Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Sextán heimsfræg sem kvöddu á árinu

Kvik­mynda­leik­arar, söngv­arar, vís­inda­kona og tísku­mó­gúll eru meðal þeirra heims­frægu ein­stak­linga sem lét­ust árið 2025

Sextán heimsfræg sem kvöddu á árinu

Árið 2025 var þungt í heimi menn­ingar, lista, íþrótta og stjórn­mála, þar sem fjöldi ást­sælla og áhrifa­mik­illa ein­stak­linga kvaddi þetta líf. Fréttir af and­láti þekktrar kvik­mynda­hetju, söngv­ara sem mót­uðu tón­list­ar­sög­una, vís­inda­manns sem breytti sýn heims­ins á nátt­úr­una og leið­toga sem mót­uðu sam­tímapóli­tík vöktu djúpa sorg og eft­ir­tekt um allan heim. Hér fyrir neðan er sam­an­tekt um nokkra af þeim heims­þekktu ein­stak­lingum sem lét­ust á árinu og mörk­uðu óaf­má­an­leg spor í sínum greinum.

Rob og Michele Reiner

Leik­stjór­inn og leik­ar­inn Rob Reiner og eig­in­kona hans, Michele, lét­ust á tragískan hátt þegar sonur þeirra er tal­inn hafa ráð­ist á þau inni á heim­ili þeirra í Los Angeles og skorið þau á háls, eftir hörkurifr­ildi í jóla­veislu Conan O'Brien. Lög­reglan í Los Angeles rann­sakar nú málið. Rob var 78 ára og Michele 70 ára.

Jimmy Cliff

Reggae-goð­sögnin Jimmy Cliff lést á árinu, 81 árs að aldri. Eig­in­kona hans, Latifa Chambers, greindi frá and­láti hans og sagði: „Það er með djúpri sorg sem ég til­kynni að eig­in­maður minn, Jimmy Cliff, hafi yfir­gefðið þennan heim eftir að hafa fengið flog og í kjöl­farið lungna­bólgu.“ Cliff var þekktur fyrir lög á borð við „You Can Get It If You Really Want“, „The Harder They Come“ og „Many Rivers to Cross“, sem öll komu fram í költ­mynd­inni The Harder They Come frá 1972, þar sem hann fór með aðal­hlut­verkið. Þá söng hann einnig slag­ar­ana „I Can See Clearly Now“ og „Reggae Nights“.

Dick Cheney

Dick Cheney, 46. vara­for­seti Banda­ríkj­anna, sem gegndi emb­ætti við hlið George W. Bush og var einn helsti hug­mynda­smiður „stríðs­ins gegn hryðju­verkum“, lést 84 ára að aldri af völdum fylgi­kvilla tengdum lungna­bólgu, hjarta- og æða­sjúk­dómum. Cheney átti ára­tuga­langan feril í stjórn­málum; hann var kjör­inn full­trúi repúblik­ana í full­trúa­deild Banda­ríkja­þings fyrir Wyoming og varð síðar starfs­manna­stjóri Hvíta húss­ins í tíð Gerald Ford for­seta. Hann gegndi einnig emb­ætti varn­ar­mála­ráð­herra í stjórn George H.W. Bush áður en hann varð vara­for­seti sonar hans. Þegar Christian Bale hélt ræðu þegar hann hlaut Golden Globe verð­laun fyrir túlkun sína á Cheney í kvik­mynd­inni Vice, þakk­aði hann Satan fyrir inn­blást­ur­inn.

Diane Keaton

Diane Keaton, hin marg­verð­laun­aða leik­kona, leik­stjóri og fram­leið­andi, lést á árinu 79 ára gömul. Slökkvi­lið Los Angeles brást við útkalli á heim­ili hennar og hún var flutt með sjúkra­bíl á sjúkra­hús, þar sem hún lést síðar. Ferill Keaton er ein­stak­lega umfangs­mik­ill og spannar verk eins og Somet­hing’s Gotta Give, First Wives Club, Father of the Bride, Annie Hall, The God­father, Book Club, Baby Boom og fjölda ann­arra. Hún varð fyrst fræg á sjö­unda ára­tugnum þegar hún lék í The God­father og í sam­starfi við Woody Allen.

Jane Goodall

Jane Goodall, heims­þekktur dýra­fræð­ingur og braut­ryðj­andi í rann­sókn á simpönsum, lést á þessu ári, 91 árs gömul. Goodall var ein af fyrstu kon­unum í heim­inum til að sér­hæfa sig í rann­sóknum á prímötum. Hún hóf feril sinn árið 1957 þegar hún heim­sótti vin­konu sína í Kenía og hitti þar forn­leifa­fræð­ing­inn og mann­fræð­ing­inn Louis Leakey, sem varð leið­bein­andi hennar.

Robert Redford

Hinn goð­sagna­kenndi Ósk­arsverð­launa­hafi, leik­ari og leik­stjóri, Robert Redford lést á árinu, 89 ára gam­all. Redford var einn ást­sæl­asti kvik­mynda­gerð­ar­maður Hollywood um ára­tuga skeið, og lék í sígildum myndum á borð við Butch Cassidy and the Sundance Kid (1969), The Sting (1973), Three Days of the Condor (1975), All the Pres­ident’s Men (1976) og The Natural (1984). Redford stofn­aði einnig Sundance-kvik­mynda­há­tíð­ina.

Giorgio Armani

Tísku­iðn­að­ur­inn missti eitt stærsta nafnið í brans­anum er ítalski hönn­uð­ur­inn Giorgio Armani lést á árinu, 91 árs að aldri. Hann lést „frið­sam­lega“ heima hjá sér, umvaf­inn ást­vinum. Ferill Armani, sem spannar yfir 65 ár, hófst á miðjum sjö­unda ára­tugnum þegar hann starf­aði hjá Nino Cerruti sem karlfata­hönn­uður og vakti þegar mikla athygli. Síðar vann hann sem verk­taki fyrir ýmis tísku­hús, en stofn­aði eigið merki ásamt sam­starfs­að­il­anum Sergio Galeotti í júlí 1975.

Hulk Hogan

Fjöl­bragða­glímu­goð­sögnin Hulk Hogan lést einnig árið 2025, 71 árs gam­all, eftir hjarta­á­fall. Hogan umbreytti atvinn­uglímu í fjöl­skyldu­skemmtun og náði til mun víð­ari hóps en íþróttin hafði áður gert. Leikrænn stíll hans átti stóran þátt í að gera glímu að gríð­ar­vin­sælu sjón­varps­efni. Hogan hóf hina svoköll­uðu „Hulkamania“ árið 1984 þegar hann sigr­aði Iron Sheik og varð heims­meist­ari og almenn­ingur setti upp hár­bandið og yfir­var­ar­skeggið sem ein­kenndu hann og hélt tryggð við tákn­mynd­ina í ára­tugi.

Ozzy Osbourne

Rokksöngv­ar­inn goð­sagna­kenndi Ozzy Osbourne lést á árinu, 76 ára gam­all eftir glímu við Alzheimer. Ozzy var hvað frægastur sem söngv­ari Black Sabbath, hljóm­sveitar sem hann stofn­aði í Birming­ham árið 1968 ásamt Tony Iommi, Geezer Butler og Bill Ward. Dauði hans bar að aðeins vikum eftir að hann kom fram með Black Sabbath í síð­asta sinn.

Michael Madsen

Leik­ar­inn Michael Madsen, þekktur úr kvik­myndum á borð við „Kill Bill“, „Res­er­voir Dogs“ og „Donnie Brasco“, lést á heim­ili sínu í Malibu á árinu. Samkvæmt heim­ildum lög­reglu barst Neyð­ar­lín­unni til­kynn­ing og fannst Michael lát­inn þegar lög­reglu­þjónar komu á stað­inn. Talskona hans, Liz Rodriguez, stað­festi að hann hefði fengið hjarta­á­fall. Madsen lék einnig í „Thelma & Louise“, „Mr. Blonde“, „The Hateful Eight“ og „Once Upon a Time in Hollywood.“

Virginia Guiffre

Virginia Giuffre, sem opin­ber­lega sak­aði dæmda kyn­ferð­is­brota­mann­inn Jeffrey Epstein og Andrés prins um kyn­ferð­is­lega mis­notkun, er látin, 41 árs að aldri, eftir sjálfs­víg. Giuffre var ein þeirra fyrstu sem stigu fram með ásak­anir á hendur Epstein og sagði að hún hefði verið aðeins 16 ára þegar Ghislaine Maxwell, nú dæmd fyrir man­sal, hefði dregið hana inn í víð­tækt mannsals­net.

Frans páfi

Frans páfi, 266. páfi kaþ­ólsku kirkj­unnar, lést eftir heila­blóð­fall og hjarta­bilun. Vatíkanið birti opin­bert dán­ar­vott­orð þar sem fram kemur að hann hafi lát­ist af völdum heila­blóð­falls og óaft­ur­kræfrar hjarta­bil­unar. Frans páfi, fæddur Jorge Mario Bergoglio í Buenos Aires árið 1936, tók við emb­ætti árið 2013 og hóf umfangs­miklar umbætur í kirkj­unni, meðal ann­ars með nýrri stjórn­ar­skrá hennar.

Val Kilmer

Leik­ar­inn Val Kilmer, þekktur fyrir hlut­verk sín í kvik­myndum á borð við „Top Gun“, „The Doors“ og fjöl­mörgum öðrum kvik­myndum, lést úr lungna­bólgu á þessu ári. Hann greind­ist með æxli í hálsi árið 2014 og þurfti að gang­ast undir bráða með­ferð árið 2015 vegna mik­illar blæð­ingar í hálsi. Æxlið reynd­ist af völdum munn­krabba­meins. Kilmer komst inn í hinn virta Juilli­ard-leik­lista­skóla aðeins 17 ára gam­all og lék meðal ann­ars Hamlet á sviði áður en hann sló í gegn í kvik­mynd­inni „Real Genius“ árið 1985.

Gene Hackman og Betsy Arakawa

Leik­ar­inn og tvö­faldi Ósk­arsverð­launa­haf­inn Gene Hackman, 95 ára, fannst lát­inn á heim­ili sínu í Santa Fe í Nýju-Mexíkó ásamt eig­in­konu sinni, Betsy Arakawa, 65 ára og hundi þeirra. Hackman hlaut þrjú Golden Globe-verð­laun og Cecil B. DeMille-ævi­verð­launin á ferli sínum. Hann og Arakawa, sem var klass­ískur píanó­leik­ari, höfðu verið gift í 34 ár. Hackman lést vegna hjarta­sjúk­dóms en hann hafði glímt við Alzheimer um nokk­urt skeið. Betsy lést úr hanta­veiru nokkrum dögum fyrr.

Marianne Fait­h­full

Söng­konan og laga­höf­und­ur­inn Marianne Fait­h­full er ein af þeim þekktu mann­eskjum sem lést á árinu. Hún varð heims­fræg á sjö­unda ára­tugnum, söng meðal ann­ars lagið „As Tears Go By“, sem Mick Jagger og Keith Richards sömdu og Rolling Stones tóku síðar upp, og var kærasta Jagger á tíma­bili, sem leiddi til skiln­aðar hennar á þeim tíma. Önnur þekkt lög með henni voru „The Ballad of Lucy Jordan“ og „Broken English“.

Diogo Jota

Hinn portú­galski knatt­spyrnu­maður Diogo Jota og bróðir hans, André Silva, lét­ust sum­arið 2025 í bílslysi í hér­að­inu Zamora á Spáni á leið sinni til Liverpool fyrir und­ir­bún­ings­tíma­bil. Jota hafði nýverið geng­ist undir minni­háttar aðgerð á lungum í Porto áður en hann gift­ist. Knatt­spyrnu­lið hans, Liverpool FC, heiðr­aði Jota með því að leggja númer hans, 20, á hill­una. Hann var 28 ára er hann lést en bróðir hans 25 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife