Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Stöðvið blóðmerahald á Íslandi

Stöðvið blóðmerahald á Íslandi

Kæru nefnd­ar­menn í fagráði um vel­ferð dýra,

Eurogroup for Animals, evr­ópskt sam­band dýra­vernd­ar­sam­taka með 107 aðild­ar­fé­lög, óska ein­dregið eftir að ekki verði veitt nýtt leyfi fyrir blóð­söfnun úr fyl­fullum hryssum. Þessi aðferð sem notuð er til fram­leiðslu á PMSG1 er ekki aðeins ógn við vel­ferð hesta, heldur hefur notkun þess skað­leg áhrif á vel­ferð og heilsu búfjár og leiðir til mis­notk­unar á fjölda teg­unda með því að stýra og flýta nátt­úru­legum líf­eðl­is­fræði­legum ferlum, þrátt fyrir að engin lækn­is­fræði­leg rétt­læt­ing sé fyrir hendi.

Þessi kerf­is­bundna mis­notkun á hestum sem knúin er áfram af efna­hags­legum hags­munum hefur ítrekað verið for­dæmd af þýsku dýra­vel­ferð­ar­sam­tök­unum Animal Welfare Foundation og Tierschutzbund Zürich, sem og af Dýra­vernd­ar­sam­bandi Íslands. Staðan er óásætt­an­leg.

Í fyrsta lagi er magn og tíðni blóð­töku (5 lítrar af blóði á viku) langt umfram allar alþjóð­legar leið­bein­ingar fyrir hross sem ekki eru fyl­full.

Í öðru lagi er aldrei mögu­legt að tryggja heilsu og vel­ferð við­kom­andi dýra í þess­ari starf­semi. Blóð er tekið með valdi úr fyl­fullum hryssum sem ekki eru vanar með­höndlun manna. Dýrin eru barin, slegin með pískum og sparkað og potað í þau. Folöld eru aðskilin frá mæðrum sínum, á meðan hryss­urnar eru skorð­aðar í þröngum básum með höf­uðið bundið hátt sem vekur upp hjá þeim sterkt flótta­við­bragð.

Að lokum þá er mikil hætta á meiðslum og sárs­auka vegna ófull­nægj­andi aðbún­aðar og vegna þeirra aðferða sem not­aðar eru við að binda hryss­urnar, sér­stak­lega þegar hryssur reyna að sleppa úr bás­unum eða við ítrek­aðar stungur með breiðri hol­nál við leit að háls­bláæð.

Blóð­mera­hald er hvergi stundað í Evrópu, nema á Íslandi. Þrátt fyrir form­lega áminn­ingu EFTA (ESA) hefur Ísland haldið áfram að taka blóð úr hryssum. Við vænt­an­lega end­ur­skoðun í októ­ber, þegar núver­andi leyfi líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins Ísteka rennur út, ætti fagráð um vel­ferð dýra að hafa í huga að notkun dýra til lyfja­fram­leiðslu fellur undir til­skipun ESB 2010/63 um vernd dýra sem eru notuð í vís­inda­skyni.

Af neð­an­greindum ástæðum brýtur blóð­söfnun til fram­leiðslu á PMSG bæði gegn reglu­gerð 460/2017 og til­skipun ESB 2010/63:

1. Fram­leiðsla á PMSG brýtur gegn meg­in­regl­unni um stað­göngu, fækkun og mildun (4. grein).

Til­skipun ESB 2010/63, sem og sam­svar­andi íslensk reglu­gerð 460/2017, byggj­ast á meg­in­regl­unni um stað­göngu, fækkun og mildun. Samkvæmt þess­ari meg­in­reglu verða dýra­til­raunir, þegar mögu­legt er, að vera skipt út fyrir aðrar aðferðir þar sem ekki eru notuð lif­andi dýr. Hvað PMSG varðar þá eru til aðrar árang­urs­ríkar leiðir við að koma af stað og sam­stilla gang­mál hjá búfé.

Í Þýska­landi eru til að mynda 36 kemísk hormón í boði fyrir mis­mun­andi dýra­teg­undir og mis­mun­andi með­ferðir. Sam­still­ing á gang­máli er einnig mögu­leg með aðferðum án notk­unar horm­óna með ráð­stöf­unum í búfjár­rækt, svo sem með hreyf­ingu, góðri nær­ingu og birtu, gyltur sem eru að ganga hafðar í nálægð við hver aðra og nálægð við gölt. Slíkar aðferðir eru til dæmis not­aðar í líf­rænum land­bún­aði þar sem kerf­is­bundin notkun frjó­sem­is­horm­óna er óheimil.

2. Fram­leiðsla á PMSG stenst ekki skaða- og ávinn­ings­grein­ingu (38. grein til­skip­unar ESB 2010/63).

Mat á aðferð þar sem notuð eru lif­andi dýr skal fela í sér skaða- og ávinn­ings­grein­ingu, til að meta hvort sá skaði sem dýrin verða fyrir er varðar þján­ingar, sárs­auka og van­líðan sé rétt­læt­an­legur með vænt­an­legum árangri, að teknu til­liti til sið­ferði­legra sjón­ar­miða, og geti að lokum skilað ávinn­ingi fyrir mann­eskjur, dýr eða umhverfi. Ávinn­ingur er eng­inn fyrir þau dýr sem sprautuð eru með PMSG. Þvert á móti verða hest­arnir sem not­aðir eru til fram­leiðslu á PMSG ekki aðeins fyrir skaða, heldur einnig dýrin sem eru með­höndluð með horm­ón­inu.

PMSG er notað til að auka fram­leiðni og skil­virkni í iðn­að­ar­bú­skap. Það stuðlar að óeðli­legri æxl­un­ar­tíðni hjá búfé og engin hvíld verður milli með­gangna, sem getur leitt til alvar­legra heilsu­far­s­vanda­mála og ótíma­bærrar slátr­unar. PMSG veldur einnig ofuregg­losi sem getur leitt til stærri gota hjá svínum en veik­burð­ari afkvæmum.

Einnig er mögu­legt að nota PMSG til að fela slæman aðbúnað eða heilsu­far­s­vanda­mál dýra sem gerir svína­búum, þar sem vanda­mál eru við­var­andi, kleift að starfa með skil­virkum hætti.

Blóðtaka úr fyl­fullum hryssum til fram­leiðslu á PMSG er ekki sam­fé­lags­lega við­ur­kennt. Nýlega söfn­uð­ust 251.000 und­ir­skriftir í und­ir­skrifta­söfn­unum4 þar sem Ísland er hvatt til að afleggja blóð­mera­hald. Að auki má nefna fram­sækn­ustu löndin sem hafa snúið frá þess­ari aðferð: í Sviss hafa bænda­sam­tök sem eru full­trúar rúm­lega 50.000 bænda bannað notkun PMSG fyrir allar dýra­teg­undir; Svíþjóð aflagði notkun PMSG í áföngum árið 2006 með það að mark­miði að ná góðri frjó­semi hjá svínum með ráð­stöf­unum í búfjár­rækt; og PMSG er ekki í notkun í Finn­landi, en mark­aðs­leyfi fyrir PMSG vörur hefur verið aft­ur­kallað.

Að lokum þá er blóð­taka úr fyl­fullum hryssum sem fram­kvæmd er í atvinnu­skyni ekki nauð­syn­leg og veldur bæði hestum og búfé skaða, sem brýtur gegn reglum EES. Því ættu stjórn­völd í aðild­ar­ríkjum EFTA ekki að veita heim­ild fyrir slíkri aðferð.

Við hvetjum íslensk stjórn­völd ein­dregið til að hafna öllum umsóknum um blóð­töku úr fyl­fullum hryssum undir reglu­gerð um vernd dýra sem eru notuð í vís­inda­skyni.

Við erum til­búin að veita ykkur frek­ari upp­lýs­ingar ef óskað er.

Virð­ing­ar­fyllst

Steph­anie Ghislain
Sabrina Gurtner
Linda Karen Gunn­ars­dóttir
Eurogroup for Animals Animal Welfare Foundation
Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Skoðun

Skoðun
Ragnar Erling Hermannsson

Vírusinn

Skoðun
Dávur í Dali

Streita og kulnun

Skoðun
Svanur Már Snorrason

Nú er komið að þér, Krist­rún!

Svanur Már Snorrason
Skoðun
Gunnlaugur Stefánsson

„Tekj­urnar af ánni borga áburð­inn á túnin“

Skoðun
Dávur í Dali

Sorg: Hvað er hún og hvernig tekst maður á við hana?

Skoðun
Dávur í Dali

Grein sál­fræð­ings um að læra að opna sig