Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Marín minnist tvíburasystur sinnar á fallegan hátt

Stofn­aður hefur verið fram­tíð­ar­reikn­ingur fyrir dóttur Bríetar Irmu

Marín minnist tvíburasystur sinnar á fallegan hátt
Bríet og Marín Marín minn­ist tví­bura­systur sinnar á fal­lega hátt Mynd: Aðsend

Marín Ösp Ómars­dóttir skrif­aði hjart­næma færslu á Facebook þar sem hún talar um and­lát tví­bura­systur hennar, Bríeti Irmu, en hún var aðeins 24 ára gömul þegar hún tók sitt eigið líf á dög­unum. Í færsl­unni gagn­rýnir hún stjórn­völd fyrir aðgerð­ar­leysi í geð­heil­brigð­is­málum, sér­stak­lega á lands­byggð­inni.

„Elsku tví­bura­systir mín, Bríet Irma er farin frá okkur,“ skrifar hún og heldur áfram: „Hún var aðeins 24 ára, björt, fal­leg og með ein­stakan hlátur sem fyllti hvert her­bergi. Hún hafði mikla rétt­læt­is­kennd og ótrú­lega hæfi­leika. Hún var skap­andi, skemmti­leg og gef­andi mann­eskja. Hún var líka móðir. Elsku Atalía Örk, þriggja ára gömul situr nú eftir án mömmu sinnar. Það tóma­rúm sem hún skilur eftir sig verður aldrei fyllt.“

Tví­burar­syst­urnarÞær Bríet og Marín á góðri stund

Í færsl­unni segir hún frá því að systir hennar hafi alla tíð glímt við and­leg veik­indi og síðar fíkni­vanda, en jafn­framt verið í stöðugri leit að bata. „Biðlistar, skortur á úrræðum, óað­gengi­leg þjón­usta var allt sem gerði veik­indin þyngri og ein­manna­legri. Þegar við reyndum að berj­ast fyrir henni var okkur ítrekað vísað á milli, eins og ábyrgðin væri alltaf ann­ars staðar. Það end­aði með þess­ari hörmu­legu nið­ur­stöðu,“ skrifar hún.

Marín Ösp beinir jafn­framt gagn­rýni að stjórn­völdum og þeirri stöðu sem blasir við fólki á lands­byggð­inni. Hún bendir á að á Aust­ur­landi, þar sem Bríet bjó, sé „geð­heil­brigð­is­þjón­usta tak­mörkuð, fáir fag­að­ilar til staðar og engin sér­hæfð úrræði fyrir ungt fólk.“

„Hvað þarf að ger­ast áður en stjórn­völd bregð­ast við? Hversu mörg líf þurfa að tap­ast áður en kerfið vaknar?“ spyr hún og leggur áherslu á að Bríet verði ekki aðeins ein í röð talna um sjálfs­víg. „Hún var systir, hún var móðir, hún var dóttir og hún var vin­kona. Og nú er hún farin. Ég vil ekki að hún verði bara ein í röð talna um sjálfs­víg. Ég vil að saga hennar verði hvatn­ing til vit­und­ar­vakn­ingar. Að hún verði áminn­ing um að hér þurfi aðgerðir!!“

Hún krefst þess að raun­veru­leg úrræði verði byggð upp: „EKKI fleiri áætl­anir, EKKI fleiri skýrslur, heldur raun­veru­leg úrræði, fag­fólk og stuðn­ingur fyrir þá sem glíma við geð­rænan vanda.“

Marín Ösp minn­ist systur sinnar einnig með þessum orðum: „Bríet var ljós í lífi okkar allra. Ljós sem lýsti bjart en dofn­aði allt of fljótt. Hún átti betra skilið, og dóttir hennar á betra skilið. Við skuldum henni og öllum þeim sem enn berj­ast í myrkr­inu, að standa vörð um geð­heil­brigði á Íslandi.“

Að lokum þakkar hún öllum þeim sem sýnt hafa fjöl­skyld­unni hlýjan stuðn­ing og bendir á fram­tíð­ar­sjóð sem stofn­aður hefur verið fyrir dóttur Bríetar. Hér má sjá upp­lýs­ingar um þann reikn­ing:

Kt. 020921-4390

Reikn­ingsnr. 0123-18-206962

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá