Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einungis konur á vakt hjá slökkviliði Fjarðabyggðar

„Ég kann enga sér­staka skýr­ingu á þessu en tím­arnir hafa auð­vitað breyst.“

Einungis konur á vakt hjá slökkviliði Fjarðabyggðar
Vaskar slökkvi­liðs­konur Konur eiga vakta­skipti við konur í slökkvi­liði Fjarða­byggðar Mynd: Slökkvilið Fjarðabyggðar

Síðustu daga hafa bæði dag- og næt­ur­vaktir hjá slökkvi­liði Fjarða­byggðar verið ein­göngu skip­aðar konum. Slíkt er óvenju­legt, en hlutur kvenna innan liðs­ins hefur auk­ist jafnt og þétt á und­an­förnum árum. Einn slökkvi­liðs­maður segir fjöl­breytni skipta miklu máli fyrir starfið. Þetta kemur fram í frétt Aust­ur­fréttar.

Venju­lega eru þrjár konur fast­ráðnar í slökkvi­lið­inu, en í sumar bætt­ust fjórar tíma­bundið við. Í júlí hafa vaktir rað­ast þannig að stundum hefur dag­vakt kvenna afhent kvenna­vakt á nóttu og tekið síðan við henni aftur morg­un­inn eftir. Á hverri vakt eru þrír til fjórir starfs­menn.

Þannig voru bæði vakta­skiptin í gær­kvöldi og í morgun alfarið með konum. „Þetta er ekki alvana­legt í slökkvi­liði. Það eru margir í sum­ar­fr­íum þessa dag­ana og þess vegna rað­ast vakt­irnar svona upp. Almennt eru þær bland­aðar,“ segir Stefanía Ósk­ars­dóttir, slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­maður í sam­tali við Aust­ur­frétt.

„Gott að hafa þetta blandað“

Slökkvi­liðs- og sjúkra­flutn­inga­störf hafa lengi verið karllæg. Í Fjarða­byggð, þar sem slökkvi­liðið sér einnig um sjúkra­flutn­inga, hefur konum þó fjölgað á síð­ustu árum. „Við vorum tvær sem byrj­uðum um svipað leyti árið 2022 í aðal­stöð­inni á Hrauni. Þá voru þrjár fyrir. Konurnar eru fleiri ef útstöðv­arnar eru taldar með og hefur farið fjölg­andi.

Ég kann enga sér­staka skýr­ingu á þessu en tím­arnir hafa auð­vitað breyst. Konurnar hafa kannski farið að sjá að þær geta sinnt þessum störfum á jafn við karl­ana. Við þurfum öll að stand­ast sömu kröf­urnar, til dæmis sama þrek­prófið.

Að mínu mati er gott að hafa þetta blandað, þar sem verk­efnin eru jafn mis­jöfn og þau eru mörg. Það er gott að geta nýtt styrk­leika beggja kynja í slökkvi­starfi og í sjúkra­flutn­ingum,“ segir Stefanía.

Sjúkraflutningar meginverkefnið

Stefanía segir ekki mik­inn mun á menn­ing­unni innan vakt­ar­innar eftir kyni. „Þetta eru allt mis­mun­andi per­sónu­leikar, sama af hvaða kyni þeir eru.“

Um helg­ina breyt­ist skipu­lagið þegar dag­vaktin verður að næt­ur­vakt og karl­maður bæt­ist í hóp­inn. Hún bendir einnig á að auk aðal­vakt­anna sé alltaf stjórn­andi á bak­vakt og starfs­fólk á frí­vöktum eða í útstöðvum geti brugð­ist við ef stærri verk­efni koma upp.

Vaktir síð­ustu daga hafa verið til­tölu­lega rólegar. „Nóttin var róleg, síðan var einn sjúkra­flutn­ingur í morgun til Norð­fjarðar í veg fyrir sjúkra­flug. Verk­efnin okkar síð­ustu daga hafa mest snú­ist um sjúkra­flutn­inga,“ segir Stefanía.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Landið

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

„Það er svo sannarlega þörf á hraðamælingum“
Landið

Forbes vekur athygli á nýju ferða­manna­gjaldi á Íslandi

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal

Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Björg­un­ar­bún­aður og bætt öryggi til skoð­unar við Stuðla­gil