Isjan Hykaj hefur verið dæmdur í fangelsi af Héraðsdómi Reykjavíkur en dómurinn var nýlega birtur á vef dómstólsins.
Hann var ákærður fyrir líkamsárás með því að hafa, föstudaginn 21. júní 2024, í Reykjavík, veist að manni með ofbeldi og kýlt hann með krepptum hnefa í andlitið með þeim afleiðingum að maðurinn hlaut brot á kjálka- og kinnbeini hægra megin í andliti.
Hann játaði brot sitt fyrir rest en taldi að bótakrafa á hendur sér væri of há.
Hann var á endanum dæmdur í 60 daga fangelsi og sá dómur skilorðsbundinn til tveggja ára og þá þarf hann að greiða fórnarlambi sínu 600 þúsund krónur.































Athugasemdir