Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Víglundur Þór Þorsteinsson er látinn

Víglundur Þór Þorsteinsson er látinn

Víglundur Þór Þor­steins­son læknir lést á Land­spít­al­anum í Fossvogi 20. febr­úar síð­ast­lið­inn, 91 árs að aldri. Mbl.is sagði frá and­lát­inu.

Víglundur fædd­ist á Brekku 24. júlí árið 1934 og ólst upp í Vest­manna­eyjum. For­eldrar hans voru Ingi­gerður Jóhanns­dóttir hús­freyja og Þor­steinn Þ. Víglunds­son, skóla­stjóri og spari­sjóðs­stjóri.

Á ung­lings- og mennta­skóla­árum vann Víglundur við ýmis störf, meðal ann­ars verka­manna­vinnu, síld­veiðar og land­bún­að­ar­störf. Hann lauk lands­prófi frá Gagn­fræða­skól­anum vorið 1950, stúd­ents­prófi frá Mennta­skól­anum á Laug­ar­vatni árið 1954 og íþrótta­kenn­ara­prófi frá Íþrótta­kenn­ara­skóla Íslands árið 1955. Í kjöl­farið starf­aði hann sem kenn­ari við Gagn­fræða­skól­ann árin 1955–1956 og sinnti jafn­framt þjálfun og íþrótta­kennslu á sumrin á árunum 1955–1958.

Víglundur lauk lækna­prófi í febr­úar 1964 og banda­rísku útlend­inga­prófi í lækn­is­fræði í mars sama ár. Á kandídatsári starf­aði hann við sjúkra­hús Vest­manna­eyja, sem stað­geng­ill hér­aðs­læknis, auk starfa á sjúkra­húsum í Reykja­vík. Hann hélt síðan til Banda­ríkj­anna til sér­náms, þar sem hann lauk banda­rísku sér­fræð­inga­prófi í lækn­is­fræði og meist­ara­námi (MSc) við Uni­versity of Minnesota. Hann hlaut almennt lækn­inga­leyfi á Íslandi árið 1965 og sér­fræði­leyfi árið 1971.

Víglundur starf­aði meðal ann­ars við Jós­efs­spít­ala í Hafn­ar­firði og um tíma við Landa­kots­spít­ala. Hann rak jafn­framt lækna­stofu í Lækna­stöð­inni í Glæsibæ í Reykja­vík og stund­aði skurð­lækn­ingar kvenna í Hand­lækna­stöð­inni þar.

Hann tók virkan þátt í fag­legu starfi lækna og sat í stjórn Félags íslenskra kven­sjúk­dóma­lækna á árunum 1981–1985, í stjórn Náms­sjóðs lækna 1981–1986 og í samn­inga­nefnd sér­fræð­inga innan Lækna­fé­lags Reykja­víkur 1985–1998. Víglundur var einn af stofn­endum Hand­lækna­stöðv­ar­innar í Glæsibæ árið 1983 og gegndi for­mennsku í stjórn hennar til árs­ins 1989. Þá var hann einnig for­maður stjórnar Lækna­stöðv­ar­innar í Glæsibæ á árunum 1985–1998.

Á efri árum sinnti Víglundur meðal ann­ars skrán­ingu fróð­leiks um Eyjar og Eyjafólk á vefnum Heima­slóð.is.

Eig­in­kona Víg­lundar var Fríða Jóhanna Dan­í­els­dóttir, kenn­ari og hús­freyja, sem lést árið 2023. Þau eign­uð­ust fjögur börn: Sigrúnu, fædda 1960, Þorstein Inga, fæddan 1962, Víglund Þór, fæddan 1966, og Ásgerði Eddu, fædda 1971. Afkom­endur þeirra eru sex barna­börn og sex langa­fa­börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

„Á ég að koma og taka í þig og ríða þér í rassgatið litla tussan þín“
Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá