Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Finnbogi hefur glímt við svefnvanda alla ævi

„Ég er bara mann­eskja og hef farið gegnum mjög krefj­andi tíma“

Finnbogi hefur glímt við svefnvanda alla ævi
Maður sem getur ekki sofnað Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: SB Arts Media/Shutterstock

Finnbogi Þorkell Jónsson er nýjasti gestur hlað­varps­ins Sofum Saman en hann er. Hann er lærður leik­ari og leið­sögu­maður, jóga­kenn­ari, hlát­urjóga­leið­bein­andi og faðir. Í þætt­inum segir hann hlust­endum frá þeim svefn­vanda­málum sem hann hefur glímt við í gegnum ævina.

„Ég er alls konar, ég er bara mann­eskja og hef farið gegnum mjög krefj­andi tíma, mörg stór áföll á frekar stuttum tíma,“ segir Finnbogi og að slíkt hafi klár­lega mikil áhrif. „Þú getur ekki lengur leikið trúð­inn eða verið klári gæinn eða flinki hand­lagni son­ur­inn. Þú liggur bara á jörð­inni. Og þá koma líka upp öll áföllin þín. Og þá kemur upp allt það sem kannski hefur verið vanda­mál en þú hefur ekki náð kontróli á neinu. Og þar á meðal kom það sem ég hef verið að díla við meira og minna alla mína ævi en það er svefn­vandi,“ segir Reyk­vík­ing­ur­inn.

Stress er oft ímynduð hætta

„Við búum í þannig sam­fé­lagi að það er ekk­ert ljón að fara að koma hérna og éta okkur. Og við förum út í umferð­ina, jafn­vel oft á dag, og við erum aldrei að pæla í að það sé stór­hættu­legt. Við erum bara að keyra. Ég vinn við að skemmta fólki, koma fólki til að hlæja og vera snið­ugur, klár og fynd­inn. Og ég verð oft yfir mig stress­aður þó að ég sé búinn að gera þetta hund­rað sinnum. En bara, sko, hvað er hættu­legt við þetta?“ spyr Finnbogi.

„Og sama með svefn­inn. Þú kannski vaknar, ok, það er ekk­ert hræði­legt að fara að ger­ast. Það hræði­leg­asta er kannski það að þú verður að sleppa tök­unum. Við stjórnum þessu ekki“.“

Hann bendir á að stundum séu ástæð­urnar fyrir svefn­leys­inu hjá þeim sem glíma við kvíða ótt­inn við að vakna fljót­lega aftur og þess vegna eigi þeir erfitt með að ná slökun.

Þá nefnir hann leiðir sem hægt er að prófa, eins og til dæmis slow pace kvöld­göngur, EMDR, kassa­öndun og ýmis­legt fleira.

Fer í rólega kvöldgöngu

Þá telur Finnbogi að göngu­ferðir sé van­metn­asta hreyf­ingin og segir „á öllum þessum ferli er ég búinn að halda að hreyf­ing ætti að snú­ast um að vera með sem mestan djöf­ul­gang. „Ef þú svitnar ekki nógu mikið, ef púls­inn fer ekki alltaf í hæstu hæðir, þá er þetta ekki að virka, þetta er drasl, og ef þú djöfl­ast á lík­am­anum alveg nógu mikið svo hann verði þreyttur, þá getur þú kannski sofnað.“

Hann telur hins vegar að hann hafi verið að yfir­spenna lík­amann og slíkt hafi keyrt stress­hormón í gang sem hafi truflað hann við að sofna.

„Ég er að fatta smátt og smátt, við vorum að tala um tengsla­leysi við nátt­úr­una, tengsla­leysi við eitt­hvað annað, það að fara út og bara taka eftir trjánum. Eða labba kannski bara í snjónum og hlusta á hvernig snjór­inn kremst undir fót­unum á manni. Ég labba oft ákveð­inn hring, þá faðma ég tré. Og ég hef oft verði með fólk með mér sem finnst þetta skrítið, en svo er bara eng­inn að pæla í þessu. Faðmaðu bara tré þegar þig langar til þess. Og ef þig langar ekki til þess, þá skaltu ekki faðma tré. Þetta er ekki flókið, þú gerir bara það sem þig langar. En þetta hjálp­aði mér rosa­lega mikið og ég geri þetta enn þá mjög mikið. Ég held að við höfum flest öll 30–40 mín­útur ef við minnkuðum kannski bara skjá­tím­ann.“

Finnbogi telur einnig af megnið af meiri­hluti svefn­vanda­mál sé við­horf fólk gagn­vart vand­anum frekar en vand­inn sjálfur.

„Segjum til dæmis að ég hitti þig og segi: „Ég svaf bara 5–6 tíma í nótt, maður. Dagurinn verður alveg hræði­legur. Það ná allir 8 tímum, allir nema ég!“ versus að segja: „Bara smá krefj­andi nótt. Ég náði þó 5–6 tímum. Hver hefur ekki sofið 5–6 tíma og kom­ist bara vel í gegnum dag­inn?“ Við­horfið til þess sem við glímum við skiptir svo miklu máli. Ef þú ert alltaf að spá í vand­anum, þá vex vand­inn. Það þarf ein­hvern veg­inn að bera virð­ingu fyrir þessu en ekki blása þetta út því að þá ertu bara að man­i­festa þetta.“

Eitt sem Finnbogi lærði var að maður getur ekki alveg stjórnað svefn­inum.

„Eins og sagt er á ensku, „you fall asleep“ og þegar þú er ást­fang­inn, „you fall in love“. Þú stjórnar þessu ekki. „Nú ætla ég sko að sofna! Eða: „Nú ætla ég sko að verða ást­fang­inn!““

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu