Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Átján mánaða gæsluvarðhald leiddi til sjálfsvígstilraunar

„Ég var svo þung­lynd og svo ein­angruð og full­kom­lega með­vituð um að almenn­ingi væru sagðar lygar um okkur“

Átján mánaða gæsluvarðhald leiddi til sjálfsvígstilraunar
Charlotte Head Charlotte er laus úr prís­und­inni

Charlotte Head, 29 ára breskur aðgerð­ar­sinni og fyrr­ver­andi góð­gerða­starf­maður, seg­ist hafa verið með­höndluð eins og hryðju­verka­maður af breskum yfir­völdum eftir að hún var hand­tekin vegna mót­mæla­að­gerða tengdra stuðn­ingi við Palest­ínu vegna þjóð­ar­morðs Ísraela. Áður en hún var hand­tekin starf­aði hún við að styðja þolendur heim­il­is­of­beldis og hafði unnið sjálf­boða­liða­starf í flótta­manna­búðum í Calais.

„Alveg rosa­legur hryðju­verka­maður,“ segir hún háðsk í við­tali við Al Jazeera.

Head til­heyrir svoköll­uðum „Filton 24“, hópi aktí­vista sem eru sak­aðir um að hafa ráð­ist inn í starfs­stöð Elbit Systems UK í Bristol í ágúst 2024. Elbit er dótt­ur­fé­lag stærsta vopna­fram­leið­anda Ísraels. Í kjöl­farið, og eftir önnur tengd atvik, settu bresk stjórn­völd sam­tökin Palestine Action, sem lýstu ábyrgð á aðgerð­unum, á lista yfir hryðju­verka­sam­tök.

„Við vorum meðal fyrstu aktí­vista í mjög langan tíma sem voru með­höndl­aðir eins og hryðju­verka­menn,“ segir Head og bætir við að sú flokkun hafi haft afger­andi áhrif á aðstæður hennar í fang­elsi.

Hún segir að fjöl­skylda og vinir hafi lent í miklu skrifræði við að reyna að heim­sækja hana og að les­efni hennar hafi verið rit­skoðað. Slíkar lýs­ingar sam­ræm­ast frá­sögnum ann­arra sem tengj­ast Palestine Action, þótt dóms­mála­ráðu­neytið hafi hafnað ásök­unum um mis­munun.

Þrátt fyrir að hafa ekki verið sak­felld fyrir neitt brot sat Head í fang­elsi í 18 mán­uði, langt umfram venju­legt hámark gæslu­varð­halds í Bret­landi. Hún var látin laus gegn trygg­ingu fyrir þremur vikum. Verjandi hennar líkti henni við súf­fra­gettu fyrir dómi.

Eftir lausn­ina rifjar hún upp and­lega erf­ið­leika fang­els­is­vist­ar­innar. Hún var flutt langt frá heimabæ sínum, sem jók ein­angr­un­ina, og segir að hún hafi á einum tíma­punkti reynt að svipta sig lífi.

„Ég var svo þung­lynd og svo ein­angruð og full­kom­lega með­vituð um að almenn­ingi væru sagðar lygar um okkur, af lög­reglu, hægri press­unni og rík­inu sjálfu, og ég hafði ekk­ert vald til að hrekja þá frá­sögn.“

Hún segir til­raun­ina hafa sprottið af algjöru van­máttar- og stjórn­leys­is­á­standi:

„Ég reyndi að taka mitt eigið líf … ein­göngu vegna van­mátt­ar­ins sem felst í því að vera notuð sem póli­tískt peð og hafa mjög tak­mark­aða stjórn á eigin lífi.“

Eftir atvikið var hún flutt á sjúkra­hús en hand­járnuð allan tím­ann og send aftur í fang­elsi dag­inn eftir. Að hennar mati kallar fang­els­is­kerfið á „gríð­ar­legar“ umbætur.

Palestine Action var stofnað árið 2020 og hefur beint aðgerðum sínum að vopna­fram­leið­endum sem sam­tökin telja tengj­ast stríðs­glæpum Ísraels. Helsta skot­markið er Elbit Systems, sem fram­leiðir meðal ann­ars dróna sem hafa verið not­aðir í þjóð­ar­morð­inu á Gaza, þótt breska dótt­ur­fé­lagið neiti því að það útvegi ísra­elska hernum vopn.

Head og aðrir aðgerð­ar­sinnar hafa neitað sök í öllum málum. Hún er sögð hafa ekið sendi­bíl inn á lóð verk­smiðj­unnar í Bristol til að kom­ast inn.

Þrátt fyrir per­sónu­legar afleið­ingar seg­ist hún stað­ráðin í að halda áfram bar­átt­unni:

„Það er svo sárt að sjá að svo lítið hefur breyst í Palest­ínu, að þjóð­ar­morðið hefur haldið áfram óáreitt,“ segir hún. „Þetta er skelfi­legt, en stað­festir það sem við höfum lengi vitað: að rík­is­völd eins og Ísrael, Banda­ríkin og Bretland ætl­uðu aldrei að virða alþjóða­lög. Þess vegna verðum við að halda áfram að láta í okkur heyra og reyna að koma á raun­veru­legu rétt­læti fyrir Palest­ínu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Að lokinni fimm vikna þjálfun hafa nemendurnir réttindi til að kafa niður á 30 metra dýpi
Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Peningar

Samkaup semja um kaup á Fjarð­ar­kaupum

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife