Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Pútín segist tilbúinn að taka allt Donbas-hérað með valdi

Rússland ræður nú yfir 19,2 pró­sentum Úkraínu

Pútín segist tilbúinn að taka allt Donbas-hérað með valdi
Pútín og Zelensky Pútín gefur ekk­ert eftir í stríð­inu

Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands, segir að nýlegar við­ræður við samn­inga­nefnd Banda­ríkj­anna um að binda enda á stríðið í Úkraínu hafi verið „mjög gagn­legar“, en hann ítrek­aði jafn­framt hámarks­kröfur sínar og landa­kröfur sem hafa staðið í vegi fyrir lausn máls­ins.

Í aðdrag­anda ferðar sinnar til Nýju Delí í dag sagði Pútín í við­tali við India Today TV að hann hygð­ist ná yfir­ráðum yfir Donbas-hér­að­inu í aust­ur­hluta Úkraínu með her­valdi og stað­festi þar með fregnir frá Kreml um að eng­inn sam­hljómur hefði náðst í sam­tölum hans deg­inum áður við banda­rísku full­trú­ana Steve Witkoff og Jared Kushner.

„Í stuttu máli snýst þetta um þetta: ann­að­hvort munum við frelsa þessi svæði með her­valdi, eða úkra­ínskar her­sveitir yfir­gefa þessi svæði og hætta bar­dögum þar,“ sagði hann í brotum úr við­tal­inu sem rík­is­frétta­stofan Tass birti í gær.

Pútín sendi tug­þús­undir her­manna inn í Úkraínu í febr­úar 2022 eftir átta ára átök á milli her­sveita sem nutu stuðn­ings Rússa og úkra­ínskra her­sveita í Donbas, sem sam­anstendur af hér­uð­unum Donetsk og Luhansk.

End­ur­nýjuð ákveðni Pútíns virkar nú sem köld tuska framan í yfir­lýs­ingu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta fyrr um að Witkoff og Kushner hefðu talið að rúss­neski leið­tog­inn vildi „ljúka stríð­inu“.

„Þeir fengu mjög sterka til­finn­ingu fyrir því að hann vildi gera sam­komu­lag,“ sagði Trump.

Umræddar yfir­lýs­ingar Pútíns birt­ust á sama tíma og fregnir bár­ust af því að sér­stakur sendi­full­trúi Trump, Witkoff, og Kushner, tengda­sonur hans, myndu hitta Rústem Umerov, aðal­við­ræðu­mann Úkraínu, í Flórída í dag í fram­haldi af fimm klukku­stunda við­ræðum í Moskvu á þriðju­dag.

Volodýmír Zelenskíj, for­seti Úkraínu sem hefur glímt við fram­rás Rússa og inn­lenda spill­ingu, ítrekar að hann hafi ekki heim­ild til að afsala úkra­ínsku landi og að Rússland eigi í öllu falli ekki að hljóta umbun fyrir inn­rás sína. Úkraínsk stjórn­ar­skrá bannar einnig afsal lands.

Í við­ræðum við Banda­ríkin um mögu­legar útlínur frið­ar­sam­komu­lags hefur Rússland ítrekað lagt áherslu á að vilja yfir­ráð yfir öllu Donbas og að Washington við­ur­kenni það óform­lega.

Óvíst hvaða drög séu rædd

Sjón­ar­mið Kremlar virt­ist hafa náð yfir­hönd­inni þegar Trump birti 28 liða áætlun sína til að binda enda á stríðið. Upp­haf­lega gerði hún ráð fyrir að Úkraína afsal­aði sér öllu Donbas-hér­aði, tak­mark­aði stærð hers síns og yfir­gæfi drauma um aðild að NATO.

Eftir harða gagn­rýni á plagg­inu, sem margir sögðu að væri bein­línis óska­list Rússa, knúðu úkra­ínskir samn­inga­menn fram breyt­ingar í við­ræðum í Genf í Sviss þar sem upp­kastið var skorið niður í 19 liði.

Óljóst var eftir við­ræð­urnar í Moskvu hvaða útgáfa samn­ings­drag­anna hefði verið til umræðu. Aðstoð­ar­maður Pútíns, Júrij Úsjakov, sagði fyrr að nokkur skjöl væru til skoð­unar.

Í end­ur­sögn Tass á orðum Pútíns við India Today kom fram að 28 liða áætl­unin væri „enn í gildi og til umræðu“ og byggði á sam­komu­lagi sem náð­ist á leið­toga­fundi Rúss­lands og Banda­ríkj­anna í Alaska í ágúst.

„Þeir rifu bara þessa 28 eða 27 liði í fjóra pakka. Og þeir lögðu til að við ræddum þessa fjóra pakka. En í raun eru þetta sömu punkt­arnir,“ sagði Pútín, að sögn Tass.

Árásir Rússa halda áfram

Flug­skeyti lenti á Krivíj Ríh á mið­viku­dags­kvöld og særði sex manns, þar á meðal þriggja ára stúlku, að sögn Oleksandr Vilkul, yfir­manns borg­ar­stjórnar. Hann sagði árás­ina hafa skemmt meira en 40 íbúð­ar­hús, skóla og gaslagnir. Borgin er heima­bær Zelenskíjs.

Sex ára stúlka lést í Kherson eftir að rúss­nesk stór­skota­hríð hæfði hana dag­inn áður.

Rússar gerðu einnig dróna­árás á Odesa og særðu átta; borg­ara­leg og orku­tengd inn­viði skemmd­ust, að sögn Oleh Kiper, yfir­manns her­stjórn­ar­hér­aðs­ins. Í dag sak­aði Maria Zakharova, tals­kona rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, Úkraínu um að tor­velda frið­ar­við­ræður með árásum á olíu­skip í Svarta­hafi og olíu­flutn­inga­lestir við Novorossíjsk.

Rússland ræður nú yfir 19,2 pró­sentum Úkraínu, þar með talið Krím­skaga sem það inn­lim­aði 2014, öllu Luhansk, yfir 80 pró­sentum Donetsk, um 75 pró­sentum Kherson og Zaporizhzhia og hluta Kharkív-, Súmer-, Mykólaív- og Dní­própetr­óvsk-hér­aða, sam­kvæmt Reuters.

Yfir­maður úkra­ínska hers­ins sagði í dag að úkra­ínskar her­sveitir héldu enn norð­ur­hluta lyk­il­borg­ar­innar Pokrovsk í Donetsk.

Um 5.000 fer­kíló­metrar af Donetsk eru enn undir stjórn Úkraínu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife