Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Segir íbúa hætta við barneignir vegna Reykjavíkurborgar

„Hvað hefur Sam­fylk­ingin gert fyrir barna­fjöl­skyldur á síð­ustu miss­erum?“

Segir íbúa hætta við barneignir vegna Reykjavíkurborgar
Diljá Mist og Snorri Másson Er annt um barna­fjöl­skyldur. Mynd: Víkingur

Á Alþingi í gær fór fram umræða um stöðu barna­fjöl­skyldna á Íslandi en það var Diljá Mist Ein­ars­dóttir, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem hóf umræð­una og þakk­aði Ragnar Þór Ing­ólfs­son, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra, henni fyrir umræð­una.

Það var hins vegar Snorri Másson, þing­maður Mið­flokks­ins, sem stal sen­unni með sinni ræðu en hann beindi henni sér­stak­lega að kjörnum borg­ar­full­trúum í Reykja­vík. Hélt Snorri því meðal ann­ars fram í ræðu sinni að fólk hefði hætt við að eign­ast börn vegna skorts á leik­skóla­plássum fyrir börn í Reykja­vík.

„Herra for­seti. Það er nú for­vitni­legt að koma hingað og hlusta á þing­menn rík­is­stjórn­ar­innar, og kannski sér­stak­lega Sam­fylk­ing­ar­innar, ræða hag barna­fjöl­skyldna á Íslandi,“ sagði Snorri í upp­hafi ræðu sinnar. „Hvað hefur Sam­fylk­ingin gert fyrir barna­fjöl­skyldur á síð­ustu miss­erum? Ég hef ekki orðið var við mikið annað hér inni á þingi en kerf­is­bundnar skatta­hækk­anir sem bitna sér­stak­lega á barna­fjöl­skyldum. Á sama tíma eru rík­is­út­gjöld aukin fram úr öllu hófi, vel að merkja í þágu eig­in­lega allra ann­arra hópa en barna­fjöl­skyldna, en þó eru útgjöldin þannig að þau við­halda verð­bólg­unni og þessum háu vöxtum sem eru að sliga barna­fjöl­skyld­urnar. Sama rík­is­stjórn neitar að leyfa nýbök­uðum for­eldrum að skipta orlof­inu á milli sín þannig að það henti þeim og sviptir það þar með þessum 12 mán­uðum í heild­ina, af hug­mynda­fræði­legum ástæðum. Þessu mætti sleppa en ákveðið er að gera það ekki,“ hélt hann áfram og spurði hvað Sam­fylk­ingin hafi verið að gera fyrir barna­fjöl­skyldur.

„Við getum rætt Reykja­vík­ur­borg. Þar eru fjöl­skyldur að fresta eða hætta við barn­eignir vegna þess að ekki er hægt að reiða sig á leik­skóla­pláss fyrir kannski tveggja eða jafn­vel tveggja og hálfs árs börn. Það er ekki til pen­ingur í leik­skóla­málin, er sagt. Það er samt til pen­ingur til að breyta gam­alli kyn­lífstækja­verslun í leik­skóla fyrir 3,2 millj­arða kr. Það er reikn­ing­ur­inn núna fyrir Brák­ar­borg vegna þess að það þurfti að leggja torf­þökur á þakið sem það síðan þoldi ekki með til­heyr­andi við­gerð­ar­kostn­aði,“ og sagði Snorri á að Dagur B. Egg­erts­son, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, hafi fengið verð­laun fyrir bygg­ing­una en var áður borg­ar­stjóri Reykja­víkur

„Ekki skán­aði málið hjá Reykja­vík­ur­borg með síð­ustu til­raun þeirra til að telja alla vega for­eldrum trú um að verið væri að huga að hags­munum barna­fjöl­skyldna þegar borgin fól sér­fræð­ingum á mann­rétt­inda­sviði Reykja­vík­ur­borgar að semja leið­bein­ingar um það hvernig skyldi kynja­skipta barna­af­mælum í Reykja­vík þannig að það sam­ræmd­ist nýj­ustu kynja­fræði­kenn­ingum mann­rétt­inda­sviðs­ins. Nei, hún er ekki fal­leg, frammi­staða Sam­fylk­ing­ar­innar í mál­efnum barna­fjöl­skyldna. Ég er raunar ekki kom­inn hingað til að biðja Sam­fylk­ing­una um að gera meira fyrir barna­fjöl­skyldur á Íslandi. Ég held að það sé miklu nær að biðja Sam­fylk­ing­una um að taka sér frí frá því að koma nálægt mál­efnum barna­fjöl­skyldna á Íslandi. Þá fyrst held ég að hagur fjöl­skyldn­anna færi að vænkast.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Pólitík

Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfir­tekið Sjálf­stæð­is­flokk­inn

„Slíkur fals-flokkur á engan tilvistarrétt, því hann gerir meira ógagn en gagn“
  • Pólitík

    Dorrit skorar á for­seta Ísraels að hleypa arab­ískum flokkum í rík­is­stjórn

  • Pólitík

    Segir öfga­ísla­mista og öfga hægri­menn eiga margt sam­eig­in­legt

  • Pólitík

    „Ég sakna þess enn meira að heyra rödd mann­rétt­inda á Alþingi“

  • Pólitík

    Kína vill efla tengslin við Ísland á lyk­ilsviðum

  • Pólitík

    Sig­mundur Davíð svarar fyrir fjar­veru sína úr öllum atkvæða­greiðslum