Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Vill að íslensk yfirvöld hjálpi eiginkonu sinni að koma til Íslands

„Mér líður eins og við höfum verið leidd í ein­hvers konar gildru,“ segir Jóhann Dagur

Vill að íslensk yfirvöld hjálpi eiginkonu sinni að koma til Íslands
Jóhann Dagur Þor­leifs­son er ást­fang­inn Naomi, eig­in­kona hans, fær ekki að koma til Íslands í heim­sókn. Mynd: Víkingur

Í jan­úar á þessu ári gifti Jóhann Dagur Þor­leifs­son sig en eig­in­kona hans er frá Gana og býr hún þar í landi. Jóhann hefur eytt miklum tíma með henni þar Gana á árinu og hefur ástin blómstrað. Hann hefur þó und­an­farna mán­uði verið á Íslandi en hann býr og vinnur hér á landi.

Til stóð að Naomi, eig­in­kona hans, kæmi til Íslands í heim­sókn og áttu þau ekki von á það yrði vesen en það reynd­ist ekki vera rétt. Samkvæmt Jóhanni þurfti Naomi að fá vega­bréfs­á­rit­inu hjá danska sendi­ráð­inu í Gana þar sem Ísland er ekki með sendi­ráð þar í landi. Beiðni hjón­anna var hins vegar hafnað á þeirri for­sendu að hjóna­band þeirra væri ekki alvöru hjóna­band og væri aðeins til að koma henni frá Gana til Norð­ur­landa.

Mannlíf ræddi við Jóhann um málið og áhrif þess á þau hjónin.

„Ég er alveg miður mín yfir því að eitt­hvað lið úti í Danmörku sem hefur aldrei hitt hvorki mig eða kon­una mína geti hrein­lega bara ákveðið út frá eigin geð­þótta að hjóna­band okkar sé ekki raun­veru­legt finnst mér bara vera sárt og nið­ur­lægj­andi,“ sagði Jóhann þegar hann var spurður hvernig honum liði.

Ekki séð samskipti þeirra

„Mér finnst líka bara leið­in­legt hversu illa var farið að í þessu máli hvernig þetta fólk kom fram við kon­una mína og mér líður eins og við höfum verið leidd í ein­hvers konar gildru. Eins og til dæmis þegar umsóknin var gerð fengum við lista yfir öll gögn sem þurfti að skila inn og við tókum þau öll saman og skildum ekk­ert eftir en svo þegar Naomi mætir í við­talið var hún allt í einu beðin um gögn sem voru ekki á list­anum. Til dæmis var hún krafin um afrit af öllum spjöll­unum okkar á sam­fé­lags­miðlum sem hún átti að bara að afhenda á staðnum en hún hafði nýlega skipt um síma svo hún hafði ekki alla spjall­sög­una okkar á WhatsApp undir höndum þannig að hún hafði ekki mikið til þess að afhenda þeim og svo þau báðu líka um myndir úr brúð­kaup­inu og myndir af okkur saman sem hún átti bara að taka saman undir eins. Ég var upp­tek­inn í vinn­unni þegar þetta átti sér stað svo hún gat ekki heyrt í mér til þess að senda þeim alla WhatsApp spjall­sög­una svo þau bara sættu sig við nokk­urra daga langt sam­tal á Messen­ger til þess að byggja allt málið á.“

Jóhann segir að dönsk yfir­völd hafi aldrei séð raun­veru­leg sam­skipti þeirra. Árekstrana, fram­tíð­arplön þeirra og ást­ina. Þá hafi aldrei verið haft sam­band við hann um málið. Einnig hafi það verið notað gegn þeim að þau hafi kynnst á inter­net­inu fimm mán­uðum áður en þau giftu sig. „Eins og ást spyrji nokkurn tím­ann um stað, stund, aðstæður og sam­skipta­máta og hvað þá á þess­ari tækniöld sem við lifum á í dag,“ segir Jóhann en hann lýsir sam­skiptum Naomi við yfir­völd eins og erf­iðu prófi sem þau áttu ekki von á.

Jóhann gengur um með hring­inn á sérGifti sig í jan­úar í Gana

Segir yfirvöld eiga að endurskoða þennan málaflokk

„Ef hún hefði bara gifst mér í þeim eina til­gangi að fá land­vist­ar­leyfi hefði hún pott­þétt gert alla þessa heima­vinnu sem þau höfðu ætl­ast til að hún hafi gert og lært þetta allt utan­bókar eins og þetta væri próf. En við erum bæði mann­eskjur svo við sjáum ekki hjóna­bandið okkar sem náms­efni sem við þurfum að læra heima fyrir og mér líður mjög illa yfir því að okkur hafi verið refsað svona fyrir að líta ekki á það þannig. Það er líka vert að taka fram að þetta var ekki umsókn um flutn­ing heldur heim­sókn og hún var með flug­miða til baka þar sem hún var aldrei að fara að yfir­gefa dætur sínar, sem þeir höfðu einnig allar upp­lýs­ingar um, og þegar hún væri komin til baka hefðum við þurft að sækja um heim­sókn­ar­leyfi upp á nýtt og fara í gegnum allt þetta ferli aftur,“ heldur Jóhann áfram. Hann seg­ist reyndar vera von­góður um fram­haldið og líti á þetta sem hraða­hindrun á þeirra ferða­lagi. Þó seg­ist hann vera ósáttur við þá van­virð­ingu sem Naomi hafi verið sýnd í ferl­inu.

Viltu að íslensk yfir­völd hjálpi ykkur í þessu máli?

„Í hinum full­komna heimi myndi ein­hver hátt­settur ráð­herra senda harð­ort bréf til útlend­inga­stofn­un­ar­innar í Danmörku og for­dæma þessa synjun þeirra og vinnu­brögð á mál­inu og krefj­ast aðgerða og breyt­inga. En því miður þá virkar ekk­ert þannig. Ég er samt búinn að fara upp á Útlend­inga­stofnun og leita ráða hjá þeim og mér var ráð­lagt af þeim að sækja um búsetu fyrir hana og þá gæti hún flakkað milli Íslands og Gana eins og hún vill til að hitta dætur sínar þangað til við getum gengið frá því að fá þær hingað líka en sú umsókn tekur allt upp í níu mán­uði eða meira að vinna slíkt og hún myndi ekki fá að koma í heim­sókn meðan á því ferli stendur. Eftir að ég opin­ber­aði þetta mál hef ég fengið skila­boð frá fullt af fólki sem er að ganga í gegnum það sama svo okkar mál er ekki eitt­hvað eins­dæmi. Yfirvöld eru ein­fald­lega ekki að standa sig í málum er varða hjóna­bönd milli landamæra. Það er eins og það sé bara litið á að þegar fólk úti í heimi gift­ist Íslend­ingum sé bara ein­hvers konar svika­mylla til þess að geta fengið aðgang að Norð­ur­löndum eins og það sé bara eitt­hvað fjar­stæðu­kennt fyr­ir­bæri að útlend­ingur geti raun­veru­lega elskað Íslend­ing. Ég vil að íslensk yfir­völd hjálpi ekki bara mér heldur líka öllum hinum sem eru í sömu stöðu og ég og hrein­lega bara end­ur­skoði þennan mála­flokk þannig að mál eins og mitt þurfi til dæmis ekki að fara í gegnum danska kerfið sem ég hef heyrt frá svo mörgum erlendum ein­stak­lingum hér á landi að séu alræmd í allri Evrópu fyrir hátta­lag eins og þetta. En já, ég vil að íslensk yfir­völd hjálpi mínu máli,“ segir Jóhann.

Saknar eig­in­konu sinnar en seg­ist bjart­sýnnÆtlar að koma Naomi til Íslands.

Kynþátta- og stéttafordómar

Samkvæmt honum er Noami mjög von­svikin yfir þessu og finnst illa vegið að sér og ást sinni. Hún hafi þó haldið ró sinni enda sé hún að eðl­is­fari yfir­veguð. „Hún er mjög heppin með bak­land þarna úti og hefur fengið mik­inn and­legan stuðn­ing frá fjöl­skyldu og vinum, sem eru öll mjög gott fólk og öll af vilja gerð. Þetta kom henni samt ekki á óvart þar sem hún er alveg með­vituð um hvernig margir Evr­ópu­búar líta á fólk frá Afríku með rasískum augum og halda að þetta séu allt bara ein­hverjir villi­menn og þessi synjun bara und­ir­strik­aði það hvernig sýn svo margra er á Afríku og fólk­inu sem býr þar, án þess þeir hafi jafn­vel nokkurn tím­ann farið þangað. En hún er bjart­sýn á að það verði fundin lausn á þessu og hún fái á end­anum að koma hingað og kynn­ast tengda­fjöl­skyldu sinni sem bíður öll spennt eftir að fá að hitta hana. Það bara á eng­inn að geta bannað giftum hjónum að hitt­ast í löndum hvors ann­ars.“

Jóhann seg­ist viss um að for­dómar spili stórt hlut­verk í þeirri höfnun Naomi fékk, bæði kyn­þátta- og stétta­for­dómar. „Ég trúi því ein­læg­lega að ef hún væri hvít og vel efnuð kona frá Kanada hefði aldrei verið krafið hana um ein­hver auka gögn sem voru ekki á „tjékk­list­anum,“ hún aldrei fengið neinar yfir­heyr­andi spurn­ingar, hjóna­bandið hefði aldrei verið véfengt á nokkurn hátt og vega­bréfs­á­rit­unin hefði verið afgreidd eins og skot. Svo er líka vert að taka fram að ef það ólík­lega myndi ger­ast og þessi hvíta og vel efn­aða kona frá Kanada myndi lenda í því sama og Naomi þá væru allir sömu „xen­ofó­bísku“ ras­ist­arnir í kommenta­kerf­unum, sem fagna því alltaf þegar útlend­ingar kom­ast ekki inn í landið, alveg band­brjál­aðir og sótillir og segja þetta vera órétt­læti, mis­munun og mann­rétt­inda­brot. Þetta væri líka í öllum blöðum og í fréttum sjón­varps­ins og það myndu jafn­vel margir stjórn­mála­menn tala opin­skátt um málið og for­dæma vinnu­brögðin út í eitt. Það skiptir víst öllu máli hvort þú sért Jón eða séra Jón,“ útskýrir Jóhann.

„Ég er aldrei að fara að játa mig sigr­aðan gegn þessum for­dómum í garð hjóna­bands­ins og Naomi mun koma til Íslands. Punktur,“ segir Jóhann ákveð­inn að lokum.

Jóhann og Naomi ham­ingju­söm í brúð­kaup­inuKynntust í fyrra á inter­net­inu.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Rúður brotnar í nærri þrjá­tíu bílum á Nesinu

Íbúar og vegfarendur eru hvattir til að kanna hvort upptökur úr eftirlitsmyndavélum eða bifreiðum geti nýst við rannsókn málsins.
Menning

Kíkja í jóla­pakk­ann í Gerðu­bergi

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum