Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Auður sendir frá sér plötu sem varð til á 336 klukkustundum

„Ég er alltaf í nýjum ævin­týrum”

Auður sendir frá sér plötu sem varð til á 336 klukkustundum
Auður í háloft­unum Plötu­umslagið er unnin með ljós­mynd­ar­anum Ara Michelson. Mynd: Ari Michelson

Tón­list­ar­mað­ur­inn Auður gaf út glæ­nýja plötu á föstu­dag­inn. Platan, sem heitir 336, fjallar um ferða­lagið milli Kali­forníu og Íslands og vísa lagatitlar í kenni­leiti og stað­setn­ingar beggja staða. Þar má nefna 101, óður til Reykja­víkur, 10.000 ft. sem ger­ist í háloft­unum og 90015, póst­núm­erið í mið­borg Los Angeles, sem er loka­lag plöt­unnar.

„Ég er fæddur í Banda­ríkj­unum en flyt til Íslands sex ára. Líf mitt hefur verið stöð­ugur sam­an­burður á tveimur menn­ing­ar­heimum, stóru og flóknu landi ann­ars vegar og litlu og ein­földu landi hins vegar,” segir Auður.

Hann bætir við að hann hafi flutt til Kali­forníu fyrir nær þremur árum þar sem hann starfi nú sem laga­smiður. „Ég er alltaf í nýjum ævin­týrum. Ég kom til Íslands í sept­em­ber til að halda tón­leika í heima­bænum mínum í Hafn­ar­firði og platan varð til í þess­ari heim­sókn. Tit­ill­inn er vísun í þær 336 klukku­stundir, eða tvær vikur, sem það tók að semja lögin.

Ég elska íslensku og það var frelsandi að semja lög á móð­ur­mál­inu í fyrsta sinn í dágóðan tíma. Ég elska Ísland og ég elska tón­list.”

Auður hefur á sama tíma verið að gera það gott í Los Angeles með verk­efn­inu Luthers­son og unnið með tón­list­ar­fólki á borð við Rayana Jay, Social House, Chichi og Luca.

Samhliða verk­efn­unum í LA hefur hann einnig unnið að vænt­an­legri plötu Bubba Morthens, leikið í stutt­mynd­inni Freyr sem frum­sýnd var á Tribeca Film Festival, fengið hlut­verk í tekíla­aug­lýs­ingu í Mexíkó og komið fram í tón­list­ar­mynd­böndum fyrir Doja Cat og Jack Harlowe.

„Ég reyni bara að segja já við öllu sem er spenn­andi og sleppi því að ofhugsa hlut­ina. Það var mikil breyt­ing að flytja hingað og þekkja bara ein­hverja örfáa ketti. Það frá­bæra við LA er að hér er fullt af lista­fólki með stóra drauma og það er auð­velt að kynn­ast fólki.”

Platan er unnin með reyndum íslenskum hljóð­upp­töku­stjórum og nýjum röddum í íslenskri dæg­ur­tón­list. Þar má nefna Martein Hjart­ar­son (Bngrboy), Emil Lorange, Pálma Ragnar og Daníel Friðrik.

Plötu­umslagið er unnin með ljós­mynd­ar­anum Ara Michelson.

Hlusta má á plöt­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Menning

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Hrósar lýsingum Laxness á íslenskri náttúru og árstíðunum
Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu