Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samkynhneigð hjónabönd fá vernd innan ESB

Evr­ópu­dóm­stóll­inn ítrekar að aðild­ar­ríki séu skuld­bundin til að fram­fylgja reglum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Samkynhneigð hjónabönd fá vernd innan ESB
Regn­boga­fáni Myndin teng­ist ekki frétt­inni beint. Mynd: Shutterstock

Aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins bera skyldu til að við­ur­kenna hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra rík­is­borg­ara ESB sem hafa verið stofnuð með lög­legum hætti í öðru aðild­ar­ríki, þar sem hjónin njóta réttar til frjálsrar farar og búsetu.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá Evr­ópu­dóm­stólnum.

Málið vakti athygli þegar tveir pólskir rík­is­borg­arar af sama kyni gengu í hjóna­band í Berlín árið 2018. Pólsk yfir­völd neit­uðu síðar að skrá hjú­skap­ar­vott­orð þeirra í þjóð­skrá, þar sem hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra eru ekki leyfð sam­kvæmt pólskum lögum.

Evr­ópu­dóm­stóll­inn taldi að synj­unin bryti gegn „frelsi ein­stak­lings­ins og rétti hans til virð­ingar fyrir einka­lífi og fjöl­skyldu­lífi“.

Dóm­stóll­inn áréttar að aðild­ar­ríki séu skuld­bundin til að við­ur­kenna hjóna­bönd sem eru lög­lega gild í öðrum ESB-ríkjum. Skuld­bind­ingin felur þó ekki í sér að ein­stök lönd þurfi að lög­leiða hjóna­bönd sam­kyn­hneigðra inn­an­lands.

Málið var tekið fyrir hjá æðsta stjórn­sýslu­dóm­stól Póllands, sem óskaði álits Evr­ópu­dóm­stóls­ins vegna vafa um hvort hjóna­bandið ætti að við­ur­kenna og hvort synjun pól­skra yfir­valda bryti gegn lögum ESB.

Evr­ópu­dóm­stóll­inn ítrekar að aðild­ar­ríki séu skuld­bundin til að fram­fylgja reglum Evr­ópu­sam­bands­ins.

Ekki brot á þjóðarvitund eða allsherjarreglu

Dóm­stóll­inn segir að hjón eigi að geta treyst því að hjú­skapur þeirra sé áfram við­ur­kenndur þegar þau snúa aftur heim, enda gæti ann­ars skap­ast „alvar­legur miski, bæði varð­andi stjórn­sýslu, atvinnu og einka­líf,“ þar sem þau yrðu þvinguð til að lifa sem ógift í heima­landi sínu.

Þá telur dóm­stóll­inn að úrskurð­ur­inn brjóti hvorki gegn þjóð­ar­vit­und né ógni alls­herj­ar­reglu rík­is­ins.

Aðild­ar­ríkin geti valið með hvaða hætti þau við­ur­kenna erlend hjóna­bönd, og skrán­ing hjú­skap­ar­vott­orðs sé aðeins ein leið til þess.

Hins vegar megi ekki mis­muna sam­kyn­hneigðum og gagn­kyn­hneigðum hjónum, segir í til­kynn­ingu dóm­stóls­ins.

Samkvæmt pólskum lögum er skrán­ing eina leiðin til við­ur­kenn­ingar hjú­skapar sem stofn­aður er í öðru aðild­ar­ríki, og því beri pólskum yfir­völdum að við­ur­kenna slíka hjóna­bands­stöðu, að því er Evr­ópu­dóm­stóll­inn segir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Geðlæknirinn Haraldur lætur allt flakka
Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Skoska lög­reglan rann­sakar tengsl Andrews við Epstein

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Heimur

Beit lög­reglu­hund í háls­inn eftir þriggja tíma flótta