Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Auðvitað fer maður að hugsa það versta“

Einka­þjálf­ar­inn Böðvar er þakk­látur fyrir lífið

„Auðvitað fer maður að hugsa það versta“
Böðvar Tandri einka­þjálf­ari Fékk nýja sýn á lífið. Mynd: Skjáskot

Böðvar Tandri Reyn­is­son nær­ing­ar­fræð­ingur og þjálf­ari segir líf sitt hafa breyst eftir að hann fór í heila­að­gerð í kjöl­far óvæntrar atburð­ar­rásar þar sem í ljós kom að hann var með heila­æxli. Böðvar, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar, hefur vakið tals­verða athygli á sam­fé­lags­miðlum, þar sem hann talar meðal ann­ars um nær­ingu og heilsu.

„Þennan dag var ég í trampólín­garð­inum Rush í Kópavogi með fyrr­ver­andi kærust­unni minni. Allt í einu var ég bara stjarfur og mundi ekki neitt og varð bara mjög skrýt­inn. Það var eins og ég hefði aldrei séð umhverfið mitt áður og vissi ekki hvar ég var, eða hvaða dagur var. Hún hélt að ég hefði fengið vægan heila­hrist­ing, en svo hélt ég bara áfram að end­ur­taka mig og verða skrýtn­ari og skrýtn­ari. Á leið­inni út vissi ég ekk­ert hvar skórnir væru eða útgang­ur­inn og það var bara eins og ég myndi ekki neitt. Í bílnum end­ur­tók ég sömu hlut­ina aftur og aftur, en mundi ekki að ég hafði sagt þá 1-2 mín­útum áður. Þetta gerð­ist örugg­lega sjö sinnum í þess­ari sömu bíl­ferð. Að ég tal­aði um hluti sem ég var að tala um, en mundi ekki að ég hafði sagt þá rétt áður.“

Sendur í heilaaðgerð með dags fyrirvara

Eftir að Böðvar kom heim til fjöl­skyldu sinnar var ákveðið að fara með Böðvar upp á sjúkra­hús. Þar kom í ljós að eitt­hvað amaði að og fyrst töldu lækn­arnir að hann væri að upp­lifa tíma­bundið skamm­tíma­minnis­leysi.

„Það átti að senda mig heim og mér var sagt að það væri í raun ekk­ert hægt að gera annað en að bíða þetta af sér og að yfir­leitt lag­að­ist þetta af sjálfu sér. En ann­að­hvort pabbi eða fyrr­ver­andi kærastan mín þekktu kon­una sem var þarna með okkur og báðu um að það yrði tekin mynd af heil­anum í mér og það var ákveðið að gera það. Í seg­u­l­óm­skoð­un­inni kom í ljós að það var hnútur í heil­anum á mér. Það er sem sagt hólf í höfð­inu á mér þar sem mænu­vökvi kemur inn og hann á að kom­ast út úr hólf­inu líka. Það er svona hnútur eða góð­kynja æxli í heil­anum á mér sem var að þrýsta á rörið þar sem vök­vinn á að kom­ast úr hólf­inu. Þannig að hólfið var orðið fárán­lega stórt. Það var orð­inn svo mik­ill þrýst­ingur á sjón­taug­ina að ég hefði hæg­lega getað orðið blindur ef það hefði ekki verið gripið inn i þarna strax. Ef ég hefði farið heim og ekki í þessa mynda­töku er allt eins lík­legt að ég hefði ekki sjón­ina í dag. En þarna var mér bara sagt að ég væri að fara í heila­að­gerð strax dag­inn eftir,“ segir Böðvar og heldur áfram.

Þakklátur fyrir lífið

„Mér var sem sagt greint frá því að það þyrfti að búa til hjá­leið til þess að minnka þrýst­ing­inn í höfð­inu og það var ákveðið áfall að átta mig á því að ég væri að fara í heila­skurð­að­gerð. Bæði af því að það er mikið inn­grip og svo kemur bara ótti yfir því að það eigi að fara að krukka í heil­anum á manni. Ég var lát­inn skrifa undir eitt­hvað plagg um að ég bæri ábyrgð á því sjálfur ef eitt­hvað kæmi fyrir og auð­vitað fer maður að hugsa það versta. En sem betur fer fór þetta allt vel, þó að tím­inn á eftir hafi verið erf­iður. Ég mátti ekk­ert reyna á mig í vik­urnar á eftir, en ég fann svo mikið þakk­læti yfir því að vera lif­andi, hafa sjón og að lík­ami minn gæti jafnað sig,“ segir einka­þjálf­ar­inn og tekur fram að hann sé mjög þakk­látur.

„Ég fékk algjör­lega nýja sýn á það hvað hlut­irnir geta verið brot­hættir. Það kom bara algjör­lega yfir mig að þessi heilsa sem manni er gefin, sem að flestir fá, er bara ótrú­lega ósjálf­sögð. Hún er alls ekki sjálf­sagður hlutur og þarna raun­veru­lega átt­aði ég mig á því. Þegar heilsan þín er farin verða öll önnur vanda­mál svo miklu minni og þú raun­veru­lega áttar þig á því að ef þú átt ekki heilsu, þá áttu ekki neitt og hitt skiptir ekki lengur máli. Það hljómar kannski eins og klisja, en það er gott að minna sig á að lifa líf­inu lif­andi. Einn dag­inn þá ertu ekki til, það er bara svo­leiðis hjá öllum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu