Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Fólk deyr úr einelti”

Helgi Hrafn Gunn­ars­son talar um slauf­un­ar­menn­ing­una í nýjasta hlað­varps­þætti Sölva Tryggva­sonar

„Fólk deyr úr einelti”
Helgi Hrafn Gunn­ars­son Helgi Hrafn er nýj­ast gestur Sölva Mynd: YouTube-skjáskot

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi þing­maður Pírata, seg­ist aldrei geta sam­þykkt að það sé í lagi að meiða fólk til hlýðni við ákveðnar skoð­anir. Helgi, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar skrif­aði fyrir skömmu færslu þar sem hann gagn­rýndi slauf­unaræðið sem hér gekk yfir fyrir nokkrum árum. Hann seg­ist enn ekki hafa lesið við­brögðin við því sem hann skrif­aði á Facebook, enda sé hann með­vit­aður um að mörg skoð­ana­syst­kyna hans almennt séu ósam­mála honum þegar kemur að þessu:

„Ég var alveg þess­arrar skoð­unar þegar þetta tíma­bil gekk yfir. En það hefði ekk­ert þýtt að viðra þessa skoðun þá. Þú gerir ekki mikið í miðju snjó­flóði annað en að rúlla bara með því. Það má alveg segja að ég hafi sýnt ákveðna með­virkni á þessu tíma­bili, en ég var líka í grunn­inn sam­mála mörgu af því sem fólk var að berj­ast fyrir. En aðferð­irnar voru bara rangar. Það er fullt af fólki mín megin í póli­tík sem er á sömu skoðun og ég, en þorir bara ekki að segja það af ótta við félags­leg við­brögð. Ég var það líka lengi og ég hef ekki ennþá lesið „commentin” við því sem ég skrif­aði á Facebook, af því að mig langar ekki að loka á vini mína, þó að við séum ósam­mála þegar kemur að þessu. Ég veit að margir vina minna eru með aðra skoðun en ég á þessu, en ég get bara ekki sam­þykkt þá skoðun að það sé rétt­lætt að meiða fólk til hlýðni við ákveðnar skoð­anir. Það er það sem birt­ist óaf­vit­andi í mörgum af þessum hug­myndum og ég er bara ósam­mála því,” segir Helgi og heldur áfram:

„Vonandi erum við loks­ins komin á þann stað að fólki megi tjá þessa teg­und af skoð­unum án þess að vera ótta­slegið við að missa vinn­una eða annað þvíum­líkt. Svona tíma­bil líða alltaf hjá, en þetta tíma­bil var á margan hátt bara alls ekki í lagi. Þetta var ákveðin teg­und af ofbeld­is­menn­ingu, þar sem hópar fólks tóku sig saman og meiddu og skemmdu fyrir þeim sem voru þeim ósam­mála. Svo fylgdu þessu miklir hetju­stælar og kátína yfir því að hafa eyði­lagt fyrir ein­hverjum. Það var svo bara rétt­lætt með að fólk ætti þetta skilið af því að það væri í for­rétt­inda­stöðu eða annað slíkt. Það er ekk­ert sem rétt­lætir að leggja fólk í rúst og eyði­leggja líf þeirra. Fólk deyr úr ein­elti og þeir sem ekki hafa lent í slíku hafa ekki skiln­ing á því hvað það er alvar­legt. Það er ógeðs­leg staða að vera einn og varn­ar­laus í sam­fé­lagi með fólki sem lítur út eins og þú, nema það hatar þig. Það er eitt hvort ein­hver máls­staður sé góður, en svo er allt annar hlutur hvaða aðferðir þú notar til að berj­ast fyrir máls­staðnum.“

Í þætt­inum tala Helgi og Sölvi um þá til­hneig­ingu að skil­greina hluti út frá hópum en ekki ein­stak­lingum og hvernig hægt sé að taka það út í öfgar. Helgi segir að það geti skemmt fyrir máls­staðnum ef allt sé sett undir gler­augu þess hvaða þjóð­fé­lags­hóp þú til­heyrir:

„Það er allt í lagi að greina hluti út frá ákveðnum hópum til þess að skilja sam­fé­lagið betur og hvað býr að baki. Eins og til dæmis að yfir­gnæf­andi meiri­hluti for­stjóra í fyr­ir­tækjum séu hvítir karl­menn á ákveðnum aldri. Það er alveg klár­lega „rel­evant” þegar verið er að greina sam­fé­lagið og skilja hvaðan við erum að koma og hvað þurfi mögu­lega að bæta. En þegar við erum fari að dæma fólk nær ein­göngu á grund­velli kyns og kyn­þáttar, þá erum við komin á ranga braut. Við köll­uðum það einu sinni bara sex­isma og ras­isma. Þegar fólk fer of langt í öfgar í þá átt að skil­greina allt á þennan hátt, þá endar það á að skemma það sem í grunn­inn var góður máls­staður. Þetta getur svo oft endað með því að fólk sem raun­veru­lega er að berj­ast fyrir mann­rétt­indum, lýð­ræði og betra sam­fé­lagi verður sjálft fyrir barð­inu á fólki sem tekur mál­stað­inn í öfgar.”

Helgi Hrafn seg­ist almennt þeirrar skoð­unar að það sé rangt að reyna að úti­loka ákveðnar skoð­anir eða banna ákveðnu fólki að fá „plat­form”. Hins vegar lifum við á tímum þar sem þeir sem hafa náð langt í að ein­falda skila­boð sín nái stundum auð­veldar í gegn, sama hvort þeir segi satt eða ekki:

„Þú færð það ekki upp úr mér að ég sé á móti umræðu. Þó að sumar skoð­anir séu mjög slæmar er alls ekki endi­lega rétt að þagga þær, heldur þvert á móti taka rök­ræð­una. Hins vegar lifum við á tímum þar sem ákveðin vald­hyggju­öfl hafa náð inn og það þarf að vera vel und­ir­bú­inn til þess að rök­ræða við vald­hyggju-fanta, af því að þeir hafa ekki mik­inn áhuga á vits­munum og rök­stuðn­ingi. Það er mikil vinna að vera það vel und­ir­bú­inn að þú getir sigrað rök­ræður við ein­hvern sem hefur engan áhuga á sann­leik­anum. Raun­veru­leik­inn og lífið geta verið flókin fyr­ir­bæri og þess vegna geta verið tak­mörk fyrir því hvað það er hægt að ein­falda sann­leik­ann mikið. Það eru hins vegar engin tak­mörk fyrir því hvað þú getur ein­faldað lyg­ina mikið, þannig að á þann hátt er lygin alltaf með ákveðið for­skot.”

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sam­bandið þegar mak­inn er með ADHD

Fólk

Keath Ósk slær í gegn á heims­vísu og segir Ísland hafa mótað sköp­un­ina

Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Myndir
Fólk

Óvenju­legt sölu­til­boð í Reykja­vík þar sem maka­skipti koma til greina

Fólk

Nabblinn leggur bleyj­una á hill­una

Myndir
Fólk

Sögu­frægt sýslu­manns­setur við sjó­inn komið á sölu