Matvælastofnun varar neytendur sem hafa ofnæmi-eða óþol fyrir súlfíti við Madam Wong pálmasykri sem er vanmerktur og ekki getið í innihaldslýsingu. Innflytjandi Lagsmaður ehf. (fiska.is) hefur í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness innkallað vöruna.
Viðskiptavinum með súlfit ofnæmi-eða óþol er bent á að farga vörunni eða skila til verslun Fiska Nýbýlavegi 6.

Mynd: MAST































Athugasemdir