Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rússneskum hjónum með nýfædda tvíbura sparkað úr landi

Lög­fræð­ingur hjón­anna segir málið „öfug­snúið“ og „grafal­var­legt“.

Rússneskum hjónum með nýfædda tvíbura sparkað úr landi
Gadzhi og sonur hans Fjöl­skyldan hefur verið hand­tekin og verður vísað úr landi á næst­unni Mynd: Aðsend

Til stendur að senda rúss­neska fjöl­skyldu frá Íslandi fljót­lega, sam­kvæmt til­kynn­ingu frá No Borders Iceland. Fjöl­skyldan sótti hér um hæli vegna ofsókna og pynt­inga rúss­neskra yfir­valda á fjöl­skyldu­föð­urnum. Hjónin eign­uð­ust tví­bura þann 15. sept­em­ber síð­ast­lið­inn og áttu fyrir lít­inn dreng.

Í dag sótti lög­reglan fjöl­skyldu á flótta frá Rúss­landi og færði hana í varð­hald á óþekktum stað þar sem hún verður vistuð fram að brott­vísun, að því er segir í til­kynn­ingu frá No Borders Iceland. Farsímar fjöl­skyld­unnar hafi verið gerðir upp­tækir.

Hjónin Mariiam Taimova og Gadzhi Gadzhiev sóttu um alþjóð­lega vernd á Íslandi árið 2022 ásamt ungum syni sínum. Þau eiga nú nýfædda tví­bura sem fæddir eru á Íslandi. Þá er Mariiam heilsu­tæp en hún hefur not­ast við hjóla­stól und­an­farið. Samtökin telja brott­vís­un­ina ólög­lega, þar sem börnin hafi engin tengsl við Króatíu sem íslensk stjórn­völd hygg­ist vísa fjöl­skyld­unni til. Óvíst sé hvort Króatía taki á móti þeim, en hættan á end­ur­send­ingu til Rúss­lands er raun­veru­leg.

Samkvæmt No Borders Iceland sætir fjöl­skyldan ofsóknum í Rúss­landi. Þar hafi Gadzhi, sem er stjórn­ar­and­stæð­ingur og póli­tískur aðgerðasinni, verið hand­tek­inn af sér­sveit­ar­mönnum árið 2016, dæmdur í fimm ára fang­elsi árið 2017 og sendur í fanga­búðir í Síberíu þar sem hann varð fyrir „hrotta­legum pynt­ingum, lík­am­legum, kyn­ferð­is­legum og and­legum“. Til séu myndir og mynd­bönd af áverkum hans.

Eftir að Gadzhi losn­aði úr fang­elsi hafi hann verið undir stöð­ugu eft­ir­liti stjórn­valda í heimabæ sínum Makhachkala. Hann hafi þurft að til­kynna sig reglu­lega til lög­reglu, ekki mátt yfir­gefa heima­bæ­inn né vera með vega­bréf. Hann og Mariiam flúðu Rússland saman í sept­em­ber 2022, aðeins þremur dögum áður en til­kynnt var um almenna herkvaðn­ingu í stríðið gegn Úkraínu.

Samkvæmt lög­fræð­ingi fjöl­skyld­unnar, Arndísi Ósk Magn­ús­dóttur, eru Króatar dug­legir að senda flótta­fólk frá Rúss­landi, aftur til síns heima. Hér má sjá töl­fræði um slíkt en af nýj­ustu töl­fræð­inni sem er til staðar vegna vernd­ar­veit­inga í Króatíu (2023) má sjá að aðeins 23 rúss­neskir rík­is­borg­arar hlutu alþjóð­lega vernd þar í landi á árinu. Einn hlaut við­bót­ar­vernd.

Í sam­tali við Mannlíf segir hún málið grafal­var­legt og að hið öfug­snúna í mál­inu sé sú stað­reynd að aðrir fjöl­skyldu­með­limir hjón­anna, það er að segja móðir, systir og bróðir, verða eftir á Íslandi en þau eru með alþjóð­lega vernd á grund­velli ofsókna sem Gadzhi varð fyrir í Rúss­landi. „Svo öfug­snúið er málið.“ Segir hún ástæð­una vera þá að Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni hafi verið beitt gegn hjón­unum og því verði þau send til Króatíu.

„En svona á að sjálf­sögðu ekki að beita Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­inni,“ segir Arndís við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Innlent

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Ákæran er 17 blaðsíður og ákæruliðirnir 68
Innlent

Heimir Már biðst afsök­unar á ummælum um kjarn­orku­vopn

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Hrekkja­vöku­skemmtun fór úr bönd­unum í Kópavogi