Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Rannsaka meint „leyniskyttusafarí“ milljarðamæringa í Bosníu á tíunda áratugnum

Talið er að Ítalir og aðrir mold­ríkir ein­stak­lingar hafi greitt háar fjár­hæðir fyrir að skjóta á óbreytta borg­ara í umsát­urs­borg­inni Sarajevó.

Rannsaka meint „leyniskyttusafarí“ milljarðamæringa í Bosníu á tíunda áratugnum
Frá Bosn­í­u­stríð­inu Um 11. þús­und manns lét­ust í Sarajevo á meðan stríðið geis­aði Mynd: Shutterstock

Rík­is­sak­sókn­ara­emb­ættið í Mílanó hefur hafið rann­sókn á ásök­unum um að ítalskir rík­is­borg­arar hafi ferð­ast til Bosníu-Her­segóvínu í „leyniskyttu­safarí“ í stríð­inu snemma á tíunda ára­tugnum.

Talið er að Ítalir og aðrir mold­ríkir ein­stak­lingar hafi greitt háar fjár­hæðir fyrir að skjóta á óbreytta borg­ara í umsát­urs­borg­inni Sarajevó.

Kæran í Mílanó var lögð fram af blaða­mann­inum og rit­höf­und­inum Ezio Gavazzeni, sem lýsir „manna­veiðum“ sem fram­kvæmd var af „mjög auð­ugu fólki“ með mikla ástríðu fyrir vopnum sem „greiddi fyrir að geta drepið varn­ar­lausa borg­ara“ úr stöðum serbneskra sveita í hæð­unum í kringum Sarajevó.

Samkvæmt sumum heim­ildum var mis­mun­andi verð tekið fyrir að skjóta karla, konur eða börn.

Meira en 11.000 manns lét­ust í hinu grimmi­lega fjög­urra ára umsátri um Sarajevó.

Júgóslavía var sund­ur­tætt í stríðum og borgin var umkringd af serbneskum her­sveitum sem gerðu stöðuga stór­skota­hríð að borg­urum sem og skotárásir leyniskytta.

Svipaðar ásak­anir um erlenda „manna­veiði­menn“ hafa komið upp nokkrum sinnum í gegnum árin, en sönn­un­ar­gögnin sem Gavazzeni hefur aflað, þar á meðal vitn­is­burður bosn­ísks yfir­manns í her­leyni­þjón­ustu, eru nú til skoð­unar hjá ítalska hryðju­verka­dóm­stóls-sak­sókn­ar­anum Alessandro Gobbis.

Ákæran er mann­dráp.

Bosníski yfir­mað­ur­inn greindi að sögn frá því að bosn­ísku sam­starfs­menn hans hefðu kom­ist á snoðir um svokölluð „safarí“ seint árið 1993 og sent upp­lýs­ing­arnar til ítölsku her­leyni­þjón­ust­unnar Sismi snemma árs 1994.

Svarið frá Sismi kom nokkrum mán­uðum síðar, að hans sögn. Þeir komust að því að „safarí“-ferða­langar hefðu flogið frá Trieste og síðan farið upp í hæð­irnar fyrir ofan Sarajevó.

„Við höfum stöðvað þetta og það verða engin fleiri safarí,“ var honum sagt, sam­kvæmt fréttum Ansa. Innan tveggja til þriggja mán­aða hafði verk­efnið stöðvast.

Ezio Gavazzeni, sem jafnan ritar um hryðju­verk og mafí­una, seg­ist fyrst hafa lesið um þessar leyniskyttu­ferðir fyrir um þrjá­tíu árum, þegar Corriere della Sera fjall­aði um málið, þó án þess að sýnt væri fram á óvé­fengj­an­legar sann­anir.

Hann sneri aftur að efn­inu eftir að hafa séð heim­ilda­mynd­ina Sarajevo Safari frá 2022 eftir sló­venska leik­stjór­ann Miran Zupanic, sem heldur því fram að þátt­tak­endur í dráps­ferðum hafi komið frá nokkrum löndum, þar á meðal Banda­ríkj­unum, Rúss­landi og Ítalíu.

Gavazzeni hóf frek­ari rann­sóknir og afhenti sak­sóknurum nið­ur­stöður sínar í febr­úar, 17 síðna skjal sem inni­heldur meðal ann­ars skýrslu frá Benja­mina Karic, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra Sarajevó.

Rannsókn yfir­valda í Bosníu virð­ist hins vegar hafa strandað.

Í sam­tali við ítalska dag­blaðið La Repubblica full­yrðir Gavazzeni að „margir“ hafi tekið þátt í þessum ferðum, „að minnsta kosti hund­rað“ sam­tals, og að Ítalir hafi greitt „gríð­ar­lega fjár­hæð“ fyrir þátt­töku, allt að 100.000 evrum á núvirði.

Árið 1992 var hinn látni rúss­neski þjóð­ern­is­sinni og stjórn­mála­maður Eduard Limonov kvik­mynd­aður þar sem hann skaut mörgum skotum að Sarajevó með þunga­vopni.

Hann var á ferð með Radovan Karadzic, leið­toga bosn­ískra Serba, sem síðar var dæmdur fyrir þjóð­ar­morð af alþjóða­dóm­stóli í Haag.

Limonov greiddi þó ekki fyrir stríðs­ferð sína; hann var þar sem aðdá­andi Karadzic og sagði við hann: „Við Rússar ættum að taka ykkur sér til fyr­ir­myndar.“

Að sögn ítal­skra fjöl­miðla hafa ítalskir sak­sókn­arar og lög­regla nú útbúið vitna­lista til að reyna að kom­ast að því hverjir gætu hafa verið með í þessu.

Hermenn úr breska hernum sem þjón­uðu í Sarajevó á tíunda ára­tugnum segja hins vegar við BBC að þeir hafi aldrei heyrt um neins konar „leyniskyttu­ferða­mennsku“ í Bosn­í­u­stríð­inu.

Þeir segja að slíkt hefði verið „erfitt í fram­kvæmd“ vegna fjölda eft­ir­lits­stöðva.

Breskir her­menn þjón­uðu bæði inni í Sarajevó og í nágranna­svæðum þar sem serbneskar sveitir höfðu aðstöðu, og sögðu þeir að ekk­ert hafi bent til þess á sínum tíma að slík starf­semi hefði átt sér stað.

Einn her­mann­anna lýsti ásök­un­unum um að útlend­ingar hefðu greitt fyrir að skjóta á borg­ara sem „gróu­sögu“ (urban myth).

BBC fjall­aði um málið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Plönturnar fundust í tveimur gróðurkössum í farangursrýminu
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife