Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun tillögur stýrihóps um breytingar á málsmeðferðarreglum um veitinga- og gististaði. Greint er frá þessu í tilkynningu frá borginni.
Meðal breytinga er að áfengisveitingar eru leyfðar í tengslum við íþróttaviðburði að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Breytingar á reglunum miða að því að skýra ábyrgð og verkferla í stjórnsýslu borgarinnar og tryggja að íbúar og rekstraraðilar hafi skýrar og aðgengilegar leiðir til að bregðast við ábendingum um hávaða, opnunartíma og notkun borgarlands.
Í greinargerð hópsins segir ennfremur:
Síðustu ár hefur borgarráð fallist á að heimila áfengisveitingar í tengslum við einstaka íþróttaviðburði og þannig veitt undanþágur frá núverandi banni við áfengisveitingum í tengslum við íþróttaviðburði. Einnig eru sum íþróttafélög með varanlegt rekstrarleyfi í veislusölum sem hafa verið nýtt til sölu áfengis á íþróttaviðburðum. Þetta hefur skapað ófyrirsjáanleika og ójafnræði á veitingasölu íþróttafélaga á íþróttaviðburðum.
Með breytingunni er markmiðið að skapa skýrt, sanngjarnt og gagnsætt regluverk þar sem gætt er meðalhófs. Jafnframt er breytingunni ætla að tryggja ábyrga, skýra og vel útfærða umgjörð um áfengissölu á íþróttaviðburðum til að verja börn og ungmenni í samræmi við forvarnarsjónarmið.
Rekstrarleyfi
Íþróttafélögum sem ekki hafa rekstrarleyfi er bent á að sækja þarf um rekstrarleyfi fyrir veitingastað í flokki 2 (umfangslitlir áfengisveitingastaðir). Sótt er um hjá Sýslumanni höfuðborgarsvæðisins.
Þegar umsóknir um rekstrarleyfi vegna veitingastaðar/gististaðar berast frá Sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu fara þær til meðferðar hjá Reykjavíkurborg sem er lögbundinn umsagnaraðili um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.






















Athugasemdir