Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Truflandi“ skilaboð milli lækna í máli Matthew Perry opinberuð

„Ég velti fyrir mér hversu mikið þessi fáviti mun borga“

„Truflandi“ skilaboð milli lækna í máli Matthew Perry opinberuð
Matthew Perry Matthew lék Chandler Bing í Friends Mynd: PHILLIP FARAONE/Getty Images via AFP

Lög­mað­ur­inn sem stýrði rann­sókn­inni og lagði fram ákæru vegna dauða Matthew Perry hefur lýst yfir áhyggjum yfir „trufl­andi“ skila­boðum á milli læknna Salvador Plasencia og Mark Chavez, sem báðir ját­uðu sölu á fíkni­efnum til Perry.

Í við­tali í heim­ild­ar­mynd ITV, Matthew Perry: A Hollywood Tragedy, greindi lög­mað­ur­inn Martin Estrada frá sönn­un­ar­gögnum gegn lækn­unum tveimur, sem báðir ját­uðu að hafa afhent stjörn­unni úr Friends ketamín. Leik­ar­inn lést í októ­ber 2023, 54 ára gam­all, eftir að hafa fund­ist ómeð­vit­aður í heitum potti heima hjá sér í Pacific Palisa­des, Los Angeles, vegna ofneyslu ketamíns.

Í ágúst í fyrra voru fimm hand­teknir vegna dauða leik­ar­ans: Plasencia, Chavez, per­sónu­legi aðstoð­ar­maður Matthew, Kenneth Iwamasa, kunn­ingi hans Erik Fleming og svo kölluð „Ketamine Queen“, Jasveen Sangha. Fleming, Iwamasa og Chavez ját­uðu brot sín fljót­lega, Plasencia sam­þykkti að játa í júní á þessu ári, en Sangha hefur ekki játað og rétt­ar­höld hennar eru fyr­ir­huguð á næsta mán­uði.

Martin Estrada sagði frá skila­boð­unum milli Plasencia og Chavez í heim­ild­ar­mynd­inni: „Dr. Plasencia var mjög skýr í skila­boðum sínum að hann sá þetta sem tæki­færi til að græða mikla pen­inga á skömmum tíma. Hann gerði það að því er virð­ist. Í ákærunni er sönn­un­ar­gagn sem sýnir að hann seldi Perry 20 flöskur af ketamíni á einum mán­uði fyrir 55.000. doll­ara“

Estrada sagði einnig: „Þeir ræddu jafn­vel að þetta væri ekki rétti hátt­ur­inn til að gefa ketamín, en þetta var gullið tæki­færi til að græða pen­inga. Á einum tíma­punkti skrifar Dr. Plasencia til Dr. Chavez: „Ég velti fyrir mér hversu mikið þessi fáviti mun borga.“

Greg Kading, fyrr­ver­andi lög­reglu­maður í LA, bætti við: „Það var greini­leg fyr­ir­litn­ing gagn­vart Perry, og þetta eru læknar. Þeir not­uðu dul­ritað for­rit, en margir halda að lög­regla hafi ekki aðgang að því – það er ekki rétt. Í ákærunni er fjöldi af refsi­verðum athöfnum. Dr. Plasencia kennir jafn­vel Iwamasa hvernig á að sprauta ketamíni.“

„Að því er talið er, afhenti Dr. Plasencia aðstoð­ar­manni Perry ketamín en hann hefur enga lækn­is­fræði­lega þjálfun, og sá aðstoð­ar­maður gefur ketamínið ein­stak­lingi sem er í gríð­ar­legum áhættu­hópi,“ bætti Kading við.

Heim­ild­ar­myndin fjallar einnig um feril Matthew Perry, bar­áttu hans við fíkn og rann­sókn­ina á dauða hans. Í síð­ustu viku kom fram að Morgan Fairchild, sem lék móður hans á skjánum, hafði reynt að hjálpa honum að vinna bug á fíkn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife