Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Stefán G. Jónsson er látinn

Stefán G. Jónsson er látinn

Stefán G. Jónsson, eðl­is­fræð­ingur og kenn­ari, and­að­ist 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn á heim­ili sínu í faðmi fjöl­skyldu sinnar eftir stutta en harða bar­áttu við krabba­mein. Hann var 76 ára gam­all. Akureyri.net sagði frá and­lát­inu.

Stefán fædd­ist 3. októ­ber 1948 á Munka­þverá í Öng­ul­staða­hreppi (nú Eyja­fjarð­ar­sveit), sonur þeirra Jóns Kristins Stef­áns­sonar og Önnu Aðal­heiðar Guð­munds­dóttur. Frá unga aldri var hann bæði tal­naglöggur og fróð­leiks­fús og minnt­ist hann ætíð með hlýju á barna­skóla­árin í sveit­inni, sem reynd­ust honum traustur grunnur í námi og starfi.

Hann lauk lands­prófi frá Mennta­skól­anum á Akureyri 1964 og stúd­ents­prófi þaðan 1968. Árið 1965 dvaldi hann sem skiptinemi í New York-ríki í Banda­ríkj­unum hjá Burns-fjöl­skyld­unni, sem hann átti ævi­langt vina­sam­band við. Eftir stutt nám í verk­fræði við Háskóla Íslands hélt hann til Sví­þjóðar, lauk cand. fil. prófi í stærð­fræði og eðl­is­fræði frá Uppsölum 1972 og dokt­ors­prófi í kjarneðl­is­fræði frá Lundi 1983.

Stefán hóf störf sem kenn­ari við Mennta­skól­ann á Akureyri 1972 og kenndi stærð­fræði og eðl­is­fræði með hléum allt til starfs­loka 2016. Hann var einn höf­unda viða­mik­ils kennslu­bóka­flokks í stærð­fræði sem hefur verið not­aður víða í fram­halds­skólum. Hann var meðal fyrstu starfs­manna Háskól­ans á Akureyri við stofnun hans 1987, for­stöðu­maður rekstr­ar­deildar og síðar dós­ent við kenn­ara­deild. Hann gegndi einnig stunda­kennslu við Háskól­ann í Lundi, Háskól­ann í Reykja­vík og MH, og starf­aði um tíma hjá Íslenskri erfða­grein­ingu.

Stefán var mik­ill fjöl­skyldu­maður. Hann kynnt­ist eig­in­konu sinni, Sigríði Sig­ur­björgu Jóns­dóttur, sum­arið 1973, trú­lof­að­ist henni stuttu síðar og gekk börnum hennar í föð­ur­stað. Saman eign­uð­ust þau þrjá syni. Í dag á fjöl­skyldan sextán barna­börn og ell­efu barna­barna­börn. Fram kemur í umfjöllun Akureyri.net að heim­ili þeirra í Kringlu­mýri á Akureyri hafi verið líf­legur sama­staður fjöl­skyld­unnar um ára­bil og þótti Stefáni afar þungt þegar það eyði­lagð­ist í elds­voða 1987. Með hjálp vina og ætt­ingja tókst að end­ur­reisa það og héldu þau hjón áfram að búa þar. Síðar fluttu þau í Holta­teig þar sem Stefán bjó til ævi­loka. Hann hjúkraði Sigríði af ást og natni þegar hún veikt­ist árið 2016 og missti hana tveimur árum síðar, sem var honum mikið áfall.

Stefán var víð­sýnn, menn­ingarunn­andi og hafði brenn­andi áhuga á skák, sem hann hóf að iðka á ný á síð­ustu árum með Skák­fé­lagi Akur­eyrar. Hann var ætt­ræk­inn og hélt góðu sam­bandi við vini og frænd­garð, sem studdu hann af mik­illi hlýju og nær­veru á síð­ustu dögum hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá