Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tímaspursmál hvenær moskítóflugan nær fótfestu á Íslandi

„Við sjáum miklu fleiri til­felli af veggja­lús, kakkalökkum og lús­mýi en áður“

Tímaspursmál hvenær moskítóflugan nær fótfestu á Íslandi
Moskítófluga nærir sig Ef hlýnun heldur áfram nær moskítóflugan fót­festu hér á landi Mynd: frank60/shutterstock

Veð­ur­fars­breyt­ingar og aukin umferð ferða­manna til og frá land­inu hafa gjör­breytt verk­efnum mein­dýra­eyða á Íslandi. Þetta segir Halldór Andri Árnason, fram­kvæmda­stjóri Streymis heild­versl­unar á Akureyri, sem sér­hæfir sig í vörum til mein­dýra­varna, í sam­tali við akur­eyri.net.

„Við sjáum miklu fleiri til­felli af veggja­lús, kakkalökkum og lús­mýi en áður. Breyttar aðstæður og hlýnun spila þar inn í. Og þar sem skor­dýra­teg­und­irnar eru mun fleiri nú en áður á fólk oft í erf­ið­leikum með að sjá mun­inn milli teg­unda og er þar af leið­andi að beita röngum aðferðum í bar­átt­unni gegn þessum dýrum. Ávaxta­flugu­gildra virkar t.d. ekki á hús­fl­ugur, þar er ein­faldur flugna­spaði eða lím­gildrur besta ráðið,“ segir Halldór.

Halldór hefur yfir 20 ára reynslu í grein­inni og segir að sala á vörum tengdum veggja­lús hafi meira en tvö­fald­ast ár frá ári síð­ustu þrjú ár. Þetta er þó ekki far­aldur að sögn Halldórs, heldur sé aukn­ingin mikil vegna þess að við erum að koma úr nán­ast engu. Veggjalúsin er hins vegar erfið, hún getur lifað án fæðu í heilt ár og leyn­ist gjarnan í glu­fum, sér­stak­lega í húsum með panil­klæðn­ingu.

Koltvísýringur laðar að veggjalýs

Til eru ýmis úrræði í bar­átt­unni við skor­dýrið. „Við erum ann­ars vegar að selja veggjalúsa­gildru og hins vegar veggjalúsa­vaka. Gildran virkar vel ef ein­hver sefur í rým­inu en ef svo er ekki þá er mik­il­vægt að vera með búnað sem gefur frá sér koltví­sýr­ing, eins og veggalúsa­vak­inn gerir, því koltví­sýr­ing­ur­inn hvetur dýrið til að fara á stjá,“ útskýrir Halldór.

„Ef ein­hver sefur í rým­inu dugar gildran vel, en ef ekki þarf búnað sem gefur frá sér koltví­sýr­ing, eins og vak­inn gerir, því hann laðar veggjalús­ina að. Vakinn notar hita og CO₂ til að herma eftir mann­eskju, og veggja­lýsnar fest­ast á lím­spjaldi.“

Að sögn Halldórs nýt­ast gildrur og vak­inn bæði við grein­ingu og eftir með­höndlun til að fylgj­ast með árangri. „Ef smitið er á byrj­un­ar­stigi eða eftir eitrun og nokkrar lýs eru enn á lífi í rým­inu, þá eru þær leit­andi að þessu ferómóni og fara í gildr­una. Ef það er aftur á móti mikið af veggja­lús þá er engin ástæða til að nota gildr­una því það er vitað að veggja­lús sé til staðar, auk þess virkar hún ekki eins vel ef hún er að keppa við aðra veggjalúsa­hópa eða bæli.“

Hann segir jafn­framt að notkun á gufu og ýmsum efnum sé nauð­syn­leg í útrým­ingu. „Í raun­inni er ekki eitt efni sem gerir út af við hana heldur nota menn mörg efni og aðferðir saman, það virkar best.“

Nýir landnemar og hætta á moskítóflugum

Halldór segir fleiri skor­dýr nú hafa numið land á Íslandi. Kakka­lakkar og maurar eru þegar komnir fyrir á ákveðnum stöðum, og það er lík­lega bara tíma­spurs­mál hvenær moskítófl­ugur ná fót­festu hér. „Í raun er ótrú­legt að þær hafi ekki numið land nú þegar, fræði­menn vita í raun ekki af hverju þær eru ekki hér nú þegar því þær eru alls staðar í kringum okkur, í Norður-Noregi og einnig á Græn­landi.“

Segir hann að dæmi séu örugg­lega til um að flug­vélar sem fljúgi á milli Græn­lands og Akur­eyrar hafi borið moskítófl­ugur með sér en þær virð­ast þó ekki lifa hér.

„Senni­lega er bara tíma­spurs­mál að moskítófl­ugur komi hingað ef hlýnun heldur áfram.“

Nánar verður rætt við Halldór Andra á morgun á akur­eyri.net, þar sem hann segir frá sögu Streymis heild­versl­unar og því hvernig við­horf Íslend­inga til mein­dýra­varna hefur þró­ast í gegnum árin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Fjarlægja þurfti smágirni og hluta ristils úr farþega eftir áreksturinn
Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag