Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum

„Pínu skrýtið að fá verð­laun fyrir ævi­starf á miðjum ferli“

Harrison Ford flutti tilfinningaþrungna ræðu á SAG-verðlaununum
Harrison Ford Það eru fáir sval­ari en Ford Mynd: VALERIE MACON / AFP

Harrison Ford hlaut stand­andi lófa­klapp í gær þegar hann tók við SAG-AFTRA-verð­laun­unum fyrir ævi­starfið.

„Er þetta ekki pínu snemmt?“ grín­að­ist Ford og bætti við að það væri „pínu skrýtið að fá verð­laun fyrir ævi­starf á miðjum ferli“.

Hinn 83 ára gamli Ford er einn tekju­hæsti leik­ari kvik­mynda­sög­unnar eftir að hann sló í gegn á heims­vísu í hlut­verki Han Solo í Star Wars-mynd­unum, en fer­ill hans var síðan ræki­lega festur í sessi með Indiana Jones-mynd­unum.

Ford barð­ist við tárin þegar hann þakk­aði sam­ferða­fólki sínu í grein­inni, leik­urum, hand­rits­höf­undum og leik­stjórum. Hann sagð­ist hafa „fundið köllun. Líf í frá­sögn sagna. Sjálfs­mynd í því að þykj­ast vera aðrir.“

„Þótt við séum öll á ólíkum stöðum í lífi okkar og ferli hér í salnum eigum við eitt sam­eig­in­legt,“ sagði Ford. „Við deilum þeim for­rétt­indum að vinna í heimi hug­mynda, sam­kenndar og ímynd­un­arafls. Vegna þess hef ég kynnst sjálfum mér.“

Ford lagði áherslu á að hann hefði ekki orðið frægur á einni nóttu. Fyrstu 15 ár fer­ils síns hafi hann hoppað á milli leik­listar og smíða­vinnu áður en hann fékk raun­veru­legt tæki­færi í kvik­myndum.

Hann þakk­aði sér­stak­lega kvik­mynda­fram­leið­and­anum og umsjóna­manni leik­ara­vals, Fred Roos og langvar­andi umboðs­manni sínum, Pat McQueeney, sem hann sagði hafa skipt sköpum fyrir feril sinn. „Þeir eru ekki lengur meðal okkar, en mér finnst mik­il­vægt að minn­ast þeirra núna. Ég finn nær­veru þeirra hér í kvöld. Þeir hefðu verið ánægðir með mig,“ sagði Ford.

Heið­ur­inn frá SAG-AFTRA er einn af nokkrum verð­launum fyrir ævi­starf sem Ford hefur hlotið á sex ára­tuga löngum ferli sínum, sem ein­kenn­ist af tveimur stærstu kvik­mynda­ser­íum Hollywood. Áður en hann steig á svið var sýnd sam­an­tekt úr ólíkum hlut­verkum hans í kvik­myndum.

Verð­launin voru afhent af leik­ar­anum Woody Harrel­son, sem lof­aði fjöl­breyttan feril Ford og kall­aði hann „tíma­lausa amer­íska þjóð­ar­ger­semi“. „Það er of mikið af mér í þess­ari hyll­ingu til Harrison, en ég er leik­ari, hverju bjóstu við?“ grín­að­ist Harrel­son og rifj­aði upp hvernig vin­átta þeirra hófst á sushi-stað og end­aði með því að þeir hlógu linnu­laust í þrjár mín­útur.

„Þetta eru ævi­afreka­verð­laun og hann hefur sann­ar­lega lifað fullu lífi,“ bætti Harrel­son við.

Ford sýnir engin merki um að hægja á sér. Hann fer með hlut­verk sál­fræð­ings­ins Paul Rhoades í Apple TV-ser­í­unni Shrink­ing, sem skil­aði honum fyrstu Emmy-til­nefn­ingu fer­ils­ins í fyrra. Hann lék einnig í 1923 og birt­ist nýverið í fyrstu Marvel-mynd sinni, Captain America: Brave New World.

„Harrison telur að það að vinna meira sé mótefni gegn öldrun,“ sagði Harrel­son. Ford sneri nýverið aftur í eitt þekktasta hlut­verk sitt í mynd­inni Indiana Jones and the Dial of Destiny.

Þrátt fyrir gríð­ar­legan árangur hefur Ford aldrei unnið stór verð­laun fyrir leik. Ævi­afreka­verð­launin eru þau fyrstu sem hann hlýtur frá leik­ara­sam­band­inu. Hann var til­nefndur í fyrra fyrir hlut­verk sitt í Shrink­ing en laut í lægra haldi fyrir Martin Short í Only Murders in the Building.

Ford sagð­ist vera „mjög auð­mjúkur“ yfir því að vera heiðr­aður í sal fullum af leik­urum, „mörgum sem eru hér vegna þess að þeir hafa verið til­nefndir fyrir stór­kost­leg verk, á meðan ég er hér til að fá verð­laun fyrir að vera á lífi.“

„Stundum búum við til afþr­ey­ingu. Stundum búum við til list. Og stundum erum við svo heppin að gera hvort tveggja í einu,“ sagði hann.

Ævi­afreka­verð­laun SAG-AFTRA eru æðsti heiður hátíð­ar­innar og eru veitt leik­urum sem hafa stuðlað að „æðstu hug­sjónum leik­listar“. Með verð­laun­unum bæt­ist Ford í hóp nafn­tog­aðra leik­ara á borð við Jane Fonda, Barbru Streisand, Morgan Freeman og Robert De Niro.

SAG-AFTRA lýsti Ford sem „einum af lang­líf­ustu aðal­leik­urum kvik­mynda­sög­unnar“ en frammi­staða hans „er orðin sam­ofin menn­ingu okkar,“ í til­kynn­ingu í des­em­ber þar sem greint var frá heiðr­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Heimur

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Heimur

Átta ára drengur skot­inn til bana

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Heimur

Dóm­ara­deilan sýður upp úr í Póllandi

Heimur

Fá borgað fyrir að ganga með vél­hunda um San Francisco

Heimur

Dul­ar­fullt ákall á net­inu vekur ótta við óeirðir á Tenerife