltaf fund­ist gaman að vera ekki eins og allir aðrir og þora að fara mínar eigin leiðir. En það virð­ist stuða sumt fólk mikið ef maður þorir að vera öðru­vísi. Ég held það sé oft­ast þannig að ef eitt­hvað trig­gerar mann mikið hjá öðru fólki snýr það að eigin óör­yggi og ein­hverju sem maður þyrfti kannski að skoða hjá sjálfum sér. Mest af þessu er jákvætt, en ég og konan mín verðum alveg vör við það að sumt fólk í kringum okkur hefur verið að slúðra og finnst þetta skrýtið. Við höfum alveg heyrt af því að fólk sé að spyrja: „Hvað er í gangi með Árna? Hvað er í gangi með Árna og Guðrúnu? Er ekki allt í lagi hjá þeim?“. 

Árni og Guðrún hafa verið saman í fimmtán ár og eiga þrjú börn. Dóttir þeirra, sem nú er 12 ára hefur glímt við mikil veik­indi alveg frá fæð­ingu. Árni segir erfitt að lýsa þeirri reynslu að eiga lang­veikt barn:

„Það að eiga lang­veikt barn er eitt­hvað sem eng­inn skilur nema þeir sem ganga í gegnum það og hafa upp­lifað það. Þegar ég hitti annað fólk sem á sömu lífs­reynslu ger­ist eitt­hvað, þar sem báðir aðilar skilja hvað hinn hefur upp­lifað. Ég fer nán­ast að tár­ast og fæ gæsa­húð bara þegar ég tala um þetta. Jafnvel fólki sem þykir mjög vænt um mann og langar að skilja og er að gera sitt besta getur ekki alveg sett sig í spor manns. Vegferð okkar með dóttur okkar hefur kennt okkur rosa­lega margt. Hún er núna orðin 12 ára og við höfum farið í gegnum allan skal­ann af til­finn­ingum saman. Fyrstu 2 árin hennar voru þannig að við Guðrún munum mjög lítið eftir því tíma­bili, þegar við vorum meira og minna inn og út af sjúkra­húsum. Ég var greindur með áfallastreituröskun sem má tengja beint við þetta. Þetta er ekki ein­hver einn atburður, heldur bara stans­laust ,,fight or flight” ástand að horfa upp á barnið sitt í þessarri stöðu og þetta fer ekki neitt. Ég er hægt og rólega búinn að finna jafn­vægið og hvað tauga­kerfið mitt ræður við. En konan mín fór í alvöru ,,burnout” fyrir nokkrum árum eftir höf­uð­högg, sem kom ofan á þetta allt saman og það tók hana langan tíma að koma til baka. En á end­anum er þetta allt saman svo mik­ils virði. Dóttir okkar hefur kennt okkur æðru­leysi, hjálpað okkur að þroskast og gefið okkur rosa­lega margar gjafir í formi gleði, lær­dóms og þroska. Litlir hlutir sem aðrir taka algjör­lega sjálf­sögðum er eitt­hvað sem við fögnum og finnum djúpt þakk­læti fyrir.”

Árni lifði og hrærð­ist í CrossFit-heim­inum í meira en ára­tug, þar sem hann bæði keppti og þjálf­aði, en svo skipti hann um takt fyrir nokkrum árum síðan.

„Crossfit er mjög „extreme” íþrótt ef þú ert kom­inn á þann stað að ætla að keppa og ná árangri. Það er nán­ast þannig að þeir sem ná lengst þurfa að vera annað hvort ein­hverfir eða fá eitt­hvað mikið út úr þján­ingu. Sumt af þessu fólki er að gera hluti sem þú átt ekki að geta gert. Ég tal­aði alltaf um að það væri mín þerapía að fara á æfingu, en þegar ég horfi til baka sé ég að fleiri klukku­tímar á dag í að þjást á æfingum var meira flótti en nokkuð annað. Núna finnst mér geggjað að fara bara á æfingu í klukku­tíma, svíða aðeins í vöðv­unum og fara svo bara heim. Það er meira en nóg og mér líður mun betur þó að ég sé kannski ekki í jafn­góðu formi,” segir Árni og heldur áfram:

„Það hefur orðið mikil breyt­ing á lífi mínu á und­an­förnum árum og sam­fé­lags­miðl­arnir end­ur­spegla það. Ég hætti í CrossFit í kringum Covid, eftir að hafa fengið mjög slæmt til­felli af Covid og end­aði með hjarta­vanda­mál. Ég fann að það var kom­inn tími fyrir mig að gera hlut­ina öðru­vísi og finna mig aftur. Ég var búinn að helga líf mitt Crossfit í fleiri ár, en þarna mætti ég alls konar hlutum sem var kom­inn tími fyrir mig að vinna í. Ég á lang­veikt og fatlað barn og hef lent í alls konar áföllum en hafði aldrei unnið mark­visst úr þeim fyrr en þarna.”

Árni hefur sem fyrr segir verið óhræddur við að ber­skjalda sig á sam­fé­lags­miðlum og deila þar hlutum sem flestir deila ekki. Árni og eig­in­kona hans, Guðrún Ósk Mar­í­as­dóttir ákváðu á síð­asta ári í sam­ein­ingu að breyta sam­band­inu og opna fyrir nátt­úru­legar teng­ingar við aðra ein­stak­linga:

„Við erum búin að vera saman í 15 ár og vera gift 10 ár, en síð­ustu 2 árin erum við búin að þurfa að mæta hlutum sem voru undir yfir­borð­inu fram að því af því að við þorðum ekki að opna á þá. Nú erum við búin að opna á allt saman og það hefur leitt alls konar hluti úr læð­ingi. Það er mjög erfitt að taka fyrstu skrefin í þessu, af því að maður þarf að mæta alls kyns hlutum innra með sér. Við tókum þessa ákvörðun eftir mjög djúpa sjálfs­vinnu. Þá ákváðum við að opna á að leyfa hlut­unum að ger­ast, en svo gerð­ust þeir bara mjög hratt. Flestir vilja ekki einu sinni skoða þessa parta innra með sér og mæta þeim sárum og hindr­unum sem koma upp þegar þú leyfir maka þínum að vera í algjöru frelsi. En tíðni skiln­aða og fram­hjá­halda sýnir að það eru margir mjög ófrjálsir í sinum sam­böndum. Er þá ekki betra að vera í fullum heið­ar­leika og ræða þessa hluti við maka sinn heldur en að fara í óheið­ar­leika og svo springur allt í loft upp?,” segir Árni, sem segir þau hjónin hafa fundið tals­verðan mun á kynj­unum eftir að þau fóru að tala um þessa hluti opin­ber­lega:

„Það er áhuga­vert að sjá mun kynj­anna eftir að við ræddum um þetta opin­ber­lega. Konur virð­ast almennt opn­ari fyrir því að sjá þetta með jákvæðum augum og vera for­vitnar, en mikið af karl­mönnum virð­ast mis­skilja þetta alveg og konan mín hefur fengið mikið af skila­boðum frá ókunn­ugum mönnum sem virð­ast halda að hún sé til í þá alla. Karlmenn nálg­ast þessa hluti á allt annan hátt, á meðan það er meiri virð­ing af hálfu kvenna. Það að við séum með opið á frelsi í sam­band­inu þýðir ekki að við vöknum alla morgna að leyta okkur að fólki til að sofa hjá. Þó að við séum form­lega í opnu sam­bandi núna, þá erum við 99% af tím­anum í ein­kvæni. Við erum bara opin fyrir öllum þeim teng­ingum sem gætu mögu­lega komið upp og það eru engin boð eða bönn. Við bara ræðum saman um allt sem kemur upp.”

Árni seg­ist alltaf hafa lifað lífi sínu þannig að hann þurfi að prófa hlut­ina á eigin skinni, en geti ekki lifað eftir fyr­ir­fram­gefnum for­múlum og því hvernig sam­fé­lagið segi að fólk eigi að hegða sér:

„Þegar eitt­hvað er gert ein­hvern vegin bara af því að það hefur alltaf verið þannig eða ein­hver segir það, þá get ég ekki bara sam­þykkt það og hlýtt. Ég þarf að upp­lifa hluti og prófa þá til þess að kom­ast að því hvort þeir séu fyrir mig eða ekki. Það er ekki nóg fyrir mig að ein­hver segi að hlut­irnir eigi að vera ein­hvern vegin. Ég og konan mín fórum fyrst í gegnum það að vera skrýtin í augum ann­arra þegar við „Vegan”. Það tíma­bil æfði okkur í því að prófa að vera öðru­vísi og átta sig á því að það væri í lagi. Maður áttar sig alltaf betur og betur á því að það er ekk­ert per­sónu­legt ef ein­hver stuð­ast af því hvernig maður lifir lífi sínu. En það er þeim mun fal­legra þegar ein­hver hefur sam­band og lætur vita að maður sé að hjálpa með því að þora að vera maður sjálfur.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu