Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Við viljum að fólk upplifi Guð í gegnum tónlistina“

Íslenska gospell-bandið GIG sendir frá sér lagið Hinn eini sanni Guð

„Við viljum að fólk upplifi Guð í gegnum tónlistina“
Daney Har­alds­dóttir Daney þenur radd­böndin Mynd: Aðsend

Gospel­hljóm­sveitin GIG hefur sent frá sér nýtt lag, Hinn eini sanni Guð, sem miðlar trú, von og kær­leika Guðs, boð­skap sem sveitin segir heim­inn þurfa á að halda.

„Draumur GIG hefur alltaf verið skýr: að gefa öðrum það sem þau eiga, trú, von og kær­leika Guðs í gegnum tón­list,“ segir í til­kynn­ingu frá sveit­inni. Með nýja lag­inu vilja þau miðla þeirri djúpu teng­ingu sem þau upp­lifa sjálf í trúnni.

Rætur í kirkjutónlist og vináttu

GIG var stofnuð árið 2002 þegar vinir og tón­list­ar­fé­lagar úr kirkju­lífi ákváðu að sam­eina krafta sína til að skapa and­lega nær­andi tón­list. Í dag mynda Guðni Gunn­ars­son (trommur), Daney Har­alds­dóttir (söngur) og Emil Hreiðar Björns­son (gítar) kjarna sveit­ar­innar, en þau vinna reglu­lega með öðrum tón­list­ar­mönnum eftir verk­efnum.

Tónlist sem bæn og tenging

Tónlist GIG er fjöl­breytt, hún sveifl­ast á milli mýktar og kraft­mik­ils rokks, en und­ir­liggj­andi til­gang­ur­inn er alltaf sá sami: að skapa teng­ingu við Guð. Fyrir með­lim­ina er tón­list ekki aðeins list­form heldur „bæn og leið til að kalla fram nær­veru Guðs, bæði í eigin lífi og ann­arra.“

Um lagið Hinn eini sanni Guð

Lagið sem nú hefur verið gefið út er alþjóð­legt gospellag sem hefur ferð­ast víða, en GIG ákvað að fara eigin leið með því að semja íslenskan texta út frá eigin trú­ar­reynslu.

Ferlið við gerð lags­ins tók rúmt eitt og hálft ár, frá fyrstu demó­upp­tökum til trommu­taka, radd­vinnslu, mix­unar og master­ingar. Útkoman er, að sögn sveit­ar­innar, lag sem hreyfir við fólki með djúpum and­legum und­ir­tón.

„Við viljum að fólk upplifi Guð í gegnum tónlistina“

„Þetta snýst ekki um okkur heldur um að gefa af okkur,“ segja þau. Sveitin lýsir því að tón­listin gefi þeim nýjan kraft, frið og til­gang og hjálpi þeim að tengj­ast öðrum á dýpri hátt.

Fram­tíð­ar­draum­ur­inn er jafn skýr og hann hefur alltaf verið: að snerta hjörtu fólks. „Við viljum að fólk upp­lifi Guð í gegnum tón­list­ina. Það er upp­lifun sem ekk­ert toppar.“

Ef þau fengju að flytja eitt lag fyrir allan heim­inn, væri það Hinn eini sanni Guð. „Ef þú hlustar, þá finn­urðu af hverju.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu