Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Ný rannsókn sýnir að unglingsárin geta varað fram á fertugsaldur

Glæný rann­sókn sýnir að manns­heil­inn gengur í gegnum fimm heila­skeið í þroska sínum, þar af fjögur „vendi­punkta­skeið“.

Ný rannsókn sýnir að unglingsárin geta varað fram á fertugsaldur
Manns­heil­inn Manns­heil­inn er flókið fyr­ir­bæri Mynd: Shutterstock

Ný rann­sókn hefur leitt í ljós að ung­lings­árin geta staðið yfir allt til 32 ára ald­urs, þar sem heil­inn gengur í gegnum fjögur stór „vendi­punkta­skeið“ í þroska sínum, um það bil við 9, 32, 66 og 83 ára aldur.

Rann­sóknin, sem birt var í gær í tíma­rit­inu Nature Communications, skoð­aði nær 4.000 heilaskann­anir ein­stak­linga á aldr­inum allt upp í 90 ár.

Vís­inda­menn kort­lögðu þroska heil­ans með þessum gögnum og upp­götv­uðu að mann­eskjan fer í gegnum fimm „heila­skeið“, og þar af, fjóra mik­il­væga lífs­vendi­punkta þar sem við þroskumst, mót­umst og hnignum.

Það sem skiptir mestu máli er að sam­kvæmt nið­ur­stöð­unum er það ekki fyrr en við 32 ára aldur sem per­sónu­leiki og greind manns­ins „nær stöð­ugu jafn­vægi“ og fest­ist eftir breyt­ingar sem eiga sér stað á fyrri ung­lings­árum.

Hver eru hin fimm skeið?

Samkvæmt rann­sókn­inni gengur heila­þroski og öldrun í gegnum fimm aðskilin skeið:

  • Barnæska – frá fæð­ingu til 9 ára
  • Ung­lingsár – frá 9 til 32 ára
  • Full­orð­insár – frá 32 til 66 ára
  • Snemm­búin öldrun – frá 66 til 83 ára
  • Seinni öldrun – frá 83 ára og áfram

Hvenær skiptir heilinn á milli skeiða?

Þegar heil­inn aðlagar sig að nýjum aðstæðum frá fæð­ingu til elli fundu vís­inda­menn að fjögur ald­ursár, 9, 32, 66 og 83, væru mest afger­andi í heila­þroskun.

Þessi umskipti ein­kenn­ast m.a. af kyn­þroska, stöð­ug­leika per­sónu­leika, „end­ur­skipu­lagn­ingu“ og hnignun.

Skeiðin nánar:

Barnæska – fæðing til 9 ára

Á þessu tíma­bili vex tauga­grámi og tauga­hvíta (grey matter og white matter) hratt.

Samkvæmt Johns Hopkins Medicine í Banda­ríkj­unum:

  • Tauga­grámi sér um að vinna úr og túlka upp­lýs­ingar.
  • Tauga­hvíta sér um að flytja upp­lýs­ingar á milli svæða í tauga­kerf­inu.

„Fyrstu árin ein­kenn­ast af sam­þjöppun og útrým­ingu tauga­móta (synap­ses) og hröðum vexti í magni tauga­gráma og tauga­hvítu,“ segir í rann­sókn­inni.

Tíma­bilið sam­ræm­ist einnig upp­hafi kyn­þroska, sem byrjar vana­lega við 8–13 ára aldur hjá stúlkum og 9–14 ára hjá drengjum, og markar miklar breyt­ingar á horm­óna­starf­semi og tauga­kerfi.

Rann­sóknin fann einnig aukna hættu á geð­rösk­unum, hug­rænum- og hegð­un­ar­vanda í upp­hafi ung­lings­ára, vegna horm­óna­breyt­inga og „tauga­líf­fræði­legrar breyt­inga“.

Unglingsár – 9 til 32 ára

Hingað til var talið að ung­lings­árin end­uðu fyrir tví­tugt, en rann­sóknin sýnir að þau hefj­ast vissu­lega með kyn­þroska, en enda­lokin eru óljós­ari og ráð­ast m.a. af menn­ingu og sam­fé­lags­legum þáttum.

„Í vest­rænum löndum, þ.e. í Bret­landi og Banda­ríkj­unum, nær ung­lings­þroski heil­ans til um 32 ára ald­urs,“ segja höf­undar.

Rann­sóknin bendir til þess að um 32 ára aldur verði mestar og mest afger­andi stefnu­breyt­ingar í heila­þroska, þegar tauga­hvítan eykst hvað hrað­ast og heila­net end­ur­skipu­leggj­ast.

Höfundar greindu þó ekki nákvæma ástæðu fyrir því af hverju þetta á sér­stak­lega við um vest­ræn lönd, né hvernig þetta þró­ast í öðrum heims­hlutum.

Fullorðinsár – 32 til 66

Á þessu, lengsta tíma­bili ævinnar, hægir á þroska heil­ans og engir stærri vendi­punktar eiga sér stað þar til komið er á sjö­tugs­aldur.

„Þetta skeið ein­kennd­ist af stöð­ugu ástandi í heila­neti og sam­svarar stöð­ug­leika í greind og per­sónu­leika,“ segir rann­sóknin.

Snemmbúin öldrun – 66 til 83

Hér fer heil­inn ekki í skyndi­lega hnignun, en teng­ingar milli svæða verða veik­ari og tauga­hvítan rýrnar.

Heilinn vinnur minna sem ein heild og meira sem aðskilin svæði.

Snemma á sjö­tugs­aldri eykst einnig hætta á heila­bilun og hækk­uðum blóð­þrýst­ingi, sem geta flýtt fyrir heila­rýrnun.

Seinni öldrun – 83 ára og eldri

Þótt minna sé til af gögnum um þetta skeið (vegna fárra þátt­tak­enda), sýna nið­ur­stöður skýra hnign­un­ar­til­hneig­ingu í heila­tengslum.

„Þetta gæti end­ur­speglað raun­veru­lega veik­ingu sam­bands milli ald­urs og heilatopólógíu á háöldr­un­ar­árum,“ segja höf­undar.

Af hverju skiptir þetta máli?

Stærsta nýja nið­ur­staðan sem fram kemur í rann­sókn­inni snýr að því að ung­lingsár standa ekki bara til tví­tugs, heldur geta teygt sig til 32 ára ald­urs.

Samkvæmt Alþjóða­heil­brigð­is­mála­stofn­un­inni (WHO) nær ung­lings­aldur frá 10 til 19 ára. Árið 2018 sýndi grein í The Lancet að hann gæti staðið fram á þrí­tugs­aldur.

Duncan Astle, pró­fessor í tauga­upp­lýs­inga­fræði við Cambridge-háskóla og einn höf­unda rann­sókn­ar­innar, sagði í við­tali við The Independent að nýja skýrslan hjálpi okkur að skilja betur veik­leika heil­ans.

„Þegar við lítum til baka finnst mörgum líf sitt hafa skipst í mis­mun­andi tíma­bil. Nú kemur á dag­inn að heil­inn gerir það líka,“ bætti hann við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife