Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Meðlimir Pussy Riot fordæma brottvísun rússneskrar fjölskyldu frá Íslandi

„Hér hefur verið framið ólýs­an­legt hermd­ar­verk“

Meðlimir Pussy Riot fordæma brottvísun rússneskrar fjölskyldu frá Íslandi
Gadzhi og sonur hans Liðs­konur Pussy Riot eru afar ósáttar Mynd: Aðsend

Póli­tísku flótta­kon­urnar og liðs­konur Pussy Riot, þær Diana Burkot og Nadya Tolokonnikova gagn­rýna harð­lega ákvörðun íslenskra stjórn­valda um að vísa fjöl­skyldu Gadzhi Gadzhiev og Mariiam Taimova úr landi. Í grein á Vísi segja þær að „hér hafi verið framið ólýs­an­legt hermd­ar­verk, svo ómann­úð­legt að það á sér enga málsvörn.“

Í grein­inni fjalla þær um að hjónin hafi flúið „ógn­ar­stjórn­ina“ í Rúss­landi ásamt syni sínum og leitað skjóls á Íslandi. Þar eign­að­ist Mariiam tví­bura eftir erf­iða með­göngu og keis­ara­skurð, en aðeins tveimur vikum síðar hafi börnin verið „send til Króatíu ásamt for­eldrum sínum“.

Konurnar segja að íslensk stjórn­völd hafi með því að vísa þeim úr landi „skilið fjöl­skyld­una og bak­land þeirra að.“ Þau lýsa Gadzhi sem manni sem fædd­ist inn í fjöl­skyldu sem „þorði að segja sann­leik­ann“ og segja að honum hafi í Rúss­landi verið „rænt, pynt­aður og dæmdur í fimm ára fang­elsi“ fyrir það eitt að hafa talað gegn ein­ræð­inu.

„Það eina sem þau þráðu var að sam­ein­ast fjöl­skyldu sinni og lifa við öryggi,“ skrifa þær.

Pussy Riot kon­urnar lýsa einnig undrun sinni á að íslensk stjórn­völd taki slíka ákvörðun. „Það er með öllu óskilj­an­legt að Útlend­inga­stofnun skuli vísa úr landi fólki sem stendur frammi fyrir því einu að sæta pynt­ingum og fang­elsun. Hvernig getur þetta gerst hér?“ spyrja þær og bæta við:

„Hvernig getur Ísland — land sem státar sig af verndun mann­rétt­inda, sam­stöðu og sam­kennd — tekið þátt í þess­ari grimmd Pútíns?“

Þær segja jafn­framt að með ákvörð­un­inni hafi íslensk stjórn­völd orðið „hluti af þeirri ofbeld­ismask­ínu sem fólkið er að flýja frá.“

Bæta þær við:

„Það auð­veldasta er að loka aug­unum og ímynda sér að þetta sé ekki til — að lifa sínu eigin lífi, í sínum eigin heimi, og kjósa að hunsa órétt­lætið sem kostar fólk lífið.“

Greinin endar á ákalli til stjórn­valda og almenn­ings:

„Við krefj­umst þess að íslensk stjórn­völd komi þess­ari fjöl­skyldu aftur hingað — og end­ur­skoði stefnu sína gagn­vart flótta­fólki og póli­tískum útlögum.“

Þær hvetja fólk til að nota raddir sínar „og með sam­taka­mátt­inn að leið­ar­ljósi, þá komum við fjöl­skyld­unni aftur til Íslands.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi