Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Uppljóstranir um fjöldi morða innan rússneska hersins

Yfirmenn eru sagðir taka und­ir­menn af lífi í tuga­tali

Uppljóstranir um fjöldi morða innan rússneska hersins
Rúss­neskir her­menn Yfir hund­rað her­menn eru grun­aðir um morð á und­ir­mönnum sínum Mynd: Shutterstock

Rúss­neskir her­menn á víg­lín­unni í Úkraínu deyja ekki aðeins í átökum við úkra­ínska her­menn, margir eru drepnir af eigin yfir­mönnum.

Í nýrri rann­sókn fjöl­mið­ils­ins Verstka voru greindir 101 her­menn sem grun­aðir eru um að hafa tekið þátt í svoköll­uðum „núll­still­ingum”, vett­vangsaf­tökum innan rúss­neska hers­ins.

Á þeim hvíla grun­semdir um að hafa pyntað menn til dauða, skotið þá eða sent í sjálfs­morðsárásir sem refs­ingu fyrir „óhlýðni” eða fyrir að neita að berj­ast. Fjöl­mið­ill­inn Meduza tók saman helstu nið­ur­stöður Verstka og er þessi frétt byggð á þeirri umfjöllun.

Hvað eru „núllstillingar“?

Verstka hefur tekið saman gagna­grunn yfir rúss­neska her­menn sem sak­aðir eru um að hafa myrt félaga sína í hernum. Þessar sam­an­teknu aftökur eru í hern­að­ar­orð­ræðu nefndar „núll­still­ingar“ (r. обнуление), og þeir sem fram­kvæma þær eru kall­aðir „núll­arar“.

Í gagna­grunn­inum eru nú 101 nöfn. Af þeim eru 79 stað­fest með a.m.k. tveimur óháðum heim­ildum. Verstka segir að 22 nöfn séu enn óstað­fest, en gagna­grunn­ur­inn verði stöðugt upp­færður eftir því sem ný gögn ber­ast.

Nánast allir stað­festu ein­stak­ling­arnir eru yfir­menn af mis­mun­andi stigum.

Í flestum til­vikum hefur Verstka aflað upp­lýs­inga um nöfn, stöðu, ein­ingar og ljós­myndir. Einungis örfáir hafa sætt refsi­með­ferð. Heim­ild­ar­maður innan aðal­her­lög­reglu­stofu Rúss­lands sagði að óform­legt bann væri við því að rann­saka yfir­menn sem taka þátt í Úkra­ínu­stríð­inu, slíkar rann­sóknir gætu „haft nei­kvæð áhrif á hern­að­ar­að­gerðir“.

Sami heim­ild­ar­maður sagði að á fyrstu sex mán­uðum árs­ins 2025 hafi aðal­her­lög­reglu­stofan fengið nær 29.000 kvart­anir, þar af yfir 12.000 sem tengj­ast morðum innan hers­ins.

Þessar skrár, auk við­tala við her­menn, fjöl­skyldur þeirra og efni úr Telegram-rásum, mynd­uðu grunn­inn að rann­sókn Verstka.

Hvernig aftökurnar fara fram

Innan rúss­neska hers­ins taka þessar aftökur á sig ýmsar myndir, allt frá pynt­ingum til dauða, beinum morðum eða því að menn séu sendir óvopn­aðir í sjálfs­morðsárásir.

Pyntingar

Hermenn sem sak­aðir eru um „brot“ eru oft látnir dúsa í kjöll­urum eða gryfjum þar sem þeir fá hvorki vott né þurrt og eru barðir margoft á dag, segir her­mað­ur­inn Júrí, sem þjón­aði í 114. vél­knúnu byssu­sveit­inni.

Sumir deyja í gryfj­unum, aðrir eru neyddir til að drepa félaga sína.

Í mynd­bandi sem birt­ist í maí 2025 sjást tveir hálf­berir menn berj­ast á meðan rödd segir utan myndar:

„[Yfir­mað­ur­inn] Kama sagði að sá sem ber hinn til dauða kemst út úr gryfj­unni.“

„Kama“ er her­nafnið á Aynur Shari­fullin, yfir­manni í 114. sveit­ar­innar. Hann er þriggja barna faðir frá Tat­arstan með langa her­þjón­ustu að baki.

Auk pynt­inga hefur hann verið sak­aður um fjár­kúgun á und­ir­mönnum sínum og að hafa lifað í miklum lúxus á víg­lín­unni.

Morð

Sumir yfir­menn myrða her­menn sína ann­að­hvort af grimmd eða til að sýna vald, en algeng­asta hvatn­ingin er pen­ingar.

Eitt dæmi er Andrej Bykov, her­maður í 80. tanka­deild­inni.

Móðir hans sagði Verstka að yfir­menn hans, sem gengu undir nöfn­unum „Dudka“ og „Kemer“, kröfð­ust helm­ings af bótum sem hann fékk vegna áverka. Þegar hann neit­aði og keypti sér bíl í stað­inn, var hann bar­inn til dauða.

„Þeir sögðu að eng­inn blettur væri óbar­inn á lík­am­anum hans,“ sagði móðir hans, Tatjana Bykova.

„Hann liggur enn úti í skógi í Donetsk. Enginn rann­sakar neitt. Ég get ekki einu sinni grafið hann.“

Kemer (Dmitrí Kemerov) og Dudka (Mikhail Dudukov) eru báðir fyrr­ver­andi fangar. Verstka fann út að Kemerov fór beint á víg­völl­inn úr fang­elsi þar sem hann afplán­aði dóma fyrir svik.

Annar yfir­maður, Vjat­seslav Kiselev, kall­aður „Lis“, er sagður hafa barið leyniskyttu til dauða fyrir að neita að fara í árás og borga mútur.

Aftökur

Þeir sem neita að taka þátt í svoköll­uðum kjöt­árásum eða öðrum sjálfs­morðsárásum eru oft ein­fald­lega skotnir.

Hermenn lýstu því hvernig und­ir­menn væru teknir af lífi með skotum, drónum eða jafn­vel hand­sprengjum földum í vesti þeirra.

Í sumum til­vikum eru drónar not­aðir til að „klára þá sem snúa við“, annað hvort með sprengjum eða skotum úr lofti.

Hvernig morðin eru falin

Lík hinna „núll­stilltu“ her­manna eru oft grafin í skóg­inum eða skilin eftir á víg­vell­inum.

Skotið er úr riflum yfir þá til að láta líta út eins og þeir hafi fallið í bar­daga.

Í skjölum eru þeir skráðir sem horfnir eða lið­hlaupar, og fjöl­skyldur þeirra fá þá engar bætur.

Í sumum til­vikum eru hins vegar svið­setn­ingar ítar­legri.

Her­mað­ur­inn Vla­d­is­lav Berlja­kov lýsti því að félagi hans, Alex­ander Jurkov („Odessa“), hafi verið bar­inn til dauða eftir að hafa neitað að afhenda yfir­mönnum sínum pen­inga.

„Þeir settu gam­alt vesti og hjálm á hann, lögðu tvær hand­sprengjur undir líkið og sprengdu,“ sagði Berlja­kov.

„Svo skildu þeir hann eftir í hita í nokkra daga til að líkið rotn­aði og merki um bar­smíðar hyrfu. Síðan var hann sendur heim sem „fall­inn í bar­daga“.“

Rannsóknir og gagnagrunnar fjölmiðla

Um viku áður en Verstka birti rann­sókn­ina sína birti mið­ill­inn Vot Tak einnig gagna­grunn yfir rúss­neska yfir­menn sem sak­aðir eru um glæpi gegn eigin her­mönnum, alls 50 manns, margir þeirra eru einnig á list­anum hjá Verstka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife